Skip to content
Artwork for Þjóðmál

Þjóðmál

Þjóðmál

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Play
  • 39 episodes
  • a few times a week
  • Avg 1 hr 32 min
  • Icelandic
Counted on this page — what you have heard stays on this device, so it is not something the list can be paged by.
  • S1 · E452
    August 25 · 1 hr

    #452 – Kaffispjall með Stefáni Einari og Þórði – ESB mun vilja hagnaðinn af Landsvirkjun

    Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson mæta í líflegt samtal þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan um aðild að Evrópusambandinu og orkumálin eru í brennidepli. Við rifjum upp vel heppnað bjórkvöld Þjóðmála á Selfossi, fjöllum um eftirvæntinguna fyrir Þjóðfundi Þjóðmála á föstudaginn kemur, rýnum í Epic-stuðlana, beinum sjónum okkar að einkaviðtali Rúv við utanríkisráðherra nokkrum dögum fyrir kosningar og ósvöruðum spurningum um sjávarútvegsmál. Þá er rætt um grein Þórðar í Morgunblaðinu í morgun og þá staðreynd að orkumál hafa gleymst í umræðunni þó svo að vitað sé að ESB mun sækjast eftir íslenskri orku.

  • S1 · E451
    August 21 · 4 hr 36 min

    #451 – Maraþonþáttur IV – Epic útgáfa

    Fjórði maraþonþáttur Þjóðmála er mættur á allar helstu veitur og á Youtube. Gestir þáttarins eru Hörður Ægisson, Lárus Welding, Björt Ólafsdóttir, Örn Arnarson, Konráð S. Guðjónsson, Arnar Þór Stefánsson, Andrés Magnússon, Vilhjálmur Birgisson, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, Andrea Sigurðardóttir, Þórður heitinn Gunnarsson, Bjarni Benediktsson, Einar Sigurðsson, Stefán Einar Stefánsson, Ólöf Skaftadóttir og Kristín Gunnarsdóttir. Hér er um 4,5 klst. skemmtun fyrir alla þjóðina.

  • S1 · E450
    August 19 · 1 hr 8 min

    #450 – Kaffispjall á Te & kaffi með Alberti Jónssyni

    Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, ræðir um utanríkismál og mögulegar aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu í sérstökum aukaþætti Þjóðmála. Albert færir rök fyrir því að sérstaða Íslands útiloki í reynd aðild án þess að gengið sé á grundvallarhagsmuni þjóðarinnar. Í spjallinu er rýnt í þá óvissu sem fylgir því að hefja viðræður án skýrra markmiða, við ræðum um reynsla Norðmanna af sambærilegu ferli og greint er á milli varanlegra og tímabundinna undanþága. Albert útskýrir hvers vegna ESB mun vart gefa eftir í grundvallarreglum um ýmis atriði sem snúa að Íslandi auk þess sem rætt er um hvernig hátt hlutfall endurnýjanlegrar orku hér á landi skapar árekstra við loftslagsstefnu sambandsins. Þá er litið til sögulegs sjálfstæðis í átakamálum auk þess sem rætt er um það sem sumir vilja kalla „breytta heimsmynd“ og hvort að hún kalli á afdrifaríkar ákvarðanir af hálfu Íslands.

  • S1 · E449
    August 18 · 57 min

    #449 – Kaffispjall með Trausta Hjálmarssyni – Bændur eru búnir að kíkja í pakkann

    Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, mætir í efnismikið og upplýsandi spjall um stöðu og framtíð íslensks landbúnaðar. Trausti rýnir í nýútkomna skýrslu um afleiðingar mögulegrar ESB-aðildar Ísland og litlar væntingar til þess að Ísland fái undanþágur frá sameiginlegu landbúnaðarstefnu sambandsins. Hann svarar jafnframt gagnrýnisröddum sem telja samtökin teikna upp hræðslumynd auk þess að ræða hvort aðgangur að Evrópumarkaði gagnist íslenskum bændum í raun. Þá ræðir Trausti einnig um tækifærin í íslenskum landbúnaði, þá framþróun sem hefur átt sér stað og hverju búast megi við í framtíðinni, mikil vægi fæðuöryggis, kynslóðaskipti og nýliðun í greininni og margt fleira.

