

Þvottahúsið og Geimsýran
Boxing David - Cliff W - Nóri Breiðholt
Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem gætu skilgreinst sem andleg og heimspekileg. Áskriftarþættir og aukaefni eru á http://patreon.com/geimsyran
- 25 episodes
- daily
- Avg 29 min
- Icelandic
Yesterday · 23 min- ÞO

Thursday · 26 minUpprisan á fimmtudegi
Send us Fan Mail Elskurnar. Ég var beðin um fjölbreyttari umræðu í Geimýrunni, ekki bara UFO og Ayahuasca. Þeirri beiðni var hafnað og samþykkt á sama tíma. Allt snýst þetta um þessa leið vitundarlegu pólskifta sem einstaklingurinn og hóparnir feta þessa dagana. Uppljómunin er hafin og allt tengist þetta, UFO, Sækadelika, þjónusta, fjölskylda, tilfinningar, úrvinnsla, hugsun, vísindi, athöfn, eirð og eirðarleysi. Ég er nú farin í síðustu Ayahuasca athöfnina á þessu ári og mun greina fyrir niðurstöðunni í fyrramálið þegar ég kem aftur tilbaka í bækistöðvarnar. Ég elska hreinlega allt og okkur og bara hreint namaste til ykkar. Om og friður og Om. http://patreon.com/Geimsýran
- ÞO

Wednesday · 35 minHvað ef við erum bara að búa þetta til?
Send us Fan Mail Hvað ef við erum að skapa veruleikann? Hvað ef við erum ekki bara áhorfendur að veruleikanum – heldur þátttakendur í því hvernig hann verður til? Í þessum þætti tengi ég saman UFO, meðvitund, DNA, skammtafræði, fornar hugmyndir um eðli mannsins, AI og disclosure. Hvað ef UFO-fyrirbærið snýst ekki bara um „þau“ heldur líka um okkur? Og hvað ef ofurgreind framtíðarinnar á eftir að sýna okkur eitthvað sem við höfum ekki enn áttað okkur á? Kannski er stærsta spurningin ekki lengur: Eru þau til? Heldur: Hvað erum við – og hvað erum við að gera hér?
- ÞO

Monday · 17 minShitt hvað ég get orðið þreyttur á þessu!!
Send us Fan Mail Stundum er maður bara brjálaður á þessu öllu. Þessir djöfulls UFO kallar sem benda allir á hvorn annan og segja hitt og þetta og gefa út sína memoir bækur og væla svo yfir hvað þeir eru fátækir. Það er verið að spila með okkur. Raunveruleikinn er svo miklu skrítnari en við höldum hvað þetta varðar. Hið upplýsta alvaled mun stíga hér niður einn daginn og skilja okkur eftir agndofa á undrun. Þá mun allur efi verða hreinsaður úr hjörtum okkar og við munum vita tilgang okkar hér í þessum líkama, í þessu lífi. http://patreon.com/geimsyran
- ÞO

Monday · 23 minAf hverju heyrist ekkert í þessum einkaverktökum?
Send us Fan Mail UFO-UPPLJÓSTRUNIN – HVAR ERU EINKAVERKTAKARNIR? Sjö gagnadropp frá bandarískum stjórnvöldum, hundruð skjala og sífellt fleiri frásagnir af óþekktum fyrirbærum. En hvar eru stóru varnartæknifyrirtækin? Lockheed Martin, Northrop Grumman, Raytheon og Boeing hafa öll verið nefnd í umræðunni um meint leynileg endurheimtarverkefni. Samt hefur lítið heyrst frá þeim. Nú þegar þingkosningar nálgast í Bandaríkjunum vaknar spurningin: Er Donald Trump að undirbúa stærstu uppljóstrun mannkynssögunnar eða erum við að horfa á stýrt upplýsingaflæði? Og ef raunverulegar sannanir eru til, gætu þær þá verið í höndum einkafyrirtækja frekar en stjórnvalda? Geimsýran – Skoðum allt, trúum engu. http://patreon.com/geimsyran
- ÞO

