Skip to content
Artwork for Samstöðin
NewsNews CommentarySociety & Culture

Samstöðin

Samstöðin

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

Play
  • 87 episodes
  • daily
  • Avg 2 hr 41 min
  • Icelandic
Counted on this page — what you have heard stays on this device, so it is not something the list can be paged by.
  • #1496
    Yesterday · 1 hr 16 min

    Föstudagur 6. nóvember - Vikuskammtur: Vika 45

    Föstudagur 6. nóvember Vikuskammtur: Vika 45 Í Vikuskammti ræða í beinni útsendingu Lóa Hjálmtýsdóttir listakona, Heiðar Ingi Svansson útgefandi, Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri Rúv, Þorgerður María Þorbjarnardóttir hjá Landvernd og Bragi Páll skáld fréttir vikunnar í umsjá Björns Þorláks. Kjarnorkutíst upplýsingafulltrúa, raðáhrif í kjölfarið, Reykjavík Bangkok norðursins – eða ekki, upphafið að endalokum Trump, sögur brottrekinna starfsmanna, umhverfismál, hamfarapakki heimilanna, bækur

  • #1495
    Thursday · 3 hr 51 min

    Rauða borðið 5. nóv - Reynsluboltar, meðvirkni, áhugaleikhús og Frakkland

    Fimmtudagur 5. nóvember Reynsluboltar, meðvirkni, áhugaleikhús og Frakkland Reynsluboltar þessa vikuna eru Benedikt Jóhannesson stofnandi Viðreisnar, Óðinn Jónsson fyrrum fréttastjóri RÚV og Þórunn Sigurðardóttir menningarfrömuður. Vandinn vegna Landsvirkjunar, orð Ólafs Ragnars og svar Þorgerðar Katrínar voru á dagskrá, íslenska óperan og fleira. „Áttu erfitt með að biðja um hjálp?“ Þá ertu líklega að glíma við meðvirkni, segja Gyða Dröfn Tryggvadóttir og Anton Ísak Óskarsson, en þau þekkja m

  • #1493
    Wednesday · 4 hr 35 min

    Rauða borðið 4. nóv - Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni

    Miðvikudagur 4. nóvember Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Magnús Helgason sagnfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson prófessor fara yfir kosningaúrslitin í Bandaríkjunum í spjalli við Gunnar Smára í auka-Trumptíma. Marka kosningarnar endalok Trumptímans? Ásdís Olsen ræðir við Karítas Ólafsdóttur móður og sálfræðing en hún neitar að láta stjórnvöld ráða hennar eigin barneignum. Forgangsröðun fjármuna tekur ekki mið af

  • #1492
    Wednesday · 58 min

    Græna borðið - 27. þáttur: Neysluhegðun

    Miðvikudagur 4. nóvember Græna borðið - 27. þáttur: Neysluhegðun Neysla samfélagsins hefur aldrei verið meiri. Í nóvembermánuði fyllast götur og miðlar af auglýsingum til þess að fá fólk til að neyta meira af hlutum sem það þarf ekki á að halda. Í þætti dagsins förum við djúpt í nægjusemi og neyslu. Freyr Eyjólfsson, verkefnastjóri hjá Sorpu og Ragnhildur Katla Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi Landverndar ræða við Breka Karlsson, formann Neytendasamtakanna og Rögnu Benediktu Garðarsdóttur, prófes

  • #1491
    Tuesday · 4 hr 23 min

    Rauða borðið 3. nóv - Uppsagnir, norðurslóðir, ópera og lækningar

    Þriðjudagur 3. nóvember Uppsagnir, norðurslóðir, ópera og lækningar Þorvaldur Ingi Jónsson ráðgjafi rýnir í hópuppsagnirnar hjá borginni og gefur aðferðafræðinni laka einkunn. Björn Þorláks heldur áfram umfjöllun Samstöðvarinnar um starfsmannamál og mannúð. Gunnar Smári ræðir við Rasmus Gjedssø Bertelsen prófessor í Tromsø um Grænlandssamning Bandaríkjanna, símtal forsætisráðherra Noregs og forseta Finnlands til Putín og önnur mál tengt norðurslóðum. Bjarni Snæbjörnsson leikstjóri, Íris Björk G

  • #1490
    Tuesday · 1 hr 5 min

    Bókaborðið - 8. þáttur: Myndhöfundar barnabóka

    Þriðjudagur 3. nóvember Bókaborðið - 8. þáttur: Myndhöfundar barnabóka Hvað eru myndhöfundar að bralla? Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir og Linda Ólafsdóttir segja Maríu Hjálmtýsdóttur frá starfinu, mikilvæginu, harkinu og pólitíkinni. Það er nefnilega pólitík í öllu ef vel er að gáð. Meira segja í barnabókabransanum. Er hægt að verða rík af því að teikna barnabækur á Íslandi? Eru íslenskir myndhöfundar í stanslausri samkeppni hver við annan eða eru þau vinir? Eru þau kannski í keppni við gervigreindina

