Skip to content
Artwork for Sama viðtalið um ESB

Sama viðtalið um ESB

RÚV Hlaðvörp

Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.
Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?

Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza
Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson
Grafík: Kolbrún Þóra Löve
Ljósmyndun: Ragnar Visage

Play
  • 25 episodes
  • Avg 23 min
  • Icelandic
Counted on this page — what you have heard stays on this device, so it is not something the list can be paged by.
  • August 28 · 34 min

    Baldvin og Patrekur gera allt upp með Jóhönnu Vigdísi og Birtu Líf

    Í lokaþætti Sama viðtalsins um ESB var farið yfir kosningabaráttuna og spáð í spilin fyrir framhaldið. Hvað stóð upp úr, hvað kom á óvart og hvernig hefur hreyfingunum gengið að vekja athygli á sínum málstað.Að þessu sinni tóku Baldvin og Patrekur saman viðtal við þær Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur, fréttakonu og Birtu Líf Ólafsdóttur, hlaðvarpsstjórnanda.

  • August 22 · 18 min

    Patrekur og Baldvin ræða um viðtölin við framkvæmdastjóra Samorku og SAF

    Hvaða áhrif, ef einhver, hefði innganga í ESB á ferðamennslu og orkuiðnaðinn á Íslandi? Þeir Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, ræddu það í Sama viðtalinu um ESB.Báðir lögðu þeir áherslu á mikilvægi EES samningsins og sögðu að óháð niðurstöðunni 29. ágúst ættu Íslendingar að sinna honum betur, m.a. með því að gæta hagsmuna sinna í Brussel.Eftir viðtölin ræddu Baldvin og Patrekur saman um það sem stóð upp úr. Meðal þess voru rafbílar frá Kína, vegabréf og óljósir spádómar um úrlsitin 29. ágúst.

  • August 22 · 24 min

    Patrekur ræðir við framkvæmdastjóra Samorku og SAF

    Hvaða áhrif, ef einhver, hefði innganga í ESB á ferðamennslu og orkuiðnaðinn á Íslandi? Þeir Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, ræddu það í Sama viðtalinu um ESB.Báðir lögðu þeir áherslu á mikilvægi EES samningsins og sögðu að óháð niðurstöðunni 29. ágúst ættu Íslendingar að sinna honum betur, m.a. með því að gæta hagsmuna sinna í Brussel.Rætt var um evruna, ástæður þess að atvinnulífið er á móti ESB, tolla og margt fleira.

  • August 22 · 27 min

    Baldvin ræðir við framkvæmdastjóra Samorku og SAF

    Hvaða áhrif, ef einhver, hefði innganga í ESB á ferðamennslu og orkuiðnaðinn á Íslandi? Þeir Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, ræddu það í Sama viðtalinu um ESB.Báðir lögðu þeir áherslu á mikilvægi EES samningsins og sögðu að óháð niðurstöðunni 29. ágúst ættu Íslendingar að sinna honum betur, m.a. með því að gæta hagsmuna sinna í Brussel.Rætt var um evruna, ástæður þess að atvinnulífið er á móti ESB, tolla og margt fleira.

  • August 15 · 19 min

    Patrekur og Baldvin ræða viðtölin við unga fulltrúa SJÁ og Áfram Ísland

    Hvaða skoðun hefur unga fólkið á mögulegri inngöngu Íslands í ESB og hvernig ætlar það að kjósa þann 29. ágúst? Samtökin Áfram Ísland, sem hvetja til þess að fólk segi nei, og SJÁ, sem hvetja til þess að fólk segi já, sendu sína fulltrúa í Sama viðtalið.Þau Anton Berg Sævarsson og Kristrún Ágústsdóttir ræddu fram og aftur um kosti og galla aðildar, hvað tekur við ef þjóðin segir já, vexti go verðbólgu og stöðu Íslands í alþjóðakerfinu. Þá var einnig rætt um umræðuna, falsfréttir og mikilvægi þess að kynna sér málið vel.Í þessum þætti fara Baldvin og Patrekur yfir það sem þeim fannst standa upp úr í viðtölunum.