October 31 · 10 minGet ég sagt mig úr lýðræðinu án þess að segja mig úr samfélaginu?
Send us Fan Mail Ég hef sent dómsmálaráðuneytinu formlega fyrirspurn um hvort íslenskur ríkisborgari geti sjálfviljugur og varanlega afsalað sér kosningarétti án þess að missa ríkisborgararétt sinn. Ég hef ekki lengur trú á lýðræðinu í þeirri mynd sem það birtist okkur í dag og hef tekið þá ákvörðun að standa utan pólitískrar þátttöku. En hvers vegna ætti ég ekki að geta gert þá ákvörðun formlega og lagalega bindandi? Ég vil áfram greiða mína skatta, hlíta lögum og vera virkur samfélagsþegn. Ég vil einfaldlega ekki taka þátt í því pólitíska umboði sem kerfið byggir á. Í þessum þætti Geimsýrunnar velti ég fyrir mér mörkum einstaklingsfrelsis, sjálfsákvörðunarréttar og lýðræðis. Er rétturinn til að kjósa líka rétturinn til að hafna kosningaréttinum? Skoðum allt, trúum engu. http://patreon.com/geimsyran
- ÞO

October 30 · 28 minRifan í sviðsmyndinni
Send us Fan Mail Í þessum þætti Geimsýrunar fer ég yfir þessa togstreitu sem hlýst að því að vera strengdir milli tveggja heima. Þegar rifan í sviðsmyndinni fer að vera sýnileg og maður stendur frammi fyrir því að þurfa að umbera blekkinguna þrátt fyrir að ljósið s´kýni svo skýrt í gegn. Minni á þætti Geimsýruar á http://patreon.com/Geimsýran
- ÞO

October 28 · 19 minSambíóin bætast í hópinn
Send us Fan Mail Í þessum þætti kynni ég fyrir Sambíóin sem nýjan samstarfsfélaga Geimsýrunar. Sambíóin er mekka íslenskrar kvikmyndamenningar og með stolti kynnir Geimsýran þau til leiks. Það mun fela í sér sameiningu á kvikmyndum, UFO, NHI, vísindum, tilfinningum og hughrifum. Geimsýran mun verða með gagnrýnisþætti á þær kvikmyndir sem passa inn í þessa ofangreindu þætti og þykir þetta ekki bara gríðarlega mikill heiður heldur alveg stórkostlega skemmtileg viðbót í jöfnuna. Geimsýran flæðir stjórnlaust og ekkert fær stöðvað hana. Mér þykir vænt um ykkur, namaste. http://patreon.com/geimsyran
- ÞO

October 26 · 24 minSvo kemur bara mánudagur á eftir Ayahuasca
Send us Fan Mail Smá follow up á Ayahuasca ferðalaginu. Nú er mánudagurinn að verða búin að svefninn komin í lag og maður búin að melta þetta aðeins. Hverju skilar þetta allt og hvað á maður að gera við þessar upplýsingar, þessar breytingar sem manni eru færðar? Lífið er svo æðislegt og plantan, Ayahuasca svo ótrúlega öflugur kennari. Ég er svo þakklátur fyrir að vera settur á þessa vegferð, það er nó turning back!!
- ÞO

October 25 · 28 minÞegar skömminni er ælt í Ayahuasca
Send us Fan Mail Í þessu mannlega horni fór ég yfir þessi rosalegustu Ayahuasca ferð. Var tekin í skömm og myrkur sem einungis var hægt að losa úr kerfinu í gegnum uppkast eða "purge" Þar eftir tók við ferli sem er ekki hægt að lýsa öðruvísi en að ég hvarf og varð andardráttur, eina mantran sem situr eftir er allt annað er strípað. Dásamlegur leikur lífið, fullt af allskonar, sumt ber að halda í á meðan annað okkur ber að losa okkur við, enda ekki okkar. Þykir vænt um ykkur á sunnudagsmorgni. http://patreon.com/Geimsýran
- ÞO