  • S1 · E448
    August 14 · 2 hr 20 min

    #448 – Helgarvaktin með Snorra Mássyni og Diljá Mist – Þjóðmál boða til þjóðfundar

    Snorri Másson og Diljá Mist Einarsdóttir mæta í líflegt spjall um heitustu málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Við ræðum um komandi viðburði Þjóðmála á Selfossi og í Háskólabíói, rýnt er í væntanlega stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og svartsýna spá AGS um að hallalaus fjárlög verði ekki að veruleika fyrr en árið 2031 — sem stangast á við bjartsýni forsætisráðherra um að hlutirnir stefni í rétta átt. Þá er rætt um ESB-atkvæðagreiðsluna, viðhorf ungs fólks til ESB, örvæntingu þeirra sem vilja ganga í ESB og fleira í þeim dúr. Loks eru fastir liðir á sínum stað; Hrós vikunnar, hraðaspurningar, bókameðmæli og nýr liður þar sem viðmælendur velja sér þjóðarleiðtoga til að taka með í frí. Við minnum síðan á miðasöluna á Þjóðfund Þjóðmála inn á Tix.

  • S1 · E447
    August 11 · 52 min

    #447 – Kaffispjall með Eddu Hermanns

    Edda Hermannsdóttir, forstjóri Apótekarans, fer yfir stóru stefnubreytinguna og endurmörkunina úr Lyf og heilsu yfir í Apótekarann, stafræna vegferð og hvernig ásýnd apóteka er að breytast í takt við erlenda strauma. Við ræðum líka krefjandi rekstrarumhverfi íslenskra apóteka. Edda ræðir jafnframt áhrif þess þegar ríkið stýrir álagningu á meðan launakostnaður hækkar, hvers vegna ný líftæknilyf breyta framlegðinni, hvernig séríslenskar mönnunarkröfur reyna á rekstur um allt land, jafnvægislistina á milli samfélagslega mikilvægrar heilbrigðisþjónustu og sjálfbærs atvinnurekstrar og margt fleira.

  • S1 · E446
    August 7 · 1 hr 38 min

    #446 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði – Er skaðinn skeður?

    Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir heitustu málin í skugga þess að almyrkvi á sól er framundan. Strákarnir rifja upp vel heppnað golfmót Þjóðmála sem fram fór í gær og bjórkvöld Þjóðmála um hábjartan dag í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Þá er rætt um sjálfsmörk þeirra sem telja að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið, villandi málflutning um tengingu sænsku krónunnar við evru, framleiðslu Rúv á efni fyrir Já til að sjá hreyfinguna, nýjar fylgismælingar og stöðuna í veðbönkum, vandræðalega aðdáun yfirmanns Maskínu á utanríkisráðherra og fleira. Við veltum því líka upp hvort að nú þegar sé búið að skaða samfélagið með því hvernig fulltrúar Viðreisnar og Samfylkingar hafa talað um atvinnulífið, hagkerfið, gjaldmiðilinn og fleira. Loks eru fastir liðir á sínum stað, hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira.

  • S1 · E445
    July 30 · 1 hr 38 min

    #445 – Brekkusöngurinn með Heiðari Guðjóns og Agnari Möller – Hægri menn eiga alltaf að vera bjartsýnir

    Heiðar Guðjónsson og Agnar Tómas Möller mæta í léttan en efnismikinn þátt fyrir verslunarmannahelgina. Við ræðum allt milli himins og jarðar, í bókstaflegri merkingu. Rætt er um komandi almyrkva og þar er átt við alvöru almyrkva en ekki hagkerfið sem núverandi ríkisstjórn ræður ekki við að stýra – þó það sé rætt að einhverju leyti líka. Við ræðum um það hvort að hægt sé að miðast við pylsuvísitöluna, um takmarkað fjármálalæsi þingmanns Samfylkingarinnar, sögu peninga og framtíð íslensku krónunnar, vaxandi verndarstefnu í alþjóðaviðskiptum, skatta og stærð ríkisvaldsins og margt fleira. Þá förum við yfir fasta liði, s.s. hrós vikunnar, útilegupælingar og hraðaspurningar þar sem meðal annars er spurt um bekkpressumet, olíuleit og bestu viðskiptaráðin.

  • S1 · E444
    July 28 · 54 min

    #444 – Kaffispjall með Adda í Gunnbjarnarholti

    Þórður Gunnarsson ræðir við Arnar Bjarna Eiríksson, bónda og athafnaskáld í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Arnar Bjarni varpar ljósi á áskoranir og tækifæri í íslenskum landbúnaði og deilir sýn sinni á nýsköpun í landbúnaði og rekstur hans auk mikilvægi þess íslenskar sveitir haldist í byggð. Rætt er um mögulegt aðlögunarferli að Evrópusambandinu og áhrif þess á íslenskan landbúnað, hver áhrifin af inngöngu í Evrópusambandið yrðu á hann, staðreyndir um áhrif innlendra matvæla á verðlag á Íslandi og margt fleira.

