Skip to content
Artwork for Samstöðin
NewsNews CommentarySociety & Culture

Samstöðin

Samstöðin

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

Play
  • 87 episodes
  • daily
  • Avg 2 hr 41 min
  • Icelandic
Counted on this page — what you have heard stays on this device, so it is not something the list can be paged by.
  • #1457
    October 9 · 1 hr 25 min

    Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 41

    Föstudagur 9. október Vikuskammtur: Vika 41 Atlaga gegn mennsku og menningu, aftökur í beinni, hroki og hleypidómar í verkalýðshreyfingunni og árshátíðarferð atvinnulífsins til Króatíu eru meðal umræðuefna í fréttaþættinum Vikuskammti. Tengist þetta kannski allt? Gestir eru Gunnar Alexander Ólafsson hjá ÖBÍ, Kristín I. Pálsdóttir, talskona Rótarinnar, Valgerður Árnadóttir hvalavinur og baráttukona og Jökull Sólberg Auðunsson sósíalisti. Leigubremsur og framtíð hvalveiða verða einnig til umræðu.

  • #1455
    October 8 · 4 hr 48 min

    Rauða borðið 8. okt - Menntastefna, reynsluboltar, öldrun, Brasilía, hamingja og bekkurinn

    Fimmtudagur 8. október Menntastefna, reynsluboltar, öldrun, Brasilía, hamingja og bekkurinn Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins, Mjöll Matthíasdóttir formaður Félags grunnskólakennara, Jónína Hauksdóttir formaður skólamálaráðs KÍ og Anton Már Gylfason formaður félag stjórnenda í framhaldsskólum útskýra sýn verkalýðshreyfingar kennara á menntastefnuna. Gunnar V. Andrésson, Einar Kárason og Kristín Ástgeirsdóttir voru gestir þáttarins að þessu sinni. Helstu mál samfélagsins voru rædd a

  • #1454
    October 7 · 5 hr 13 min

    Rauða borðið 7. okt - Grænland, menningarstefna, skólar, Þórarinn og trú

    Miðvikudagur 7. október Grænland, menningarstefna, skólar, Þórarinn og trú Valur Ingimundarson prófessor ræðir við Gunnar Smára um nýjan samning um Grænland, mögulegt sjálfstæði Grænlands og hvað staða Grænlands segir okkur um stöðu Íslands. Tónlistarfólkið og skólastjórnendurnir Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Edda Austmann og Róbert Þórhallsson ræða niðurskurð til tónlistarskólanna. Börn sem vilja stunda tónlistarnám geta lent í því að fá hvergi inni í Reykjavík eða bíða lengi, lengi. Björn Þorlá

  • #1452
    October 6 · 4 hr 21 min

    Rauða borðið 6. okt - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó

    Þriðjudagur 6. október Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir stundakennari, Bogi Ágústsson sjónvarpsmaður og Guðmundur Hálfdanarson prófessor ræða við Gunnar Smára um áhrif Trump og stjórnar hans á Bandaríkin og heiminn, kosningarnar framundan, heimsókn Marco Rubio til Íslands og fleiri tengt Trump. Brynjar Karl Sigurðsson, körfuboltaþjálfari stúlknaliðsins Aþenu, segir Ásdísi Olsen frá köllun sína að gefa börnum í Efra-Breiðholti tækifæri til valdeflingar. Við

  • #1451
    October 6 · 1 hr

    Bókaborðið 4. þáttur - Hilla hinna ólesnu bóka

    Bókaborðið 6. október - Hilla hinna ólesnu bóka Í þætti dagsins fær Ævar Þór Benediktsson til sín Villa Neto, Hlyn Pál Pálsson og Önnu Leu Friðriksdóttur. Saman munu þau ræða hið eilífa vandamál bókasafnarans; bækurnar sem maður á, hefur aldrei lesið, en getur ekki hugsað sér að losa sig við.