  • #1489
    Monday · 5 hr 14 min

    Rauða borðið 2. nóv - Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar

    Mánudagur 2. nóvember Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar Ómannúðlegar aðferðir við uppsagnir starfsfólks og áhrif þess, persónubundin og samfélagsleg, verða til umræðu hjá Viðari Eggertssyni leikara og Sigríði Kristjánsdóttur kvikmyndasérfræðingi. Þau urðu vitni að því sem Viðar kallar “slátrun” í hópuppsögn hjá Ríkisútvarpinu þar sem Sigríður missti vinnuna og lýsir nú í fyrsta skipti þeirri bitru reynslu. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Degi fyrir kosningar í Banda

  • #1488
    Sunday · 2 hr 37 min

    Synir Egils 1. nóv - Uppsagnir, atvinnuleysi, stöðnun, umrót og pólitísk straumhvörf

    Sunnudagurinn 1. nóvember Synir Egils: Uppsagnir, atvinnuleysi, stöðnun, umrót og pólitísk straumhvörf Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingkona Miðflokksins, María Rut Kristinsdóttir þingkona Viðreisnar og Guðmundur Ari Sigurjónsson þingmaður Samfylkingar og ræða helstu fréttir og stöðu mála, stöðu flokka, ríkisstjórnar og sveitarstjórna. Þá koma þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vg, Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaðu

  • #1486
    October 31 · 1 hr 35 min

    Rauða borðið - Helgi-spjall: Haraldur Erlendsson

    Laugardagur 31. október Helgi-spjall: Haraldur Erlendsson Hvar liggja mörkin milli geðrænna einkenna og andlegrar reynslu? Haraldur Erlendsson geðlæknir hefur frá barnæsku upplifað andlegan veruleika, orðið fyrir margs konar dulrænni reynslu, upplifað eigin fæðingu, fengið innsýn og vitranir en umfram allt upplifað mikinn unað og kærleika. Haraldur fagnar sjötugsafmæli sínu um þessar mundir og segist loksins frjáls til að tjá sig um ýmislegt sem sumum gæti þótt skrýtið og ekki endilega fræðileg

  • #1487
    October 30 · 1 hr 23 min

    Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 44

    Föstudagur 30. október Vikuskammtur: Vika 44 Vikuskammtur, umræða um fréttir líðandi stundar, er í umsjá Björns Þorláks. Gestir hans, Oddný Harðardóttir fyrrum þingmaður, Jón Trausti Reynisson blaðamaður, Jasmina Vazjovic ráðgjafi og Ólafur Arnarson blaðamaður rýna í uppsagnir í borginni, niðurstöður kosninga utan landsteinanna, pólitík og efnahagsmál innanlands, fordóma, nýjar og áhugaverðar bækur og fleira.

  • #1485
    October 29 · 5 hr 36 min

    Rauða borðið 29. okt - Reynsluboltar, heimsmál, heimsveldi, vók, Mímir og takkarnir

    Fimmtudagur 29. október Reynsluboltar, heimsmál, heimsveldi, vók, Mímir og takkarnir Kári Jónsson, Sirrý Arnardóttir og Álfheiður Ingadóttir eru reynsluboltarnir sem ræða við Sigurjón Magnús þessa vikuna, um fréttir og stöðu samfélagsins. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um símtal Støre og Stubb til Pútín, Úkraínu, smáríki og norðurslóðir. Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og rithöfundur, ræðir við Björn Þorláks um nýja bók sem fjallar um hryðjuverk, efnahagshrun og endalok

  • #1484
    October 28 · 4 hr 27 min

    Rauða borðið 28. okt - Naza, heimahagkerfið, sprútt, enfants terrible, Pár Guðs

    Miðvikudagur 28. október Naza, heimahagkerfið, sprútt, enfants terrible, Pár Guðs Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi, Hjálmtýr Heiðdal formaður Félagsins Ísland-Palestína, Qussay Odeh, Íslendingur af palestínskum ættum og Laufey Líndal Ólafsdóttir ræða við Gunnar Smára um heimildarmyndina Naza sem fjallar um hvernig ísraelski herinn notar gervigreind og háþróaða tækni til að fremja þjóðarmorð á Gaza. Gauti B Eggertsson hagfræðiprófessor við Brown háskólann ræðir við Gunnar Smára um horf

  • #1483
    October 28 · 51 min

    Græna borðið 26. þáttur - Stökkbreytingar í stofnunum

    Miðvikudagur 28. október Græna borðið 26. þáttur - Stökkbreytingar í stofnunum Heilbrigðisfulltrúum sem sagt var upp hjá sveitarfélögum verður boðinn ráðningarsamningur hjá Umhverfis og orkustofnun í vikunni. Starf Náttúruverndarstofnunar breiðist yfir landið þegar utanvegaakstur, allsstaðar, en ekki bara í friðlöndum, verður undir eftirliti hennar. Gestur Pétursson og Sigrún Ágústsdóttir, forstjórar eru gestir Græna borðsins, ásamt Andrési Skúlasyni, hjá Landvernd sem leiðbeinir almenningi oft