  • S1 · E443
    July 24 · 1 hr 58 min

    #443 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Erni Arnarsyni – Treystum þjóðinni, en samt ekki

    Sigríður Á. Andersen og Örn Arnarson fara yfir í heitustu málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Fjallað er um vandræði Þorgerðar Katrínar og upplýsingaóreiðu síðustu vikna, leyndarhyggjuna sem ríkir um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, meintar undanþágur hvað varðar losunarkvóta og skattahækkanir í gegnum regluverk sem þegar er byrjað að innleiða. Þá er fjallað um „verðlækkunarsumar“ ríkisstjórnarinnar sem virðist þó ekki slá á verðbólgu, fylgi flokkanna, peningahagfræði Dags B. Eggertssonar, arðgreiðslur ríkisfyrirtækja og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, t.d. hrós vikunnar, hraðaspurningar, útilegupælingar og fleira.

  • S1 · E442
    July 21 · 52 min

    #442 – Kaffispjall með Láru Herborgu – Ekkert óvænt í pakkanum sem margir vilja skoða

    Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður flutti áhugavert ávarp á upphafsfundi Áfram Ísland fyrr í þessum mánuði. Þar fjallaði hún meðal annars um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu út frá sjónarhorni lögfræðinnar og íslensku stjórnarfari. Í þætti Þjóðmála útskýrir hún nánar innihald ávarpsins og rökstyður vel á hvaða grunni hún byggir afstöðu sína gegn inngöngu Íslands í sambandið. Þá varpar hún ljósi á mikilvægi þess að halda ákvörðunarvaldinu heima, hvort raunhæft sé að fá varanlegar undanþágur fyrir sjávarútveg og landbúnað, hvað aðildarferlið hefur í för með sér fyrir venjulegan borgara, hvaða áhrif þetta ferli kann að hafa á samkeppnishæfni landsins og margt fleira.

  • S1 · E441
    July 17 · 1 hr 49 min

    #441 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Mjólk er góð (og ódýr)

    Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða stóra „mjólkurmálið“ og 60% reikningsskekkju varaborgarfulltrúa Viðreisnar, auk þess sem rýnt er í viðbrögð Þorgerðar Katrínar við fréttaflutningi af umræðum í hollenska þinginu. Við ræðum einnig um þau áhrif sem starfsmenn þingflokks Samfylkingar telja sig geta haft á löggjöf ESB með færslum á samfélagmiðlum, hvernig Epic stuðullinn er að þróast í aðdraganda kosninga, mikilvægi þess að ráða fyrir eigin auðlindum og margt fleira. Þá eru fastir liðir einnig á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, útilegupælingar, hraðaspurningar og fleira.

  • S1 · E440
    July 14 · 1 hr 7 min

    #440 – Kaffispjall við Sigurð Hannesson – Við getum verið bjartsýn fyrir framtíðinni

    Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ræðir um tækifærin og framtíðina hér á landi, hvernig hægt er að styðja helstu atvinnuvegi landsins enn frekar, hvað þarf til að bæta samkeppnishæfni Íslands í hörðu alþjóðlegu umhverfi, þörfina á því að taka stórar ákvarðanir sambærilegar þeim sem teknar voru áður til að efla hagsæld og lífsgæði hér á landi, hvernig alþjóðlegt viðskiptaumhverfi er að breytast og margt fleira. Þá er einnig rætt um viðhorf atvinnulífsins til aðildarviðræðna við Evrópusambandið og hvort aðild að sambandinu sé það sem ætti að vera í forgangi hjá okkur næstu 5-10 árin.

  • S1 · E439
    July 10 · 2 hr 3 min

    #439 – Helgarvaktin með Herði og Sólveigu Önnu – Sósíalisti í hlýju auðvaldssinna

    Hörður Ægisson og Sólveig Anna Jónsdóttir mæta á helgarvaktina og fara yfir stóru málin. Við ræðum um skeikula ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar, vaxandi andstöðu við hana og upphafsfund „Áfram Ísland“ þar sem Sólveig Anna situr í stjórn. Farið er yfir afgerandi viðbrögð Já-sinna, nýja skýrslu um lífskjör hér á landi, það óvænta bandalag sem myndast hefur á milli ólíkra aðila, umræðu á erlendum þjóðþingum sem utanríkisráðherra vill ekki láta fjalla um hér á landi og margt fleira þessu tengt. Þá er rætt um vaxandi líkur á því að forsendur kjarasamninga bresti í haust, ráðaleysi ráðamanna í efnahagsmálum, möguleg áhrif gervigreindar á láglaunastörf og fleira. Fastir liðir eins og hrós vikunnar, bókameðmæli og hraðaspurningar frá gestum Kringlukráarinnar eru einnig á sínum stað, þar sem gamlar deilur Harðar og Sólveigar eru rifjaðar upp.

