Skip to content
Artwork for Samstöðin
NewsNews CommentarySociety & Culture

Samstöðin

Samstöðin

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

Play
  • 116 episodes
  • daily
  • Avg 2 hr 37 min
  • Icelandic
Counted on this page — what you have heard stays on this device, so it is not something the list can be paged by.
  • #1526
    Yesterday · 59 min

    Græna borðið 25. nóv - Náttúrupassi

    Græna borðið 25. nóv - Náttúrupassi Fulltrúi ríkisstjórnarmeirihlutans og formaður fjárlaganefndar vill bæta samtal um náttúrupassann á Gullfossi, Geysi og Þingvöllum og heitir stuðningi við góðar tillögur sem gætu skapað sátt um lagafrumvarpið. Sunnlendingar taka gjaldinu illa og finnst það óréttlátt, óundirbúið og ómögulegt í framkvæmd. Sigurjón Þórðarson, Jón Bjarnason og Torfi Stefán Jónsson ræða gullna passann við Græna borðið. Með þeim situr Björg Eva Erlendsdóttir.

  • #1525
    Tuesday · 4 hr 6 min

    Þriðjudagur 24. nóvember - Trump, múslimahatur, veðrið, vísindi og löggan

    Þriðjudagur 24. nóvember Trump, múslimahatur, veðrið, vísindi og löggan Bjarni Randver Sigurvinsson trúarbragðafræðingur, Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur og Bogi Ágústsson fréttamaður ræða við Gunnar Smára um Trump, vanda hans og vonir. Saraa Almasri, Jasmina Vajzovic og Sverrir Agnarsson ræða við Gunnar Smára um vaxandi múslimaandúð á Íslandi. Einar Sveinbjörnsson ræddi við Sigurjón um veðurspár, öryggi þeirra og breytingar með aukinni tækni. Ekki síst með notkun gervigreindar. Hann lýs

  • #1524
    Tuesday · 1 hr 1 min

    Bókaborðið - 10. þáttur: Tengdasynir, söngur um haust og klefinn

    Þriðjudagur 24. nóvember Bókaborðið - 10. þáttur: Tengdasynir, söngur um haust og klefinn Tveir góðir gestir mæta Í Bókaborðið að þessu sinni, rithöfundarnir Auður Ava Ólafsdóttir og Sölvi Björn Sigurðsson. Auður Ava sendi á dögunum frá sér skáldsöguna Tengdasonur Íslands, bók um ást og missi, uppruna og erfðir. Sölvi Björn hefur Haustsöngva í farteskinu, úrval ljóða Paul Verlaine sem var eitt af höfuðskáldum Frakka á sinni tíð, dáður en umdeildur. Umsjón: Sindri Freysson rithöfundur.

  • #1523
    Monday · 4 hr 2 min

    Rauða borðið 23. nóv - Hagaskóli. Palestína, lyfjasúpa, biðlistar, bækur og krabbamein

    Mánudagur 23. nóvember Hagaskóli. Palestína, lyfjasúpa, biðlistar, bækur og krabbamein Voru vinnubrögð fjölmiðla við hæfi í fréttaflutningi af svokölluðu Hagaskólamáli? Friðrik Þór Friðriksson, Steingerður Steinarsdóttir og Ágúst Borgþór Sverrisson blaðamenn leitast við að svara þeirri spurningu í samtali við Björn Þorláksson og eru ekki á einu máli. Gunnar Smári slær á þráðinn til Palestínu þar sem Qussay Odeh segir okkur fréttir frá Palestínu. Í viðtali Ásdísar Ólsen við Önnu Birnu Almarsdótt

  • #1522
    Monday · 58 min

    Manngildi - 5. þáttur: Þegar móðir ákveður að breyta kerfinu

    Mánudagur 23. nóvember Manngildi - 5. þáttur: Þegar móðir ákveður að breyta kerfinu Gestur Manngildis að þessu sinni er Vigdís Gunnarsdóttir, lögfræðingur, móðir einhverfs drengs og stofnandi Þorláksskóla. Í þættinum kynnumst við Vigdísi og ræðum hvernig reynsla hennar af þjónustukerfinu varð að baráttu fyrir betri tækifærum einhverfra barna. Við fjöllum um Biðlisti.is, sem hún stofnaði ásamt öðrum mæðrum til að vekja athygli á löngum biðlistum eftir greiningu og þjónustu, og Þorláksskóla, nýja

  • #1521
    Sunday · 2 hr 21 min

    Synir Egils 22. nóv - Hallalaus fjármál, atvinnuleysi, hjólabúar, leiðtogafundur og biðlistar

