
S2E11 | Andrea Magnúsdóttir - „Ef ég get það, geri ég það“
Fatahönnuðurinn, verslunareigandinn og hlaðvarpsstjórnandinn Andrea Magnúsdóttir, konan á bak við Andrea by Andrea, er gestur okkar í þessum þætti. Við förum yfir vegferðina frá fyrstu skrefum hennar í fatahönnun og eigin rekstri yfir í að byggja upp vörumerki sem er orðið nátengt hennar persónulega vörumerki. Við tölum um sköpunarkraftinn, frelsið sem hún þarf til að vinna, reksturinn á bak við fallega heiminn og hvað þarf til að skapa upplifun sem fær viðskiptavini til að koma aftur. Við ræðum líka þróunina í verslunum almennt, fast fashion, hönnunarstuld og minnkandi virðingu fyrir hönnun. Þá segir Andrea frá erfiðu tímabili í lífi sínu þar sem breytingaskeiðið hafði mikil áhrif á líðan hennar, sköpun og vinnu. Og að sjálfsögðu förum við í hraðaspurningar þar sem Andrea þarf meðal annars að velja á milli útlits og þæginda og þarf að svara hverjum hún myndi.... ríða, giftast eða drepa. Önnur umræðuefni þáttarins eru meðal annars: Vegferð Andreu í tísku, hönnun og eigin rekstri Munurinn á vörumerkinu Andrea og persónulega vörumerkinu hennar Verslun vs. netverslun og breytt kauphegðun viðskiptavina Heildarupplifun kúnnans og hvað fær fólk til að koma aftur Hvað flokkast raunverulega sem góð kaup — verð, gæði eða hversu mikið flíkin er notuð? Útlit vs. þægindi og sterkt auga Andreu fyrir fagurfræði Starfsfólkskúltúrinn og hugsunin á bak við góða þjónustu Fullkomnunarárátta, persónulegar áskoranir og lífið á bak við vörumerkið -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

