Rígurinn á milli kók og pepsí í ljósi rannsóknar Samkeppniseftirlitsins
Hvort er betra, kók eða pepsí? Þetta er ein af þessum spurningum sem sjálfsagt margir hafa skoðun á. Rígurinn á milli þessara sykruðu gossrykkja er langvinnur og sögulegur, bæði hér á Íslandi sem og annars staðar. Í áratugi hafa íslensku fyrirtækin sem framleiða þessa drykki verið á sitt hvorum pólnum í köldu stríði. Þetta eru Ölgerðin og fyrirtækið sem lengst af hét Vífilfell en heitir nú CCEP. Spurningin um þennan mikla ríg hefur komist óbeint í kastljósið á síðustu dögum eftir að Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá íslenska Pepsífyrirtækinu Ölgerðinni. Fjallað er um þennan sögulega ríg á milli framleiðanda Coca Cola og Pepsi á Íslandi og rannsókn Samkeppniseftirlisins á Ölgerðinni. Birt eru viðtöl við Andra Þór Guðmundsson, fyrrverandi forstjóra Ölgerðarinnar, Pál Gunnar Pálsson, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, og Önnu Regínu Jónsdóttur, forstjóra CCEP. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson