Skip to content
Artwork for Tilveran
Health & FitnessMental Health

Tilveran

Kristborg Bóel Steindórsdóttir

Þetta verður allt í góðu, við finnum út úr þessu saman!

Tilveran er hlaðvarp fyrir miðaldra konur í tilvistarkreppu! Sjálf hætti ég að skilja lífið fyrir nokkrum árum og í stað þess að ráða mér hreinlega aðstoðarmanneskju ákvað ég að taka völdin í mínar hendur og stofna hlaðvarp þar sem gæti rætt við einstaklinga sem ég lít upp til og búa yfir reynslu eða vitneskju sem ég veit að mun nýtast mér og okkur öllum.

Play
  • 20 episodes
  • Avg 1 hr 8 min
  • Icelandic
  • S1 · E30
    May 27 · 1 hr 11 min

    „Ég ætla að opna mínar eigin sultukrukkur í framtíðinni“

    Í þessum þætti fékk ég sálfræðinginn og heilsugúrúinn Röggu Nagla til þess að ræða við mig um hvað best væri að gera til þess að koma sér á beinu brautina í hreyfingu og næringu. Við ræddum einnig um stórborgarást hennar, æskuárin og ýmislegt fleira.

  • S1 · E29
    May 20 · 1 hr 3 min

    Hæ, Ási hérna!

    Í þessum þætti fékk ég Ása Guðna til þess að ræða við mig um allt sprellið, föðurhlutverkið, bróðurmissinn, ást sína á Vopnafirði og sjómennskuna sem togar hann alltaf aftur til sín. Þátturinn er í boði Venju.

  • S1 · E28
    May 13 · 1 hr 6 min

    Hugarheimur matarfíkils í leit að bata

    Í þessum þætti fékk ég Láru Kristínu Pedersen til þess að tala við mig um áralanga baráttu sína við matarfíkn og leið sína að bata. Þátturinn er í boði Venju.

  • S1 · E27
    May 5 · 54 min

    Þekkir þú Endó og Adenó?

    Í þessum þætti fékk ég Karen Ösp Friðriksdóttur til þess að tala við mig um Endómetríósu, krónískan bólgu- og verkjasjúkdómu sem hefur áhrif á milljónir kvenna um allan heim. Þátturinn er í boði Venju og sjallforritsins Íslenskar krossgátur.

  • S1 · E26
    April 29 · 1 hr 9 min

    Þegar dauðastundin nálgast

    Í þessum þætti fékk ég Alexandreu Rán Syen, hjúkrunarnema á líknardeild, til þess að tala við mig um starf sitt og hvað það er sem gerist síðustu sólarhringana í lífi einstaklinga. Þátturinn er í boði Venju.

  • S1 · E25
    April 22 · 1 hr 9 min

    „Ég hefði átt að trúa eigin tilfinningum“

    Í þessum þætti fékk ég listakonuna Helenu Reynis til þess að tala við mig um listamannalífið, hvaðan hún fær innblástur, hvernig hún kemur sér að verki þegar hún nennir því ekki, andlegu ofbeldi sem hún varð fyrir af hendi fyrrum kærasta og nýlegum fósturmissi. Þátturinn er í boði Venju.

  • S1 · E24
    April 15 · 1 hr 3 min

    „Ætlar þú að vera fórnarlamb aðstæðna eða taka ábyrgð?“

    Í þessum þætti fékk ég Ólöfu Helgu Pálsdóttur, körfuboltakonu og Grindvíking með meiru, til þess að ræða við mig um körfuboltaferilinn, brjóstakrabbameinið, skilnaðinn og hvernig það var að þurfa að yfirgefa sinni heimabæ eftir eldumbrot. Einnig ræddum við sjálfseflingu og mikilvægi þess að verða ekki fórnarlamb aðstæðna.

  • S1 · E23
    April 8 · 1 hr 1 min

    „Mikill léttir að fá Bipolar-greininguna “

    Í þessum þætti fékk ég Anítu Ósk Georgsdóttur til þess að ræða við mig um Bipolar-greininguna og hvernig henni hefur tekist að fóta sig í lífinu á ný. Aníta Ósk heldur úti samfélagsmiðlinum Hennar heimur á Instagram og TikTok þar sem hún deilir sinni reynslu.