    Sunnudagurinn 22. nóvember Synir Egils: Hallalaus fjármál, atvinnuleysi, hjólabúar, leiðtogafundur og biðlistar Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma þau Björn Ingi Hrafnsson aðstoðarmaður formanns Miðflokksins, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir blaðamaður og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir framkvæmdastjóri BSRB og ræða helstu fréttir og stöðu mála í samfélaginu okkar og heiminum. Síðan kemur Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala og ræðir við okkur um biðlista í he

  • #1520
    Sunday · 58 min

    Hvernig í ósköpunum enduðum við hér? - 2. þáttur: Ósköpin

    Sunnudagurinn 22. nóvember Hvernig í ósköpunum enduðum við hér? - 2. þáttur: Ósköpin Nýrri heimsstyrjöld á Kóreuskaga er afstýrt en í staðinn færist kalda stríðið yfir á aðrar víglínur. Og ein þeirra liggur þvert í gegnum Reykjavík. Haukur Ingvarsson, lektor í hagnýtri menningarmiðlun, er gestur Vals Gunnarssonar að þessu sinni.

  • #1519
    Friday · 1 hr 50 min

    Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 47

    Föstudagur 20. nóvember Vikuskammtur: Vika 47 Þau koma að Rauða borðinu, Salma Björk Önnudóttir, formaður Ungliðahreyfingar Miðflokksins, Anna Þóra Björnsdóttir aka Sjáðanna, kaupkona og uppistandari, Steinunn Ólína Hafliðadóttir myndlistarkona, Þrándur Þórarinsson málari og Guðmundur Hrafn Arngrímsson landslagsarkitekt og ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkenndust af kossum, flokkaflakki, leiðtogafundum, deilum og lokun rafmagns.

  • #1517
    November 19 · 5 hr 23 min

    Rauða borðið 19. nóv - Evrópa, þrír pólar, lögfræði, trans, háskólar, bíó, Balí og ópera

    Fimmtudagur 19. nóvember Evrópa, þrír pólar, lögfræði, trans, háskólar, bíó, Balí og ópera Eiríkur Bergmann prófessor ræðir við Gunnar Smára um áhrif af kosningaósigur Trump og MAGA-hreyfingarinnar á stjórnmál á Evrópu, ekki síst uppgang ysta hægrisins. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um fund þeirra Trumo, Xi og Putín. Voru þeir að skipta með sér heiminum? Gísli Tryggvason lögmaður ræðir lagaleg álitamál í fréttum líðandi stundar í samtali við Björn Þorláks. Kossar opinbe

  • #1516
    November 18 · 5 hr 33 min

    Rauða borðið 18. nóv - Öldrunarþjónusta, gervigreind, geðlæknir, trans, tónlist og Geir Ólafs

    Miðvikudagur 18. nóvember Öldrunarþjónusta, gervigreind, geðlæknir, trans, tónlist og Geir Ólafs Sigrún Huld Þorgrímsdóttir, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun, ræðir við Ásdísi Olsen um nýja hugsun í öldrunarþjónustu þar sem kærleikurinn er kjarninn og lífsgæði fólks leiðarljósið. Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur og Hanna Kristín Skaftadóttir dósent og fagstjóri forystu og gervigreindar á Háskólanum á Bifröst ræða við Gunnar Smára um gervigreind, einkum hvaða áhrif hún hefur á s

  • #1515
    November 18 · 1 hr 1 min

    Græna borðið 29. þáttur - Aktívismi unga fólksins

    Græna borðið 18. nóv. - Aktívismi unga fólksins Árum saman hafa ungir aktívistar látið heyra í sér, en hefur verið hlustað á þau? Við Græna borðið ræðum við allt frá loftslagsverkföllum til vindorkuvera á hálendinu - og framlag barna og ungmenna til að auka metnað stjórnmálafólks til að hugsa ekki bara í kjörtímabilum heldur áratugum. Ragnhildur Katla Jónsdóttir og Andrés Ingi Jónsson stýra Græna borðinu sem að þessu sinni er umkringt ungum umhverfisaktívistum. Gestir: Ida Karólína Harris, l

  • #1514
    November 17 · 4 hr 25 min

    Rauða borðið 17. nóv - Húsnæðiskrísa, dýravelferð, ADHD, stjúptengsl, Grettla og tónlist

    Þriðjudagur 17. nóvember Húsnæðiskrísa, dýravelferð, ADHD, stjúptengsl, Grettla og tónlist Fasteignamarkaðurinn er helfrosinn, bankar eru farnir að kaupa óseldar íbúðir af verktökum og merki um örþrifaráð í bransanum. Páll Heiðar Pálsson fasteignasali ræðir við Björn Þorláks. Rósa Líf Darradóttir læknir og formaður Samtaka um dýravelferð á Íslandi ræðir blóðmerarald í samtali við Björn Þorláks. Ásdís Olsen ræðir við Hrannar Björn Arnarson um ADHD. Valgerður Halldórsdóttir ræðir við Ásdísi Olsen

