Skip to content
Artwork for Besta platan
MusicMusic CommentaryMusic History

Besta platan

Hljóðkirkjan

Þáttur þar sem bestu plötur hljómsveita og tónlistarfólks eru ræddar. Snæbjörn Ragnarsson og dr. Arnar Eggert Thoroddsen höfðu umsjón með þáttum #0001 - #0100. Haukur Viðar Alfreðsson og dr. Arnar hafa haft umsjón frá og með þætti #0101. Baldur Ragnarsson stýrir þættinum.

Play
  • 25 episodes
  • fortnightly
  • Avg 1 hr 19 min
  • Icelandic
Counted on this page — what you have heard stays on this device, so it is not something the list can be paged by.
  • #290
    Friday · 1 hr 18 min

    #0302 Neil Young - After The Gold Rush

    Það er gaman og gott að ganga á hólm við risana endrum og eins og hér er einn slíkur, maður sem slær hvergi af eftir meira en sextíu ár í bransanum. Neil Young er sólkerfi út af fyrir sig og að mörgu að huga eins og heyra má… Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.

  • #289
    October 9 · 53 min

    #0300 BP300: Yanni

    Alveg frá upphafi hefur bókstaflega RIGNT inn fyrirspurnum um það hvenær við ætlum eiginlega að taka fyrir gríska hjartaknúsarann Yanni. Nú er komið að því! Ef þið fáið ekki nóg af Bestu plötunni, verið þá með okkur á Patreon og fáið þátt í hverri viku!

  • #288
    September 25 · 1 hr 33 min

    #0298 Bonnie Tyler - Faster Than The Speed Of Night

    Bonnie heitin Tyler aflaði mikilla vinsælda á sinni tíð sökum kraftmikillar, rámrar raddar, sem þótti minna á sjálfan Rod Stewart. BP-teymið vottar þessari gegnheilu dívu virðingu sína í vönduðum þætti sem skæðasti sólmyrkvi gæti ekki unnið á. Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.

  • #287
    September 11 · 1 hr 21 min

    #0296 Todmobile – Todmobile

    Todmobile er með allra merkilegustu poppsveitum Íslandssögunnar, bræðingur sveitarinnar á straumum og stefnum sem á pappír áttu ekki að geta átt samleið gerðu það samt í meðförum þessa framsýna þríeykið. Toppi var náð á plötu númer tvö, samnefndri sveitinni. Eða hvað? Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.

  • #286
    August 28 · 1 hr 30 min

    #0294 Violent Femmes – Violent Femmes

    Eru til skemmtilegri, hressari, meira lífsfyllandi, brjálaðri, pönkaðri, hamingjusamari, hræðilegri, melódískari og hreint og beint sturlaðri frumburðir en fyrsta plata bandarísku þjóðlagapönksveitarinnar Violent Femmes? Varla… Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.

  • #285
    August 14 · 1 hr 16 min

    #0292 Gunnar Þórðarson (1945–2026)

    Fótspor, handbragð og hugsun meistara Gunnars Þórðarssonar liggur bókstaflega út um allt er kemur að íslenskri tónlistarmenningu. Við BP-liðar vottum honum hér virðingu okkar. Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.

  • #284
    July 31 · 2 hr 2 min

    #0290 The Doors – Strange Days

    Fáar rokksveitir í sögunni hafa verið jafn áhrifaríkar, dýrkaðar og umdeildar og The Doors. Þar hélt Jim Morrison nokkur um hljóðnema og lak kynþokkinn af hverri sellu hans og það strítt. Besta plata sveitarinnar er plata tvö, Strange Days, og er það doktorinn sem fer fram með það val og er það ekki nema sæmilega umdeilt.

  • #283
    July 17 · 1 hr 10 min

    #0288 Ariana Grande – Dangerous Woman

    Gleymið Adele, Sam Smith og Rihönnu. Þegar kemur að hreinræktuðum sönghæfileikum eru þessar poppstjörnur eins og kófdrukknir, trallandi fjósamenn á sveitaballi í samanburði við Ariönu Grande. Nei, þeir eru ekki margir poppararnir sem skáka henni á söngsviðinu. En hvernig er músíkin?