  • #1450
    October 5 · 5 hr 47 min

    Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind

    Mánudagur 5. október Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind Gylfi Zoega prófessor ræðir um efnahaginn við Gunnar Smára, eru að verða straumhvörf hér heima og enn frekar erlendis? Krísan innan SÁÁ vindur enn upp á sig. Snorri Ásmundsson myndlistarmaður, Dóra Jóhannsdóttir leikkona, Ásdís Olsen fjölmiðlakona og Björn Þorláks blaðamaður þekkja öll vel til starfa innan SÁÁ. Þau ræða vandann með hispurslausum hætti. Pálmi V. Jónsson prófessor ræðir umönnun aldraða við Gunnar Smára út frá u

  • #1448
    October 4 · 47 min

    Bridgeþátturinn - Parameistarar

    Sunnudagurinn 4. október Bridgeþátturinn - Parameistarar Hjördís Sigurjónsdóttir-Kristján Blöndal eru ekki bara par í daglegu lífi, þau eru líka briddspar og hafa margoft náð frábærum árangri sem slík í bridds-íþróttinni, nú síðast um síðustu helgi þegar þau bættu við Íslandsmeistaratitli. Þau ræða við Björn Þorláks um spilið sem þau elska og besti Bridgeþáttar Samstöðvarinnar í dag eru að auki Magnús E. Magnússon og Matthías Imsland.

  • #1447
    October 3 · 1 hr 59 min

    Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson

    Laugardagur 3. október Helgi-spjall: Stefán Pálsson Stefán Pálsson sagnfræðingur sem hefur verið áberandi í borgarmálunum er gestur Björns Þorlákssonar í helgi-spjalli. Stefán ræðir æsku sína og uppvöxt og sem mótar einstakling, svo sem Gettur betur!

  • #1449
    October 2 · 1 hr 33 min

    Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 40

    Föstudagur 2. október Vikuskammtur: Vika 40 Þær koma að Rauða borðinu, þær Lína Thoroddsen kvikmyndagerðarkona, Steinunn Ólína Hafliðadóttir myndlistarkona, Stefanía Silfá Sigurðardóttir nemi í blaðamennsku og Brynhildur Bolladóttir formaður samtaka um bíllausan lífsstíl og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af róandi lyfjum, upplausn, efnahagslegum sársauka, mislukkuðum aftökum, deilum og tilraunum til samtals.

  • #1446
    October 1 · 5 hr 1 min

    Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi

    Fimmtudagur 1. október Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við reynsluboltana Sigurð Ágúst Sigurðsson, formann Félags eldri borgara í Reykjavík, Drífu Sigfúsdóttur, fyrrum bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ og Guðbrand Stíg Ágústsson um fréttir líðandi stundar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur hafnað að leynd skuli ríkja um samning Sjúkratrygginga og SÁÁ. Björn Þorláks ræðir við Kristínu I. Pálsdóttur, talskonu Rótarinnar sem kær

  • #1445
    October 1 · 4 hr 51 min

    Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar

    Miðvikudagur 30. september Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar Ísak Einar Rúnarsson forstöðumaður málefnasviðs SA og Róbert Farestveit hagfræðingur Alþýðusambandsins fara yfir efnahagsmál hér heima og erlendis í spjalli við Gunnar Smára. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um heimsmálin. Þurý Gísladóttir, sérfræðingur í tíðnimeðferð útskýrir fyrir Ásdísi Olsen þessa athyglisverðu tækni. María Reyndal höfundur og leikstjóri, Mikael Emil Kaaber leikari og Reb

  • #1444
    September 30 · 57 min

    Græna borðið - 22. þáttur: Menntun til sjálfbærni

    Græna borðið 30. sept. - Menntun til sjálfbærni Afhverju er menntun til sjálfbærni mikilvæg? Er það fag? Græna borðið lítur til þess hvernig skólakerfið býr nemendur undir betri og sjálfbærari þróun í flóknum heimi. Snæ Humadóttir, nemandi, Svandís Egilsdóttir, kennari, Guðrún Schmidt, sérfræðingur í menntun til sjálfbærni og Guðni Olgeirsson frá menntamálaráðuneytinu, eru gestirnir. Björg Eva Erlendsdóttir sér um þáttinn.