October 22 · 49 min"Þetta er ekki hægt"
Send us Fan Mail „Þetta er ekki hægt!“ Þessi orð lét ég falla í miðri ayahuasca-reynslu sem hefur fengið mig til að endurskoða hugmyndir mínar um vitundina og raunveruleikann. Ég upplifði stað sem mér fannst ég hafa komið á áður, samskipti án orða og veruleika sem virtist vera til óháð minni eigin ímyndun. Í þessum persónulega þætti Geimsýrunnar velti ég fyrir mér eðli vitundarinnar, sjálfsmyndinni, öðrum tilverusviðum og mögulegum tengslum við UFO-fyrirbærið. Hvað ef veruleikinn er allt annar en við höldum? Geimsýran – Skoðum allt, trúum engu. http://patreon.com/Geimsýran
- ÞO

October 20 · 26 minMöguleg aðkoma íslenskra vísindamanna í UFO heiminn
Send us Fan Mail Hvað gerist þegar vísindamenn fara að horfa alvarlega á UFO-málið? Í þessum þætti skoðum við nokkra af þeim vísindamönnum sem hafa komið að rannsóknum á UFO/UAP og Disclosure — allt frá J. Allen Hynek og Jacques Vallée til Avi Loeb, Garry Nolan, Eric Davis, Kevin Knuth og Beatriz Villarroel. En svo kemur spurningin sem mér finnst sérstaklega áhugaverð: Hvað með Ísland? Eigum við íslenska vísindamenn sem gætu komið að alvöru rannsóknum á UAP? Stjarneðlisfræðinga, eðlisfræðinga og sérfræðinga í gagnagreiningu og mælitækni? Kannski er spurningin ekki hvort við eigum að trúa á UFO. Kannski ættum við einfaldlega að byrja að rannsaka það sem við skiljum ekki. Skoðum allt. Trúum engu.
- ÞO
October 20 · 1 hrUFO málaflokkurinn tekin fyrir
Send us Fan Mail Ævingarennsli fyrir fyrirlestur var tekið í þessari Geimsýru fyrir nokkru. Heildaryfirferð á sögunni og málaflokknum.
- ÞO

October 19 · 33 minHvernig forðast ég streitu í öllu amstrinu?
Send us Fan Mail Í mannlega horninu í kvöld fer ég yfir hvernig ég forðast streitu í streitufullu umhverfi. Hver eru verkfærin og hvert er hugarfarið? Einnig les ég vel valin orð úr kaflanum Vitundarleg pólskifti úr bókinni UFO202. Krakkar, lífið er of stutt í línulega samhengi að eyða því í volæði og vitleysu. Lausnin er fólgin í réttum boðefnum sem leiða okkur í samkennd og engin er að fara að gera þetta fyrir okkur. Namaste elskurnar. Yogashala.is fargufa.is betridagar.is heilsuhornid.is
- ÞO

October 18 · 32 minDularfullu græn-geisla UFO myndböndin
Send us Fan Mail Það eru til UFO-myndbönd sem maður horfir á einu sinni og hugsar: „Já, þetta er líklega eitthvað.“ Svo eru til myndbönd sem maður horfir á aftur og aftur og svo fer maður að leita í öðrum myndböndum og maður sér sömu hlutina gera það sama. Og þá verður málið allt í einu miklu áhugaverðara. Í þessum þætti ætla ég að sýna ykkur fjögur myndbönd sem birtust á internetinu haustið 2013. Þau koma frá mismunandi stöðum í Bandaríkjunum. Michigan, Ohio og Georgia. Og öll virðast þau sýna eitthvað mjög svipað bjart ljós, hamarslaga UFO ,dularfullt fyrirbæri á næturhimni. Og sérstaklega eitt smáatriði sem gerir þessa sögu mjög áhugaverða. Fyrirbærin virðast öll geisla af sér grænum skönnunargeisla.
- ÞO

