Skip to content
Artwork for Besta platan
MusicMusic CommentaryMusic History

Besta platan

Hljóðkirkjan

Þáttur þar sem bestu plötur hljómsveita og tónlistarfólks eru ræddar. Snæbjörn Ragnarsson og dr. Arnar Eggert Thoroddsen höfðu umsjón með þáttum #0001 - #0100. Haukur Viðar Alfreðsson og dr. Arnar hafa haft umsjón frá og með þætti #0101. Baldur Ragnarsson stýrir þættinum.

Play
  • 25 episodes
  • fortnightly
  • Avg 1 hr 19 min
  • Icelandic
Counted on this page — what you have heard stays on this device, so it is not something the list can be paged by.
  • #270
    March 6 · 1 hr 27 min

    #0270 Mastodon – Leviathan

    Atlanta-sveitin Mastodon þvertekur fyrir það að vera kölluð þungarokkssveit, en er þrátt fyrir það eftirlæti margra er kenna sig við metalinn. Við förum í saumana á þessu ferlíki í þætti vikunnar.

  • #269
    February 27 · 1 hr 23 min

    #0269 Spice Girls – Spice

    Trúir því einhver að einungis Bítlarnir skáka Spice Girls hvað ýmsan árangur í vinældalistaklifri varðar? Eftir miðjan tíunda áratuginn kom þessi stúlknasveit inn í poppheima sem stormsveipur og næstu ár voru undirlögð af æði sem aldrei hafði áður sést - nema kannski í tilfelli Bítlaæðisins. Hér verður farið yfir þessa hluti alla auk þess sem doktorinn stillir frumburði Kryddpíanna fram sem þeirra besta árangri á breiðskífusviðinu.

  • #268
    February 20 · 1 hr 42 min

    #0268 Pet Shop Boys – Behaviour

    Rafdúettinn Pet Shop Boys hefur selt meira en 100 milljón plötur á heimsvísu, en þeirra gjöfulasta tímabil var níundi áratugurinn. Þar var hins vegar ekki fyrr en árið 1990 sem þeir sendu frá sér sína bestu plötu, hina angurværu Behaviour.

  • #267
    February 13 · 1 hr 15 min

    #0267 Aerosmith – Toys in the Attic

    Aerosmith er ein algerasta rokksveit sem heimurinn hefur séð. Sukkið, melódíurnar, riffin, fötin, frægðarflug, niðurbrot og upprisa, þetta er allt þarna. Doktorinn telur bandið hafa toppað á þriðju plötu sinni, Toys in the Attic (1975), en félagar hans tóku þeirri niðurstöðu ekki þegjandi.

Showing 21–25 of 25 episodes