Skip to content
Artwork for Stílbrot
ArtsFashion & Beauty

Stílbrot

Maya & Andrea

Stílbrot er hlaðvarp þar sem tvær vinkonur til 25 ára með enn lengri bakgrunn úr tískubransanum leyfa hlustendum að skyggnast bakvið tjöldin. Farið er yfir tískuna og trendin, vináttuna, þráhyggjurnar og bransann sem þær lifa og hrærast í alla daga.

Þátturinn er unninn í samstarfi við:

Blue Lagoon Scincare
Vitamin Well
Mercedes Benz
Emmessís
GIGGÓ

Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Stúdíó og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu.
Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.

Play
  • 21 episodes
  • weekly
  • Avg 1 hr 3 min
  • Icelandic
Counted on this page — what you have heard stays on this device, so it is not something the list can be paged by.
  • S1 · E15
    Friday · 58 min

    #28 - Gerða Inshape, ríða-drepa-giftast, hormón og breytingarskeiðið

    Við fengum okkar allra bestu Gerðu Inshape í viðtal til okkar og þessi kona veit hvað hún syngur. Hún er íþróttafræðingur og besti kennari sem sögur fara af. Hún er mjög áhugasöm um breytingar sem konur fara í gegnum á breytingarskeiðinu og gefur okkur ómetanleg ráð og maður getur ekki annað en hlustað enda er viska hennar og forvitni ekkert nema guðs gjöf til okkar kvenna. Svo er hún bara svo góð og orka hennar smitandi. Maya þarf að svara ríða-drepa-giftast og enn og aftur eru Maya og Andrea ósammála. Harðsperrurnar á sínum stað eftir Maraþonið (10km) og viðurkennir Maya að hafa sjaldan vælt minna enda er það ekki til neins. Hraðaspurningar í boði Mercedes Benz en Gerða þarf að svara nokkrum vel völdum spurningum. Þátturinn er unninn í samstarfi við: SPAR Blue Lagoon Skin Science Vitamin Well Mercedes Benz GIGGÓ Emmessís Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson

  • S1 · E27
    August 21 · 45 min

    # 27 - Andrea er komin aftur, sofna með blautt hár, frumskógur samfélagsmiðla og ný spennandi vara!

    Andrea er mættust aftur og mikið var gott að fá hana til baka. Maya heldur áfram að vera dólgur og sofnar með blautt hár sem vakti spurningar um sveppi og myglu í kodda? Style Pro saunateppi frá Elko er kynnt og er Maya í miðju ferli að prufa og Andrea segir okkur frá sjóðheitri nýrri vöru frá Blue Lagoon skinscience. Hraðaspurningar og yfirheyrsla biðu Andreu sem sleppur ekki þó hún skrópi í einn þátt. SPAR Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Mercedes Benz GIGGÓ Emmessís Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson

  • S1 · E26
    August 14 · 1 hr 10 min

    #26 - Óvæntur gestastjórnandi, tískuvikan í CPH, Lindsey Clancy umræður og hraðaspurningar

    Andrea vildi ekki koma heim eftir tískuvikuna og við fengum enga aðra en Erlu hægri og vinstri hönd Andreu til að fylla í skarðið. Erla er fyndnasta kona landsins (kalt mat), hefur starfað lengur hjá Andreu en Andrea sjálf og hún veit hvað hún syngur. Förum yfir draumabíla, möguleika Erlu á aukastarfi sem hlæjó meistari á Giggó, inside intel um Andreu og afhverju hún þarf nesti ef hún hættir sér úr póstnúmeri 220. Lindsay Clancy málið er að tröllríða internetinu, hvar stendur þú? Þátturinn er unninn í samstarfi við: SPAR Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Mercedes Benz GIGGÓ Emmessís Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson

  • S1 · E23
    August 7 · 1 hr 4 min

    #25- Mættar eftir frí, hvað er í töskunum, 5 hlutir sem eru peningana virði & hvenær koma jólin?