  • August 15 · 24 min

    Sama viðtalið: Patrekur ræðir við unga fulltrúa SJÁ og Áfram Ísland

    Hvaða skoðun hefur unga fólkið á mögulegri inngöngu Íslands í ESB og hvernig ætlar það að kjósa þann 29. ágúst? Samtökin Áfram Ísland, sem hvetja til þess að fólk segi nei, og SJÁ, sem hvetja til þess að fólk segi já, sendu sína fulltrúa í Sama viðtalið.Þau Anton Berg Sævarsson og Kristrún Ágústsdóttir ræddu fram og aftur um kosti og galla aðildar, hvað tekur við ef þjóðin segir já, vexti go verðbólgu og stöðu Íslands í alþjóðakerfinu. Þá var einnig rætt um umræðuna, falsfréttir og mikilvægi þess að kynna sér málið vel.

  • August 15 · 22 min

    Sama viðtalið: Baldvin ræðir við unga fulltrúa Áfram Ísland og SJÁ

    Hvaða skoðun hefur unga fólkið á mögulegri inngöngu Íslands í ESB og hvernig ætlar það að kjósa þann 29. ágúst? Samtökin Áfram Ísland, sem hvetja til þess að fólk segi nei, og SJÁ, sem hvetja til þess að fólk segi já, sendu sína fulltrúa í Sama viðtalið.Þau Anton Berg Sævarsson og Kristrún Ágústsdóttir ræddu fram og aftur um kosti og galla aðildar, hvað tekur við ef þjóðin segir já, vexti go verðbólgu og stöðu Íslands í alþjóðakerfinu. Þá var einnig rætt um umræðuna, falsfréttir og mikilvægi þess að kynna sér málið vel.

  • August 8 · 23 min

    Baldvin og Patrekur ræða um krónur og evrur og vexti og verðbólgu

    Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og Stefanía Kolbrún Ásbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins eru ósammála um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB. Í viðtölunum við þau var einkum rætt um efnahagsmálin, vexti, verðbólgu og kosti og galla þess að vera með krónu eða evru.Eftir viðtölin ræddu Baldvin og Patrekur um það helsta sem kom fram í þeim, peninga, lán og ýmislegt fleira.

  • August 8 · 24 min

    Sama viðtalið: Patrekur ræðir um krónur og evrur við framkvæmdastjóra þingflokka Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks

    Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og Stefanía Kolbrún Ásbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins eru ósammála um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB. Í þættinum er einkum rætt um efnahagsmálin, vexti, verðbólgu og kosti og galla þess að vera með krónu eða evru.

  • August 8 · 27 min

    Sama viðtalið: Baldvin ræðir um krónur og evrur við framkvæmdastjóra þingflokka Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks

    Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og Stefanía Kolbrún Ásbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins eru ósammála um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB. Í þættinum er einkum rætt um efnahagsmálin, vexti, verðbólgu og kosti og galla þess að vera með krónu eða evru.

  • July 25 · 19 min

    Baldvin og Patrekur ræða viðtölin við framkvæmdastjóra SFS

    Eftir við tölin við Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra SFS, settust Baldvin og Patrekur niður að venju og ræddu um viðtölin. Hvernig mun íslenskum sjávarútvegi farnast fari svo að Ísland gangi í Evrópusambandið? Segja má að sjávarútvegurinn sé eitt stærsta einstaka hagsmunamál Íslands fari svo að gengið verði til viðræðna við sambandið. Í þættinum er rætt um úthlutun veiðiheimilda við Ísland, flökkustofna sem eilíf deila stendur um, erlendar fjárfestingar í íslenskum sjávarútvegi og ýmislegt fleira.

  • July 25 · 22 min

    Sama viðtalið: Patrekur ræðir um sjávarútveginn og ESB við Heiðrúnu Lind

    Hvernig mun íslenskum sjávarútvegi farnast fari svo að Ísland gangi í Evrópusambandið? Segja má að sjávarútvegurinn sé eitt stærsta einstaka hagsmunamál Íslands fari svo að gengið verði til viðræðna við sambandið. Í þættinum er rætt við Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra SFS, um úthlutun veiðiheimilda við Ísland, flökkustofna sem eilíf deila stendur um, erlendar fjárfestingar í íslenskum sjávarútvegi og ýmislegt fleira.

  • July 25 · 27 min

    Sama viðtalið: Baldvin ræðir við framkvæmdastjóra SFS um sjávarútveg og ESB

    Hvernig mun íslenskum sjávarútvegi farnast fari svo að Ísland gangi í Evrópusambandið? Segja má að sjávarútvegurinn sé eitt stærsta einstaka hagsmunamál Íslands fari svo að gengið verði til viðræðna við sambandið. Í þættinum er rætt við Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra SFS, um úthlutun veiðiheimilda við Ísland, flökkustofna sem eilíf deila stendur um, erlendar fjárfestingar í íslenskum sjávarútvegi og ýmislegt fleira.