  • #1443
    September 29 · 3 hr 54 min

    Rauða borðið 29. sept - Trumptíminn, verðbólga, skyr, SÁÁ og töfrar

    Þriðjudagur 29. september Trumptíminn, verðbólga, skyr, SÁÁ og töfrar Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur fara með Gunnari Smára yfir hvernig stefna og orð Trump móta Bandaríkin og heiminn. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum bregst við verðbólgumælingu dagsins. Hann spyr í samtali við Björn Þorláks hvort högg skuldugra sé verjandi vegna ofurvaxta Seðlabankans þótt markmið bankans séu göfug. Þjóðfræðingarnir Vilb

  • #1441
    September 28 · 5 hr 35 min

    Rauða borðið 28. sept - Kjaramál, Óshlíðarmálið, Allsherjarþingið, SÁÁ, ESB og fjölmiðlar

    Mánudagur 28. september Kjaramál, Óshlíðarmálið, Allsherjarþingið, SÁÁ, ESB og fjölmiðlar Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins ræða um kjaramálin við Gunnar Smára og stöðuna innan verkalýðshreyfingarinnar. Þeir Páll Halldór Halldórsson og Þórhallur Hilbert segja frá því Óshliðarmálinu í viðtali við Ásdísi Olsen. Helen Ólafsdóttir öryggisráðgjafi fer yfir allsherjarþingið með Gunnari Smára, metur ræður sem þar voru haldnar, um framtí

  • #1440
    September 27 · 2 hr 37 min

    Synir Egils 27. sept - Stöðnun, verðbólga, atvinnuleysi, olía, stríð og auðlindir

    Sunnudagurinn 27. september Synir Egils: Stöðnun, verðbólga, atvinnuleysi, olía, stríð og auðlindir Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun, Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur og Halla Gunnarsdóttir formaður VR og ræða kólnandi hagkerfi, aukið atvinnuleysi og viðvarandi verðbólgu og mögulegar aðgerðir og nauðsynlegar. Síðan koma Halla Hrund Logadóttir þingkona, Þórhildur Sunna Æva

  • #1438
    September 26 · 1 hr 53 min

    Rauða borðið - Helgi-spjall: Björn Leví

    Laugardagur 26. september Helgi-spjall: Björn Leví Í helgispjalli ræðir Björn Leví Gunnarsson við Björn Þorláks um einelti og fleira. Þegar einelti gengur langt má líkja því við tilraun til mannsdráps að sögn hans. Þingið, fall pírata, átök í Flokki fólksins og fleira verður til umræðu.

  • #1439
    September 25 · 1 hr 11 min

    Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 39

    Föstudagur 25. september Vikuskammtur: Vika 39 Fyrsta haustlægðin, hvellurinn í Flokki fólksins, Átök Ísraels og Palestínu, stórafmæli Menntaskólans í Hamrahlíð, staða pólitíkur og efnahagsmála, bridds, brennivín, bækur, músík og fleiri mál verða til umræðu í fréttaþættinum Vikuskammtur. Björn Þorláks hefur umsjá með dagskránni en gestir eru Matthías Imsland framkvæmdastjóri, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur, Árni Guðmundsson forvarnafulltrúi og Hallveig Rúnarsdóttir söngkona.

  • #1437
    September 24 · 5 hr 15 min

    Rauða borðið 24. sept - Utanríkismál, hugrekki, gervigreind, reynsluboltar, geðheilbrigði og ný bók

    Fimmtudagur 24. september Utanríkismál, hugrekki, gervigreind, reynsluboltar, geðheilbrigði og ný bók Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Þorsteinn Pálsson ræða utanríkismál og samband Íslands við umheiminn í samtali við Sigurjón Magnús Egilsson. Heimir Hallgrímsson hefur vakið reiði ísraelska knattspyrnusambandsins. Hjálmtýr Heiðdal hjá Ísland-Palestína ræðir við Björn Þorláks um hugrekki knattspyrnuþjálfarans. Oddný Harðardóttir, Steingerður Steinarsdóttir og Thomas Möller eru gestir Sigurjóns í

Showing 41–60 of 87 episodes