  • #1482
    October 27 · 4 hr 51 min

    Þriðjudagur 27. október - Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin

    Þriðjudagur 27. október Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin Nýr meirihluti í Reykjavík hefur sagt upp fjölda fólks sem starfar hjá borginni Kári Sigurðsson formaður Sameykis og oddvitar úr minnihlutanum; Pétur Marteinsson Samfylkingu og Sanna Magdalena Mörtudóttir, Vinstrinu ræða við Gunnar Smára um stöðuna. Vilhjálmur Egilsson fyrrum þingmaður og rektor telur rétt að breyta skólum í fangelsi í stað þess að byggja alltaf ný. Í samtali við Björn Þorláks ræð

  • #1481
    October 27 · 59 min

    Bókaborðið 7. þáttur - Jólabókaspjall

    Þriðjudagur 27. október Bókaborðið 7. þáttur - Jólabókaspjall Vigdís Gríms spjallar við Hermann Stefánsson og Kristínu Ómars um bók Hermanns Sauðburð og bók Kristínar Móðurást;Lausnargjaldið. Farið verður vítt og breitt yfir feril höfundanna og þau segja skoðanir sínar á bókum hvors annars. Valdi, vinur Hermanns, mun taka smávegis þátt í spjallinu, en hann er brúða Hermanns sem hefur ekki alltaf mikið álit á eiganda sínum. Hermann spáir líka í spil og leggur eina í þættinum.

  • #1480
    October 26 · 5 hr 14 min

    Rauða borðið 26 okt - Trump, rasismi, Landsréttur, Serbía, Brasilía, stjörnuspeki og Steinunn

    Mánudagur 26. október Trump, rasismi, Landsréttur, Serbía, Brasilía, stjörnuspeki og Steinunn Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur ræða við Gunnar Smára um stöðu Trump í aðdaganda þingkosninga í Bandaríkjunum. Sigursteinn Másson fréttamaður og Magnea Marínósdóttir stjórnmálafræðingur ræða aukinn rasisma og leiðir til úrbóta. Björn Þorláks ræðir við þau. Magnea segir bæjarstjórann í Öfusi hafa framið brot á lögum með

  • #1479
    October 26 · 27 min

    Manngildi - 2. þáttur: Sögur sem breyta sýn okkar

    Mánudagur 26. október Manngildi - 2. þáttur: Sögur sem breyta sýn okkar Í þessum þætti Manngildis er gesturinn Magnús Orri Arnarson, kvikmyndagerðarmaður sem hefur meðal annars komið að gerð þáttanna Með okkar augum og 50 ára afmælisþáttar Þroskahjálpar. Magnús vinnur nú að heimildarmynd um íslensku þátttakendur á Special Olympics 2027, undirbúning þeirra, upplifun og fólkið á bak við afrekin. Við ræðum hvernig kvikmyndagerð getur aukið sýnileika fatlaðs fólks, brotið niður staðalímyndir og gef

  • #1478
    October 25 · 2 hr 25 min

    Synir Egils 25. okt - Mótmæli, átök, fylgi og fall

    Sunnudagurinn 25. október Synir Egils: Mótmæli, átök, fylgi og fall Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Andrea Sigurðardóttir blaðakona, Rakel Þorbergsdóttir samskiptaráðgjafi og fyrrum fréttastjóri Ríkisútvarpsins og Róbert Marshall fjallamaður, fyrrum þing- og blaðamaður og ræða átök í Evrópu og innan flokka á Íslandi, niðurskurð hjá Borginni, umdeildan sýknudóm í kynferðisbrotamáli, fylgi flokka og margt fleira. Að því loknu ræðum við mótmælin í Evrópu

  • #1476
    October 24 · 1 hr 48 min

    Rauða borðið - Helgi-spjall: Einar Bárðar

    Laugardagur 24. október Helgi-spjall: Einar Bárðar „Það eru sirka tveir á Íslandi sem ég hef ekki hringt í,“ segir Einar Bárðarson, athafnamaður og alþýðuskáld sem hefur komið víða við, allt frá tónlistarbransanum og viðburðahaldi til hjólreiðakeppna, plokks og umhverfismála. Hann segir samskiptahæfni sína helsta styrkleika, á auðvelt með að setja sig í spor annarra og hugsar frekar „Hvað get ég gert?“ en „Hvað getur kerfið gert fyrir mig?“ Í Helgispjalli hjá Ásdísi Olsen segir Einar frá skipti

Showing 1–20 of 87 episodes