  • July 18 · 18 min

    Hvað sögðu bændur? Baldvin og Patrekur ræða viðtölin við bændur um ESBð

    Eftir viðtölin við tvo bændur ræddu Baldvin og Patrekur sín á milli um það helsta sem kom þar fram. Í viðtölunum var m.a. rætt um hvaða breytingar verði í íslenskum landbúnaði ef Ísland gengur í Evrópusambandið? Bændurnir Steinþór Logi Arnarsson í Stórholti og Jóhanna Ösp Einarsdóttir frá Fremri Gufudal ræddu um þetta í þættinum. Hún vill segja já til að sjá en Steinþór telur að óvissa sem fylgi því að segja já í ágúst muni koma niður á bændum. Auk þess var rætt um niðurfellingu tolla, styrkjakerfið og innflutning lifandi dýra sem þau eru bæði mótfallin.

  • July 18 · 25 min

    Sama viðtalið: Patrekur ræðir við bændur um ESB

    Hvaða breytingar verða í íslenskum landbúnaði ef Ísland gengur í Evrópusambandið? Bændurnir Steinþór Logi Arnarsson í Stórholti og Jóhanna Ösp Einarsdóttir frá Fremri Gufudal ræddu um þetta í þættinum. Hún vill segja já til að sjá en Steinþór telur að óvissa sem fylgi því að segja já í ágúst muni koma niður á bændum. Auk þess var rætt um niðurfellingu tolla, styrkjakerfið og innflutning lifandi dýra sem þau eru bæði mótfallin.

  • July 18 · 27 min

    Sama viðtalið: Baldvin ræðir við bændur um ESB

    Hvaða breytingar verða í íslenskum landbúnaði ef Ísland gengur í Evrópusambandið? Bændurnir Steinþór Logi Arnarsson í Stórholti og Jóhanna Ösp Einarsdóttir frá Fremri Gufudal ræddu um þetta í þættinum. Hún vill segja já til að sjá en Steinþór telur að óvissa sem fylgi því að segja já í ágúst muni koma niður á bændum. Auk þess var rætt um niðurfellingu tolla, styrkjakerfið og innflutning lifandi dýra sem þau eru bæði mótfallin.

  • July 11 · 17 min

    Patrekur og Baldvin ræða um viðtölin við formann Evrópuhreyfingarinnar

    Baldvin og Patrekur ræða um viðtölin sem þeir tóku við Helgu Völu Helgadóttur, varaformann Evrópuhreyfingarinnar. Þar ræddi hún m.a. um verðlag og vexti, stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu og auðsyn þess að sjá saming sem þjóðin geti svo tekið afstöðu til.

  • July 11 · 23 min

    Sama viðtalið: Patrekur ræðir við formann Evrópuhreyfingarinnar

    Evrópuhreyfingin styður inngöngu Íslands í Evrópusambandið og hvetur þjóðina þess vegna til að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst. En hver eru helst rök þeirra fyrir inngöngu? Helga Vala Helgadóttir, varaformaður Evrópuhreyfingarinnar, ræðir m.a. um verðlag og vexti, stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu og auðsyn þess að sjá saming sem þjóðin geti svo tekið afstöðu til.

  • July 11 · 22 min

    Sama viðtalið: Baldvin ræðir við formann Evrópuhreyfingarinnar

    Evrópuhreyfingin styður inngöngu Íslands í Evrópusambandið og hvetur þjóðina þess vegna til að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst. En hver eru helst rök þeirra fyrir inngöngu? Helga Vala Helgadóttir, varaformaður Evrópuhreyfingarinnar, ræðir m.a. um verðlag og vexti, stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu og auðsyn þess að sjá saming sem þjóðin geti svo tekið afstöðu til.

  • July 3 · 17 min

    Patrekur og Baldvin ræða um viðtölin við formann Heimssýnar

    Eftir sama viðtalið við formann Heimssýnar ræddu Baldvin og Patrekur sín á milli um það sem bar hæst. Í viðtölunum ræddi hann m.a. um kostnað við umsókn, óvissuna sem henni fylgir, mögulegan evrópuher og ástæður fyrir því að aðild að ESB henti Íslandi illa.

Showing 1–20 of 25 episodes