Skip to content
Artwork for Auðnast
Health & FitnessMental HealthSociety & CultureRelationshipsBusinessManagement

Auðnast

Ghost Network®

Auðnast er hlaðvarp um heilsu, samskipti og menningu í vinnu og lífi.
Við ræðum það sem raunverulega mótar líðan fólks: tengsl, mörk, vald, ábyrgð, streitu, samskipti, tilfinningar og sálfræðilegt öryggi – bæði á vinnustað og í einkalífi.

Í hverjum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna, málefni sem spretta beint úr þeirra daglegu störfum í vinnuvernd, meðferð og ráðgjöf. Samtölin byggja á faglegri þekkingu, klínískri reynslu og rannsóknum – en líka á raunverulegum aðstæðum sem fólk þekkir úr eigin lífi.

Auðnast er fyrir þau sem vilja:
- skilja eigin líðan og samskipti betur
- takast á við krefjandi aðstæður af ábyrgð
- byggja heilbrigðari vinnustaði og tengsl
- sinna sjálfsvinnu með uppbyggilegum hætti

Ragnhildur er klínískur sálfræðingur, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd.
Hrefna Hugosdóttir er hjúkrunar- og fjölskyldufræðingur, sérfræðingur í vinnuvernd og sáttamiðlari.

Saman stofnuðu þær Auðnast árið 2014 með það að markmiði að efla heilsu, öryggi og velsæld fólks – með áherslu á sálfélagslegt öryggi, sjálfbærni og heilbrigð samskipti.

Play
  • 20 episodes
  • monthly
  • Avg 43 min
  • English
  • #33
    Yesterday · 33 min

    Erfið samskipti og áhrif þeirra

    Erfið samskipti eru ekki bara óþægileg heldur líka orkufrek. Við skoðum ólíkar útgáfur af erfiðum samskiptum og hvernig þau hafa áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Við rýnum í rannsóknir og kynnum gagnleg ráð þegar samskipti reyna á.

  • #32
    June 15 · 48 min

    Fjarvistir á vinnustað

    Fjarvistir eru ekki bara kostnaður. Þær eru skilaboð.Í þessum þætti skoðum við hvað fjarvistir og óheilbrigð viðvera geta sagt okkur um menningu, stjórnun og sálfélagslegt öryggi á vinnustaðnum. Við veltum því einnig fyrir okkur hvers vegna stærsta vandamálið er stundum ekki hverjir eru frá vinnu, heldur hverjir mæta og líður ekki vel.

  • #31
    May 13 · 54 min

    Þegar eitthvað vantar upp á - Um tómleika í nánum samböndum

    Þátturinn fjallar um þá tilfinningu sem mörg pör kannast við en fá tala opinskátt um: Að vera í sambandi þar sem allt virðist í lagi á yfirborðinu en samt ríkir fjarlægð og einmanaleiki. Við skoðum hvað gerist þegar nándin dofnar hægt og rólega, hvers vegna pör detta úr takti og hvernig daglegt álag, samskiptamynstur og óuppfylltar þarfir geta skapað fjarlægð. Við ræðum hvað rannsóknir segja um tengsl og öryggi í samböndum og hvað hjálpar pörum að finna taktinn á ný. Þátturinn er fyrir öll sem hafa einhvern tímann spurt sig: "Verður þetta bara svona?" og fyrir þau sem eru í vangaveltu um hvort þau séu að ganga í gegnum tímabundna fjarlægð í sambandinu eða hvort þau séu jafnvel komið á endastöð.

  • #30
    April 27 · 38 min

    Stjórnun í breytingum: Að leiða í gegnum óvissu og krefjandi tíma

    Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna hvernig stjórnendur geta leitt fólk í gegnum óvissu, breytingar og erfiða tíma. Þær skoða hvað gerist hjá fólki þegar tilfinningin um öryggi breytist, hvaða mistök stjórnendur gera gjarnan og hvað rannsóknir segja um traust, skýrleika, sýnileika og samkennd í stjórnun. Þátturinn er fyrir stjórnendur, mannauðsfólk og alla sem vilja skilja betur hvernig hægt er að skapa öryggi, halda utan um teymi og leiða á mannlegan hátt. Heimildir: Bakker & Demerouti: Job Demands-Resources Model Amy Edmondson: Psychological Safety, Harvard Business School, Dan Siegel: Interpersonal Neurobiology Brené Brown: Dare to Lead

  • #29
    March 24 · 44 min

    Þættinum hefur borist bréf: Álag, stjórnun og ábyrgð á vinnustað

    Í þessum þætti svörum við spurningum frá hlustendum um margvíslegar áskoranir á vinnustað. Við förum beint í það sem raunverulega mótar líðan og samskipti; kulnun, álag, stjórnun og ábyrgð. Við ræðum: Er kulnun stundum misskilin sem skortur á þrautseigju? Eru stjórnendur gerðir ábyrgir fyrir líðan starfsfólks? Hvers vegna eru konur ekki teknar jafn alvarlega í ágreiningi? Hvað á stjórnandi að gera þegar virðing fyrir starfsmanni hverfur? Heiðarlegur og einlægur þáttur um flókin mál.

  • #28
    February 23 · 44 min

    Einelti og óheilbrigð samskipti á vinnustað

    Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna um óheilbrigð samskipti og einelti á vinnustað, hvernig það verður til og í hvers konar starfsumhverfi það þrífst. Þær fara yfir muninn á ágreiningi og einelti, ræða valdaójafnvægi og mynstur í samskiptum og skoða hvaða þættir í menningu og stjórnun geta ýtt undir eða dregið úr áhættu. Að lokum fara þær yfir hvað er hægt að gera þegar mál koma upp og hvaða forvarnir Skipta mestu máli.

  • #27
    February 2 · 46 min

    Reiði – ógn eða leiðarvísir?

    Reiði er oft misskilin tilfinning bæði í einkalífi og starfi. Í þessum þætti kryfjum við reiðina og hvernig hún tengist mörkum, sjálfsvirðingu, valdaleysi og tengslum – og af hverju hún situr svona lengi í okkur. Við skoðum fræðin og hagnýt skref til að vinna með reiði á uppbyggilegan hátt. https://www.harrietlerner.com/ https://hbr.org/2013/11/emotional-agility https://drdansiegel.com/

  • #26
    January 27 · 49 min

    Hamingja í vinnu - Markmið eða óraunhæf krafa?

    Hvað þýðir hamingja í vinnu og ertu með raunhæfar væntingar um hamingju? Við skoðum bæði mannlega og fræðilega sjónarhornið og veltum því fyrir okkur hvort hamingja sé frekar orðin krafa en markmið. Við skoðum hvað vísindin segja og kynnum praktískt verkfæri bæði fyrir einstaklinga og stjórnendur. https://skemman.is/handle/1946/40537 https://www.mdpi.com/2076-3387/15/9/351

  • #25
    January 2 · 42 min

    Sjálfstraust

    Hvað er raunverulegt sjálfstraust? Í þessum þætti ræðum við hvað sjálfstraust er, hvernig það mótast og hvernig það getur birst í ólíkum myndum - bæði heilbrigðum og óheilbrigðum. Við skoðum sjálfstraust út frá sálfræðinni, tengslamyndun, fjölskyldumynstrum og lífeðlisfræðinni, með það að markmiði að hjálpa þér að þekkja sjálfstraustið þitt og efla það á heilbrigðan hátt.

  • #24
    Dec 5, 2025 · 40 min

    Allt sem þú þarft að vita fyrir aðventuna

    Í þessum þætti ætlum við að vera á ljúfu og léttu nótunum - Við förum yfir væntingar, tenglslamyndun og könnum hvers konar aðventutýpa þú ert. Að lokum förum yfir við nokkur atriði sem undirbúa taugkerfið þitt fyrir komandi vikur. Ef þu vilt gera aðventuna enn betri, hlustaðu þá á þennan þátt því hinn raunverulegi undirbúningur hefst með því að virkja sefkerfið.

  • #23
    Nov 27, 2025 · 50 min

    Ágreiningur - allt sem þú þarft að vita

    Ef þú vilt skilja ágreining þá er þetta þáttur fyrir þig. Við rýnum í hugtakið, skoðum hvers vegna hann vekur svona sterk viðbrögð og hvernig við getum farið úr forðun yfir í færni. Við ræðum ágreining í vinnu, parsamböndum, vináttu og upprunafjölskyldu og förum yfir hvað er algengast að fari úrskeiðis. Við fyllum á verkfærakassann með hagnýtum aðferðum - meðal annars hvernig er best að bregðast við óvæntum ágreiningi. Þátturinn er fyrir öll sem vilja eiga heiðarlegri, hlýlegri og skýrari samskipti – hvort sem er heima fyrir, í vinnu eða í mikilvægum samböndum.