  • S1 · E22
    March 18 · 1 hr 28 min

    „Var alla tíð harðákveðin í því að lifa ekki A4 lífi“

    Í þessum þætti fékk ég Ástu Hafþórsdóttur, leikgervahönnuð, til þess að ræða við mig um bransann hérlendis og erlendis, ævintýraþrána sem alltaf hefur blundað í henni og því þegar henni tókst að breyta kerfinu og verða fyrsta einstæða konan hérlendis til þess að gangast undir frjósemismeðferð.

  • S1 · E21
    March 11 · 1 hr 13 min

    „Mig langar að skilja eftir mig jákvæð fótspor“

    Í þessum þætti fékk ég Ásthildi Ómaríudóttur, eiganda og framkvæmdastýru framleiðslufyrirtækisins Míósak Multimedia, til þess að ræða við mig um ADHD konur, útvíkkun þægindahringsins, jákvæð líkamsímynd, neikvæð áhrif áfengis, og mikilvægi þess að halda uppi jákvæðri orku.

  • S1 · E19
    February 25 · 1 hr 15 min

    „Meðvirkni verður að mestu öll til fyrir tíu ára aldur“

    Í þessum þætti fékk ég Valdimar Þór Svavarsson, eiganda ráðgjafaþjónustunnar Fyrsta skrefið, til þess að ræða við mig um hinar margslungnu hliðar meðvirkni. Valdimar heldur einnig úti hinu vinsæla hlaðvarpi Meðvirknipodcastið.

  • S1 · E18
    February 18 · 1 hr 17 min

    „Ekki láta óttann við það óþekkta stoppa þig“

    Í þessum þætti fékk ég Bjargeyju Ingólfsdóttur, Yin Yoga kennara og fararstjóra, til þess að tala við mig um þriðju vaktina, hugræna byrði, heilsubrestinn, tækifæri breytingaskeiðsins, nýtt upphaf, tvíkynhneigð og hinn óútreiknanlega íslenska deitmarkað.

  • S1 · E17
    February 11 · 1 hr 6 min

    „Systir mín var myrt“

    Í þessum þætti fékk ég Ragnheiði M Kristjónsdóttur, markaðs- og kynningarstjóra, til þess að tala við mig um morðið á Áslaugu Perlu systur hennar, foreldramissinn, dauðahræðsluna og baráttuna við matarfíknina.

  • S1 · E15
    January 28 · 1 hr 15 min

    „Ég er með þetta lucky girl syndrome“

    Í þessum þætti fékk ég Írisi Líf Stefánsdóttur, eiganda Accounta bókhaldsþjónustu, til þess að ræða við mig um hugtakið Digital nomad, lucky girl syndromið sem hún segir elta sig, fjáhagslegt frelsi, nískuna og mikilvægi sjálfstrausts.

  • January 21 · 1 hr 2 min

    „ Það eru forréttindi að fá að vera til“

    Í þessum þætti fékk ég Olgu Björt Þórðardóttur, fjölmiðlakonu og ljósmyndara, til þess að tala um sína áfallasögu, aktivisma, meðvirkni, samskipti og mikilvægi þess að byggja sér upp gott tengslanet.

  • S1 · E13
    January 14 · 1 hr 1 min

    „Ég er klassísk ADHD stelpa“

    Í þessum þætti fékk ég Vigdísi Diljá Óskarsdóttur, stjórnanda samskipta- og samfélagsmála hjá Alcoa Fjarðaáli, til að tala við mig um hvernig það er að vera klassísk ADHD-stelpa, álheiminn, starfsferilinn, samfélagsmiðlana, móðurhlutverkið og hversu gott það er að búa á landsbyggðinni.

  • S1 · E12
    Dec 17, 2025 · 1 hr 8 min

    „Ég hef sótt öll mín tækifæri sjálf“

    Í þessum þætti fékk ég Berglindi Guðmundsdóttur, hjúkrunarfræðing, markþjálfa og gusumeistara, til þess að tala við mig um tækifærin, alla framtakssemima, breytingaskeiðið, veikindi foreldra, gjaldþrotið, ferðalögin og nýjasta hluta starfsferilsins, stjórnmálin. Berglind heldur úti hinum vinsæla instagramreikning, Lífsgleðinni.

  • S1 · E11
    Dec 10, 2025 · 1 hr 4 min

    „Jólin eru fjallganga“

    Í þessum þætti fékk ég Hildi Eir Bolladóttur, sóknarprest í Akureyrarkirkju, til þess að ræða við mig um jól og sorg.

Showing 1–20 of 20 episodes