
transcript
show notes
Hvað ef sum þeirra UFO-fara sem sjást á himninum eru framleidd hér á jörðinni — í færanlegri stöð djúpt undir Atlantshafinu?
Ný nafnlaus frásögn, birt af reikningnum OVERCLASSIFIED, lýsir nítján ára starfi innan leynilegra verkefna: endurheimtum förum, lifandi verum, blendingum og tvöföldu skjalakerfi. Þar er einnig sagt frá annarri framleiðslustöð inni í fjallgarði og upplýsingum sem jafnvel forseti Bandaríkjanna á ekki að hafa fengið.
Ross Coulthart hefur vakið athygli á fullyrðingunum og tekið fram að þær séu óstaðfestar. En sagan á sér líka kunnuglegan hljóm: Árið 2023 lýsti nafnlaus 4chan-höfundur sambærilegri neðansjávarstöð sem smíðaði mannlaus för fyrir ákveðin verkefni.
Í þessum þætti Geimsýrunar skoðum við báðar frásagnirnar, bakgrunn þeirra, líkindin og muninn. Eru tveir einstaklingar að lýsa sama fyrirbærinu — eða er ný saga að byggjast á þeirri eldri?
Skoðum allt, trúum engu.