  • #282
    July 3 · 1 hr 34 min

    #0286 Van Halen – Van Halen

    Van Halen gerði út frá Kálfatjörníu og er ein algerasta rokksveit sögunnar. Það er allt þarna mætti segja, hæðir, lægðir, partístand, vitleysisgangur, linnulaus ranaímokstur og svo að sjálfsögðu trukkandi rokk og ról sem á fáa sína líka …

  • #281
    June 19 · 1 hr 24 min

    #0284 Avril Lavigne – Let Go

    Popppönkprinsessan Avril Lavigne toppaði sig tónlistarlega strax á fyrstu breiðskífunni, Let Go (2002). Áhrif hennar sem poppmenningaríkons eru mikil og farið verður í saumana á því öllu saman í brimafullum þætti…

  • #280
    June 5 · 1 hr 24 min

    #0282 Nýdönsk – Himnasending

    Popptónlist 9. áratugarins var af mörgum talin yfirborðskennd, einnota og vélræn. Það var því sannkölluð „himnasending“ að fá Nýdönsk fram á sjónarsviðið undir lok eitísins. Tónlistin var vönduð, listræn og leitandi. Grípandi án þess að vera eitthvað blöðrupopp. Fullorðna fólkið var mætt í partíið.

  • #279
    May 22 · 1 hr 29 min

    #0280 Faith No More – Angel Dust

    Ein merkasta jaðarþungarokkssveit allra tíma, Faith No More, er á borði Bestu plötunnar þessa vikuna. Sitt sýnist hverjum um uppsöfnuð afrek hennar og voru umræðurnar fróðlegar svo ekki sé meira sagt!

  • #278
    May 8 · 1 hr 14 min

    #0278 Angine de Poitrine – Vol. II

    Doppóttu míkrótónal-gosarnir í Angine de Poitrine voru óþekkt stærð í upphafi árs. Rúmum mánuði síðar voru þeir á allra vörum — og hæpið stendur enn yfir. En er eitthvað í þessu? Taktu þátt í umræðunni á Besta platan - Umræðuhópur. Styddu við Bestu plötuna, komdu í áskrift á Patreon og fáðu tvöfalt fleiri þætti.

  • #277
    May 1 · 51 min

    #0277 Frímínútur – Björgvin Halldórsson (1951–2026)

    Í þessum þætti heiðrum við minningu hins eina sanna Björgvins Halldórssonar sem varð bráðkvaddur á heimili sínu í Hafnarfirði þann 9. apríl síðastliðinn. Blessuð sé minning þessa risa íslenskrar dægurtónlistar.

  • #276
    April 24 · 1 hr 11 min

    #0276 Nick Drake – Pink Moon

    Nick Drake lést langt fyrir aldur fram, hafandi ekki hugmynd um þau áhrif sem stuttur tónlistarferill hans myndi hafa á fjölmargar kynslóðir á eftir honum. Þriðja og síðasta platan hans, Pink Moon frá 1972, er sú besta. Athugið að í þessum þætti er fjallað um sjálfsvíg. Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins á 1717.is.

  • #275
    April 17 · 1 hr 24 min

    #0275 Killing Joke – Night Time

    Killing Joke er ein ógurlegasta síðpönksveit sögunnar, algerlega einstök mætti segja, og áhrifarík fyrir allan peninginn. Að velja hina poppuðu „Night Time“ sem bestu plötuna mun strjúka einhverjum öfugt en gefum BP-liðum færi á að útskýra sitt mál (doktornum aðallega).

  • #274
    April 3 · 59 min

    #0274 Frímínútur – Tónleikatryllingur

    Það er hægt að hjakka endalaust í einhverjum plötum, en að þessu sinni ákváðu þáttastjórnendur að rifja upp bestu tónleika sem þeir hafa sótt. Þrír topp-5 listar og ekkert rugl. Gleðilega páska!

  • #273
    March 27 · 1 hr 13 min

    #0273 Lenny Kravitz – Mama Said

    Lenny Kravitz er ekki bara tónlistarmaður, hann er einslags fyrirbæri, menningarlegt skurðgoð, rokkið holdið klætt og bætið endilega við lýsingum eftir smekk. Hann toppaði hljóðversplötulega séð á annarri plötu sinni, Mama Said, en það má sosum deila um það val og það er nákvæmlega það sem við erum að fara að gera.

  • #272
    March 20 · 1 hr 36 min

    #0272 Phil Collins – No Jacket Required

    Platan No Jacket Required frá 1985 átti stóran þátt í því að gera Phil Collins að einni allra holdugustu poppskepnu 10. áratugarins. Hún er jafnframt sú besta frá Phil.

  • #271
    March 13 · 59 min

    #0271 Frímínútur – „Animal“ Andy

    Í þættinum um Wham!/George Michael bærðust vangaveltur um það hvort að eina sólóplata hins helmings dúettsins, Andrew Ridgeley (Son of Albert, 1990), væri mögulega það besta sem hafi komið frá Wham! meðlimi í sólóefnum. Ákveðið var, þá og þar, að gera rannsókn á málinu og hún skilaði sér í þessum þætti. Varúð: Farið inn á eigin ábyrgð.

Showing 1–20 of 25 episodes