    Maya & Andrea eru mættastar eftir frí og eru núna bara að bíða eftir jólunum. Hvað er í töskunum okkar og hvað er þess virði að eyða peningunum okkar í? Eru með glænýjan samstarfsaðila sem er SPAR og vá hvað við erum spenntar! Segjum frá SPAR og því flotta "concepti" í þættinum. Andrea spyr Mayu út í Segðu mér viðtalið við Viktoríu Hermanns og margt annað skemmtilegt rætt. Þátturinn er unninn í samstarfi við: SPAR Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Mercedes Benz GIGGÓ Emmessís Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson

  • S1 · E24
    July 3 · 1 hr 5 min

    #24 - Útíhátíðartískan, live shopping, snjallúr og Shark Hydro Glow Mask

    Síðasti þáttur Stílbrots fyrir sumarfrí. Við förum yfir tískuna fyrir komandi útihátíðir. Prufum Shark Hydro Glow mask úr Elko og ræðum kosti og galla snjallúra. Förum vel yfir live shopping sem er að tröllríða öllu og spurt er hvort við séum að fara í hring og vilja minni hraða og meira contact. Vara vikunnar er Shark Hydro Glow Mask úr Elsko. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Mercedes Benz Elko GIGGÓ Emmessís Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson

  • S1 · E23
    June 26 · 50 min

    #23 - Hildur Björns borgarstjóri, Beckham ádeilan, nær dauða en lífi & Dyson airwrap

    Við fáum til okkar nýkjörinn borgarstjóra Reykjarvíkur Hildi Björns og vá við erum helteknar af þessum flotta leiðtoga Reykjarvíkurborgar. Það má vera sæt og klár er niðurstaðan eftir þetta viðtal en við förum yfir að það þykir ekki sjálfsagt að hægt er að vera bæði að mati sumra. Maya segir frá "near death experience" sem hún varð fyrir tvisvar á stuttum tíma og er enn að jafna sig eftir. Vara vikunnar er Dyson Airwrap en Andrea umbreytir hári Mayu á met tíma með þessari töfra græju og Hildur borgarstjóri viðurkennir að hennar rútína og fagra hár eigi Dyson airwrap allt að þakka. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Mercedes Benz Optical Studio Emmessís Elko Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson

  • S1 · E22
    June 19 · 1 hr 16 min

    #22 - Álfrún Páls, HM treyjur, varstu að prumpa & er Maya ættleidd?

    Maya og Andrea klæðast HM treyjum og fara yfir með hverjum þær halda og hver er með flottustu treyjurnar. Álfrún Pálsdóttir fagstjóri almannatengsla á markaðssviði Íslandsstofu kemur í heimsókn og hefur frá miklu að segja. Við förum sérstaklega yfir ferilinn þegar hún var ritsjóri íslenska Glamour. Maya og Andrea taka varstu að prumpa? trendið og augljóslega vann Maya enda dulinn leikkona þar á ferð. Andrea biður Mayu afsökunar á framkomu sinni og Maya segir frá tímabilinu þar sem hún var sannfærð um að hún væri ættleidd. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Mercedes Benz Optical Studio Emmessís Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson

  • S1 · E21
    June 12 · 1 hr 9 min

    #21 - Tinna Aðalbjörns, hot or not, syngja vitlausan texta & Off Campus þráhyggja

    Tinna Aðalbjörns er Casting Director, flugfreyja, tískugellz, mamma, vaktmaður á Hlaðgerðarkoti og sölukona. Hún segir okkur frá ýmislegu skemmtilegu og mikið var gaman að fá hana til okkar. Við tökum taste test á Goofís ísinn frá Emmessís og tókum Tinnu í hot or not yfirheyrslu. Við förum yfir lög sem við syngjum vitlausan texta við og hlæjum mikið yfir því enda fáránlega fyndið. Maya fer yfir þráhyggjuna sem er Off Campus - halló hún er obsessed. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Mercedes Benz Optical Studio Emmessís Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson

  • S1 · E20
    June 5 · 1 hr 15 min

    #20 - Helgi Ómars, veislugleði, hot or not & sannleikurinn um Dorit úr RHOBH

    Í þessum þætti fá Andrea og Maya Helga Ómars í spjall. Helgi hefur frá svo mörgu skemmtilegu og áhugaverðu að segja en hann er margra titla maður. Markþjálfi, gusumeistari, tónheilari, jógakennari, ljósmyndari, áhrifavaldur svo einhverjir séu nefndir. Mælum svooooooo mikið með að hlusta á þennan meistara. Andrea fer vel yfir forsöguna að því afhverju Dorit endaði í RHOBH og það er allt frekar sorglegt ef við eigum að segja alveg eins og er. Þær fyrir yfir mjög skemmtilega heimsókn í Öskju þar sem þær sáu nýja alrafmagnaða GLC Mercedes Benz bílinn og Andrea tekur hot, not or jail á Mayu. Þær fara yfir veislugleði síðustu daga og ó hvað það er gaman í útskriftarveislum. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Mercedes Benz Optical Studio Emmessís Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson

  • S1 · E19
    May 29 · 1 hr 13 min

    #19 - Hot or not, Aldís Páls & RHOBH update

    Þáttur 5 í seríu 2. Við fáum Aldísi Páls ljósmyndara og verslunarstjóra Evu á Laugavegi í spjall og boy hefur hún frá mörgu skemmtilegu að segja. Andrea fer yfir skemmtilegar staðreyndir um RHOBH og áframhaldið á þeim. Maya er með tuðhornið á sínum stað og nú er farið yfir opnunartíma sundlauga og lokanir þeirra á sumrin. Er eitthvað meira pirrandi? Vara vikunnar er Sumarísinn frá Emmessís - guð minn góður hvað hann er góður!! Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Mercedes Benz Optical Studio Emmessís Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson

  • S1 · E18
    May 22 · 1 hr 3 min

    #18 - Trend fyrir tilefni, draumadagur, Maya 🐸 Andrea 🐈 og tuðhornið

    Þáttur 4 í seríu 2 Maya & Andrea fara yfir trendin fyrir öll tilefnin framundan eins og útskriftir og brúðkaup. Þær fara yfir Swatch x Ap maníuna sem er nýgengin yfir og fara aðeins yfir hvað gekk þar á. Maya fer í taste test og Andrea segir frá því þegar hún bað Chat að lýsa okkur sem dýrum og það má segja að Maya hafi ekki verið glöð með þær niðurstöður. Draumadagurinn er negldur niður og tuðhorn Mayu hækkar aðeins blóðþrýstinginn hjá henni. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Mercedes Benz Optical Studio Emmessís GIGGÓ Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.

  • S1 · E17
    May 15 · 1 hr 1 min

    #17 - "Carpool" með Önnu Margréti, Met gala, afbrýðisemi & hantaveiran

    Maya og Andrea fara í "carpool" með Önnu Margréti sem vinnur hjá Almannarómi við PR og marketing. Hún rekur sína einnig sína eigin stofu Altso og sérhæfir sig í almmanatengslum og vann lengi hjá H&M í Noregi og Svíþjóð við almmannatengsl. Hún hefur frá mörgu skemmtilegu að segja. Maya fer yfir nýja þætti sem hún er að horfa á og þær fara aðeins yfir Met gala. David Attenborough er 100 ára og má gera Lego. Hantaveiran aðeins rædd og er Benji Barnes Jeff Bezo?? Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Mercedes Benz Optical Studio Emmessís Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson

  • S1 · E16
    May 8 · 1 hr 4 min

    #16 - The Devil Wears Prada, Mother, dagbókarblæti & endalaus "viskubit"

    Þáttur 2 í seríu 2. Maya & Andrea fara yfir The Devil Wears Prada 2 myndina og markaðssetninguna á myndinni sem er svokölluð "multi-stack-branding" og er einstaklega áhugaverð. Þær fara yfir vöru vikunnar sem dásamlega varan BL+ Cleansing Balm sem var að koma á markað. Mother á tiktok er rædd - if you know, you know. Tuðhorn Mayju um sumarfríið endalausa í skólunum og Andrea ræðir dagbókarblæti sína og furðar sig á dagbókarleysi Mayu. Svo er mál málanna - öll "viskubitin" sem við þjáumst af en þau eru endalaus. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Mercedes Benz Nói Síríus Optical Studio Emmessís Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson

  • S1 · E10
    May 1 · 1 hr 9 min

    #15 - Anna Fríða, markaðsbrellur, kosningasvindl & afsláttarkóði

    Þá er hafin sería 2 af Stílbrot. Stílbrot fær sinn annan gest í settið og er það engin önnur en Anna Fríða Gísladóttir framkvæmdarstjóri markaðssviðs Nóa Síríus. Ótrúlega skemmtilegt að spjalla við hana um bransann og tísku. Maya segir frá þegar hún fann þýfi í garðinum og ásakar Andreu um að svindla í könnunum. Við förum yfir sögu markaðssmála og vel heppnaðar markaðsbrellur og eins nokkrar sem fóru illa. Spurning vikunnar á sínum stað. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Mercedes Benz Nói Síríus Optical Studio Emmessís Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sá Ylva Þórsdóttir Planman um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson

  • S1 · E14
    April 24 · 1 hr 9 min

    #14 - Elísabet Gunnars, MJ king of pop & facebook stadusar

    Maya & Andrea fá Elísabetu Gunnars í heimsókn sem segir okkur frá lífinu í útlöndum og sínum uppháldsflíkum meðal annars. Förum yfir sögu Michael Jackson og spurjum manst þú hvar þú varst þegar MJ dó? Förum yfir "hot take" áfram sem eru fermingarveislurnar góðu. Gamlir facebook stadusar rifjaðir upp og við spyrjum okkur hvað ætli hafi verið að manni?? Spurningar vikunnar á sínum stað. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Nói Síríus Optical Studio Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.

  • S1 · E11
    April 17 · 52 min

    #13 - 80's, Power dressing & overpackers

    Maya & Andrea fara yfir 80´ tískuna og trendin, tónlistina og kvikmyndirnar. Þær fara vel yfir power dressing og hvort maður fái öðruvísi þjónustu eftir því hvernig maður er klæddur. Fara yfir Bieberchella og heitar umræður um skemmtanagildi fermingarveislna. Einnig ber á góma ást Mayu á Grétari Örvars og símtalið heim til hans í den. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Nói Síríus Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.

  • S1 · E12
    April 10 · 51 min

    #12 "Coco Chanel, sumartískan & skyndihjálp"

    Maya og Andrea fara yfir sögu Coco Chanel sem hefur haft einna mest áhrif á tísku samtímans. Þær fara vel yfir sumartískuna og afhverju gulur er litur páskanna. Skyndihjálp ber á gómana og segja þær sögur af near death experience í Berlín. Vara vikunnar er Blue Lagoon skinscience augnserumið sem er einhver mesta snilldarvara í heimi að okkar mati. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Nói Síríus Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.

  • S1 · E10
    April 3 · 1 hr 5 min

    # 11 "Signý á Óskarnum, Rachel Zoe og útilegu wannabe"

    Stílbrot kynnir nýjan lið og fær fyrsta gestinn sinn í settið til sín en við munum af og til fá gesti til okkar til að ræða hinar ýmsu hliðar tískubransans. Fyrsti gesturinn okkar er hún Signý Björg en hún er ljósmyndari og stafrænn hönnuður sem hefur búið erlendis síðustu 20 ár og unnið fyrir stór stúdíó í gegnum tíðina. Hún hefur farið fjórum sinnum á Óskarinn og gefur okkur innsýn í þennan heim frá öðru sjónarhorni en við sjáum. Við fjöllum einnig um stílistann Rachel Zoe sem er þessa dagana að slá í gegn í RHOBH og förum yfir ferilinn hennar. Maya fer yfir útilegusögu sem endaði illa og þrá hennar að vera hlaupagella. Tölum meira um Kennedy og förum yfir þráhyggjur og slúður eins og venjulega. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Nói Síríus Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.

  • S1 · E10
    March 27 · 56 min

    #10 "Hippar, málshættir & maski"

    Andrea spyr Mayu út í ferilinn í London og spyr hana spurningu sem hún getur ekki svarað. Við tölum um hippatískuna og allt sem er svo fallegt við hana og það tímabil enda friðarsinnar sér á ferð. Förum yfir slúður í Hollywood og að sjálfsögðu eru þráhyggjur á sínum stað. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Nói Síríus Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.

  • S1 · E9
    March 20 · 1 hr 2 min

    #9 "Frú Vigdís, Óskarinn & Facebook grúbbur"

    Maya spyr Andreu út í brúðarkjóla sem hún hefur hannað og við heyrum skemmtilegar sögur í kringum þá og hennar eigin brúðarkjól. Við tölum um Frú Vigdísi og hversu þakklátar við erum að hafa alist upp með hana sem fyrirmynd og forseta Íslands. Förum að sjálfsögðu yfir klæðnaðinn hennar og glæsilegheit einnig. Mayu verður heitt í hamsi að ræða bílastæðamál miðbæjar RVK og farið er vel yfir tískuna á Óskarnum. Blæti Mayu fyrir Facebook grúbbum ber einnig á góma. Þátturinn er unninn í samstarfi við: Blue Lagoon Skincare Vitamin Well Nói Síríus Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu. Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.

Showing 1–20 of 21 episodes