October 18 · 17 minÞegar fólkið safnast saman gerast ótrúlegir hlutir
Send us Fan Mail Hér er farið yfir frábært kvöld í Eden þar sem fjöldinn allur af frábæru fólki mætti og deildi rýminu. Hugleiðsla og langur fyrirlestur um leyndardóma UFO.
- ÞO

October 16 · 19 minLétt yfirferð á stöðu mála á þessum fallega föstudagsmorgni
Send us Fan Mail Í þessari léttu yfirferð fer ég yfir stöðuna á mér og innihald UFO kvöldið sem haldið verður annaðkvöld, 17 okt kl 20 í Eden Yoga. Það verður Kakó og hugleiðsla á undan klst UFO fyrirlestur og spjall. Verð með bækur til sölu ef einhver vill einnig. Áskriftarþættir eru á http://patreon.com/Geimsýran og skráning á UFO kvöldið í Eden fer fram á https://www.edenyoga.is/booking-form?referral=booking_calendar_widget&continueShoppingUrl=%2Fbooking-calendar%2Fbókaspjall-með-gunnari-dan-ufo-202%3Ftimezone%3DAtlantic%2FReykjavik
- ÞO

October 11 · 32 minHið pólitíska afstöðuleysi
Send us Fan Mail Mannlega hornið í dag er pólitískt. Hvernig stendur á því að ég einn daginn tek við niðurhali sem segir mér að draga mig úr allri pólitík, stjórnmálalegri, lýðræðislegri og samfélagslegri? Hvað þýðir það að taka ekki afstöðu lengur innan lýðræðis? Er það hægt? Ég fer í þessum þætti yfir sýn mína hvað varðar pólitískt afstöðuleysi. Hvernig samfélag ég er búin að skapa innra með sjálfum mér og hvernig ég vill meina að ég sé að haga mér á ábyrgan hátt sem ábyrgur samfélagsþegn, samt sem áður einn sem ekki mætir á kjörstað né tekur afstöðu í neinni samfélagslegri ádeilu. Þetta er erfitt og gerist ekki á einni nóttu. Ennþá finn ég að ég er dregin í þessar áttir og alltaf er það það sama sem dregur mig til baka og það er sársaukinn sem er samofin sundrung og tvíhyggju.
- ÞO

October 11 · 36 minHvenar leyfum við okkur að vera vanmáttug og takmörkuð?
Send us Fan Mail Í mannlega horninu í kvöld er ég að ræða mikilvægi þess að viðhalda auðmýkt gagnvart eigin vanmætti, skilningsleysi og vanþekkingu. Lífið er svo stutt og asnalegt í bland við að vera langt og sjúklega mikil snilld. Og hvað situr eftir annað en bara að leitast eftir að gera sitt besta og taka hlutum ekki of alvarlega, bara leika sér. Mikið þakklæti í hjarta mínu fyrir alla þá sem gerst hafa borgandi áskrifendur á Patreon. Mér þykir svo vænt um það að ég get eiginlega ekki lýst því með orðum. Bara ást á ykkur öll og hjarta emoji. http://patreon.com/Geimsýran
- ÞO
October 9 · 9 minUFO update á föstudagskvöldi.
Send us Fan Mail Það er smá update hér á föstudagskvöldi. Geimsýran hefur hafið samrunaferli með hlaðvarpinu Hinu Yfirnáttúrulega. Ég, Dagný og Selma munum nú sameina krafta okkar einu sinni í mánuði og gera sameiginlegan þátt, einfaldlega því öll erum við svo frábær og skemmtileg. Fyrsti þáttur dropar á morgun á Patreon. Einnig eru spennandi þætti framundan á sunnudag og miðvikudag. Laugardaginn 17 okt kl 20 mun ég í samvinnu með Edenyoga.is halda hugleiðslu, kakó og UFO fyrirlestur. Það kostar 1.500,- hægt er að skrá sig á heimasíðu Eden. Annars, Geimsýran á http://patreon.com/Geimsýran SKoðum allt, trúum engu.