
#136 - Sigursteinn óttast mest að konan hans fari holu í höggi
Sigursteinn Ingvar Rúnarson, betur þekktur sem Sir Spilar golf, mætti til okkar í Seinni níu. Hann ólst upp á golfvellinum hjá Golfklúbbnum Ós á Blönduósi og er í dag ein þekktasta YouTube-stjarna íslenska golfheimsins. Sigursteinn segir frá því hvernig myndböndin verða til og hvernig það er að taka upp efni á meðan leikið er með ókunnugum. Í þættinum komum við víða við. Sigursteinn segir okkur frá því þegar hann varð klúbbmeistari hjá La Cala á Spáni og velur einnig tvö draumaholl þar sem hárprúður kylfingur kemur við sögu. Sir kom líka með magnaða kraftröðun þar sem hann fer yfir það sem kylfingar ættu alls ekki að segja við Stebba Hilmars á golfhring. Svo ræddum við hvað Sigursteinn óttast mest, og svarið kom úr nokkuð óvæntri átt: að konan hans fari holu í höggi á undan honum. Logi tengdi sterkt við þá umræðu.


