  • S1 · E438
    July 7 · 1 hr 17 min

    #438 – Kaffispjall með Kristján Inga – Atvinnulífið þarf að hlaupa hraðar í gervigreindarkapphlaupinu

    Kristján Ingi Mikaelsson ræðir um það hvernig gervigreind er að umbylta viðskiptalífinu, hvernig stjórnendur þurfa að líta á gervigreind sem viðskiptalega stefnumótun og nýja tekjustrauma en ekki bara tækniverkefni, hvernig ströng regluvæðing hefur orðið til þess að Evrópa hefur dregist aftur úr Bandaríkjunum í tækniþróun, þann ótta sem kann að ríkja um atvinnumissi, hvað ungt fólk þarf að temja sér og margt fleira sem snýr að þessari hröðu tækniþróun sem nú eru að eiga sér stað.

  • S1 · E437
    July 3 · 1 hr 20 min

    #437 – Helgarvaktin með Bergþóri og Önnu Hrefnu – Bestu kveðjur vestur um haf

    Þórður Gunnarsson stýrir Helgarvaktinni að þessu sinni og fær til sín Bergþór Ólason og Önnu Hrefnu Ingimundardóttur til að fara yfir stóru málin. Við ræðum um 250 ára afmæli Bandaríkjanna, fylgi flokkanna hér á landi, kostnaðarsama styttingu vinnuvikunnar fyrir samfélagið, framtakið Áfram Ísland þar sem breiðfylking er mynduð um þá afstöðu að berja fólki jákvæðni í brjóst um sjálfstæði landsins, kjánaleg kynningarmyndbönd utanríkisráðherra, vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins og margt fleira. Þá eru fastir liðir eins og hrós vikunnar, hraðaspurningar og bókameðmæli að sjálfsögðu á sínum stað.

  • S1 · E436
    June 30 · 1 hr 12 min

    #436 – Kaffispjall með Birni Bjarnasyni – Þegar setja þarf hluti í samhengi

    Björn Bjarnason kann að setja hlutina í samhengi og það gerir hann reglulega hér í Þjóðmálum. Í þætti dagsins ræðir Björn um stöðuna í íslenskum stjórnmálum, villandi umræðu um ESB-umsóknina sem kosið verður um í haust, sögulegt samhengi við NATO-aðildina og EES-samninginn, hvort að breyting hafi orðið á alþjóðastjórnmálum eða utanríkisstefnu vestrænna ríkja og margt fleira.

  • S1 · E435
    June 26 · 2 hr 1 min

    #435 – Helgarvaktin með Andrési og Birgi Ármanns – Stærsta syndin í pólitík er að vera leiðinlegur

    Andrés Magnússon og Birgir Ármannsson rýna atburðarrás vikunnar. Við ræðum meðal annars um afsögn Keir Starmer í Bretlandi, sem kallar á spurningar um það hvort hann sé enn innblástur fyrir íslenska forsætisráðherrann og hvort að atburðarrásin sé með sambærilegum hætti hér á landi. Þá er rætt um nýjar kannanir, dökkar væntingar stjórnenda í atvinnulífinu, orðaleik forsætisráðherra um skattahækkanir, mótsagnakenndan stuðning við ferðaþjónustuna, ESB-umsókn ríkisstjórnarinnar og mýturnar sem haldið er á lofti í þeirri vegferð og margt fleira. Þá eru hraðaspurningar og hrós vikunnar á sínum stað auk þess sem gestirnir skella sér í útilegu.

  • S1 · E434
    June 23 · 55 min

    #434 – Kaffispjall – Gunnar Baldvinsson ræðir um íslenska lífeyriskerfið í samanburði við þau evrópsku

    Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins, ræðir lífeyriskerfið hér á landi í samanburði við það evrópska. Tilefnið er nýleg greining viðskiptatímaritsins The Economist þar sem fjallað er með afar gagnrýnum hætti á lífeyriskerfi ríkja á meginlandi Evrópu, sem eru og verða á næstu árum og áratugum í töluverðum vandræðum með sín lífeyriskerfi. Þá ræðum við einnig um mögulega upptöku evru og þá hver áhrifin kunna að vera á lífeyriskerfið hér á landi og um leið stöðu almennings, samkeppni við erlenda sjóða, stöðu ungs fólks sem fær fasteignalán hjá sjóðunum og margt fleira.

Showing 21–39 of 39 episodes