  • #1513
    November 16 · 4 hr 42 min

    Rauða borðið 16. nóv - Framsókn, yfirheyrsla, dánaraðstoð, hagspá og hernám

    Mánudagur 16. nóvember Framsókn, yfirheyrsla, dánaraðstoð, hagspá og hernám Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins er gestur Sigurjóns. Þau ræða um stjórnmál dagsins. Um Framsóknarflokkinn og eins gagnrýni hans á núverandi ríkisstjórn. Formaður Bændasamtakanna, Trausti Hjálmarsson, hefur verið gagnrýndur harðlega síðustu daga vegna ummæla hans og afstöðu til Stjörnugríss. Hafa margir sakað hann um að verja dýraníð. Björn Þorláks yfirheyrir formanninn. Skiptar skoðanir eru um dána

  • #1512
    November 16 · 53 min

    Manngildi - 4. þáttur: Þroskahjálp í 50 ár - Hvað hefur áunnist og hvað þarf að breytast?

    Mánudagur 16. nóvember Manngildi - 4. þáttur: Þroskahjálp í 50 ár - Hvað hefur áunnist og hvað þarf að breytast? Gestur Manngildis að þessu sinni er Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar. Í tilefni af 50 ára afmæli Þroskahjálpar ræðum við sögu samtakanna, réttindabaráttu fatlaðs fólks og stöðuna í íslensku samfélagi í dag. Við kynnumst einnig manninum á bak við formanninn, reynslu hans sem föður og því sem hefur drifið hann áfram í baráttunni fyrir jafnrétti og mann

  • #1511
    November 15 · 2 hr 15 min

    Synir Egils 15. nóv - Gervigreind og almenn heimska, biðlistar, efnahagskrísa og sveiflur í pólitík

    Sunnudagurinn 15. nóvember Synir Egils: Gervigreind og almenn heimska, biðlistar, efnahagskrísa og sveiflur í pólitíkinni Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma þau Ingibjörg Isaksen þingkona Framsóknar, Gísli Freyr Valdórsson hlaðvarpari og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og ræða helstu fréttir og stöðu mála í samfélaginu okkar og heiminum. Síðan kemur Ragnar Freyr Ingvarsson læknir og ræðir við okkur um biðlista í heilbrigðiskerfinu, áhrif á fól

  • #1510
    November 15 · 59 min

    Hvernig í ósköpunum enduðum við hér? - 1945: Núllstundin

    Sunnudagur 15. nóvember Hvernig í ósköpunum enduðum við hér? - 1945: Núllstundin Stríði lýkur og heimurinn byrjar upp á nýtt. Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur svarar því hvað gerist næst. „Hvernig í ósköpunum enduðum við hér?" er nýr þáttur á Samstöðinni. Veröldin virðist stundum vera að gliðna í sundur, en hvernig varð sú veröld sem við þekkjum til? Valur Gunnarsson sagnfræðingur fær til sín góða gesti og skoðar söguna frá seinni heimsstyrjöld, hvernig heimsmynd okkar mótaðist og hvað hef

  • #1508
    November 14 · 2 hr 28 min

    Rauða borðið - Helgi-spjall: Ómar Stefáns

    Laugardagur 14. nóvember Helgi-spjall: Ómar Stefáns Ómar Stefánsson myndlistarmaður, satanisti, galdramaður og guðspekingur segir frá lífi sínu og list, dauða sínum og öðru dundi.

  • #1509
    November 13 · 1 hr 39 min

    Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 46

    Föstudagur 13. nóvember Vikuskammtur: Vika 46 Þau koma að Rauða borðinu, Rósa Líf Darradóttir læknir og dýravinur, Grace Achieng stofnandi og framkvæmdastjóri House of Grace, Kjartan Orri Þórsson Miðausturlandafræðingur og Riitta Anne Maarit Kaipainen, viðskiptafræðingur og stjórnarkona hjá VG og VGR og ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkenndust af framhjáhaldi, njósnum, illri meðferð og snjókomu.

  • #1507
    November 12 · 4 hr 7 min

    Rauða borðið 12. nóv - Uppljóstrari, Grindavík, reynsluboltar, fyrirgefningin og kommúnulíf

    Fimmtudagur 12. nóvember Uppljóstrari, Grindavík, reynsluboltar, fyrirgefningin og kommúnulíf Einar Logi Pétursson dýra-aðgerðasinni segir Gunnari Smára frá því hvers vegna hann braust inn í svínabúið Stjörnugrís, hvað hann sá og hverju hann vill áorka með uppljóstrun sinni. Hvað segja Grindvíkingar þremur árum eftir hamfarirnar þegar uppkaupatilboð á húsnæði hafa verið kynnt? Björn Þorláks ræðir við Pál Val Björnsson. Sigurjón Magnússon fær til sín í fréttaspjall Steingerði Steinarsdóttur, Guð

Showing 1–20 of 116 episodes