  • #22
    Nov 5, 2025 · 46 min

    Hver er þinn fjölskylduarfur? Sagan sem mótar samböndin okkar

    Ef þú vilt skilja þig og þín sambönd betur – skaltu hlusta. Í þessum þætti skoðum við hvernig sagan okkar og tengsl í barnæsku hafa áhrif á samskipti og heilsu á fullorðinsárum. Við skoðum líka hvernig gömul mynstur frá fyrri kynslóðum og tilfinningakerfi fjölskyldunnar móta viðbrögð okkar og hafa áhrif bæði á ástarsambönd sem og önnur sambönd í þínu lífi. Lesefni: https://www.amazon.com/Love-Never-Enough-Misunderstandings-Relationship/dp/0060916044 https://www.thebowencenter.org/introduction-eight-concepts

  • #21
    Oct 24, 2025 · 44 min

    Frá innri ró til ytri áhrifa: sjö lykilþættir í leik og starfi

    Við förum yfir sjö hæfniþætti sem gott er að tileinka sér bæði í leik og starfi. Sum vilja kalla þetta mjúka hæfileika – okkur finnst þetta vera mikilvægu hæfileikarnir. Hlustaðu á þáttinn og kannaðu hvort það liggi sóknartækifæri hjá þér.

  • #20
    Oct 1, 2025 · 45 min

    Bjargráð: Lausnamiðuð, tilfinningaleg og minna gagnleg

    „Bjargráð eru ekki töfrabrögð – þau eru verkfæri. Í þesstum þætti förum við yfir tilfinningamiðuð, lausnamiðuð og minna gagnleg bjargráð, og tölum heiðarlega um það hvernig kynslóðararfurinn og karaktereinkenni hafa áhrif.

  • #19
    Sep 9, 2025 · 47 min

    Sálfélagslegt öryggi á vinnustað

    Hvað þarf til þess að fólki líði vel á vinnustað? Kannski er það ekki bara jógasalur eða hópefli heldur grunnstoðir í skipulagi og vel upplýstir stjórnendur. Við tölum um það sem Auðnast stendur fyrir alla daga: Sálfélagslegt öryggi. Lesefni sem við mælum með:   https://bmcpublichealth.biomedcentral.com/articles/10.1186/s12889-023-16246-x?utm

  • #18
    Sep 5, 2025 · 41 min

    Tilfinningagreind

    Við ræðum hvað tilfinningagreind er út frá mismunandi sjónarhornum og hvernig við getum verið misgóð í henni eftir því í hvaða hlutverkum við sinnum. Við skoðum líka mat á eigin tilfinningagreind og hvernig við getum eflt hana í daglegu lífi. Hlustaðu og vertu í takt við tilfinningar þínar!

  • #17
    Jul 27, 2025 · 39 min

    Stöðutékk - á þér...

    Við ræðum einfaldar leiðir til að taka stöðu á sér persónulega og hvers vegna við erum líkleg til þess að festast í sama mynstrinu aftur og aftur. Við skoðum vanabrautir og hvernig sjálfsmildi getur varðað veginn í átt að farsælli breytingu. Það er að segja ef það er eitthvað sem þú vilt breyta. https://www.youtube.com/watch?v=hiiEeMN7vbQ – Carol dweck https://self-compassion.org/wp-content/uploads/2022/08/PsychReviewInPress.pdf https://www.thebowencenter.org/multigenerational-transmission-process

  • #16
    Jul 16, 2025 · 29 min

    Sumarfrí sem streituvaldur

    Við ræðum hvers vegna sumarfrí er stundum streituvaldur bæði út frá starfshlutverkinu en ekki síður út frá fjölskyldulífinu. Við skoðum líka fjögur gagnleg ráð sem geta nýst þér og þínum. https://hrreview.co.uk/har-news/wellbeing-news/majority-of-working-brits-feel-pressure-to-check-company-emails-while-on-holiday/371705? https://www.sciencedaily.com/releases/2018/08/180810091553.htm?utm_source

  • #15
    May 27, 2025 · 28 min

    Að vinna með einhverjum sem þér líkar ekki við.

    Í þessum þætti förum við yfir reynslu sem mörg þekkja en fá kannski ræða opinskátt. Hvað gerum við þegar okkur líkar ekki vel við samstarfsfélaga. Við köfum beint í kjarnann, reynum að skilja og skoða þær tilfinningar sem skjóta upp kollinum þegar okkur finnst einhver pirrandi, ekki starfi sínu vaxinn eða bara leiðinlegur. Greinar sem við mælum með: https://www.frontiersin.org/journals/aging-neuroscience/articles/10.3389/fnagi.2016.00074/full

Showing 1–20 of 20 episodes