Skip to content
Artwork for Popparasögur
MusicMusic HistoryMusic Interviews

Popparasögur

Vignir Egill Vigfússon

Umfjöllun um íslenska tónlist þar sem rætt er við tónlistarfólk og fjallað um hljómsveitir og tónlistarviðburði á Íslandi. 

Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is.

Play
  • 21 episodes
  • weekly
  • Avg 57 min
  • Icelandic
Counted on this page — what you have heard stays on this device, so it is not something the list can be paged by.
  • #25
    Tuesday · 1 hr 6 min

    #25 | Birgir Örn Steinarsson og lengsta lyftuferð í heimi með Bubba (seinni hluti)

    Í fyrri hluta viðtalsins við Birgi Örn Steinarsson, BiggaMaus, var farið yfir sögu Maus fyrstu tíu ár sveitarinnar. Biggi hélt þá til London og þar biðu hans ótrúleg ævintýri sem innihéldu alþjóðlega pródúsera og óvænta vináttu við meðlim í The Cure. En þrátt fyrir byrjun sem lofaði góðu náði sólóferillinn ekki þeim hæðum sem Biggi hafði vonað. Platan sem hann varði tveimur árum í að gera floppaði, hann flutti aftur til Íslands, tók þátt í stofnun tímaritsins Monitor og lenti í fjölmiðlastríði við Bubba Morthens sem átti eftir að hafa gríðarleg áhrif á feril hans. Eftir mörg ár þar sem ekkert hafði gerst hjá Bigga, ef frá eru taldir örfáir tónleikar með Maus, tók hann þá ákvörðun árið 2021 að fara aftur af stað. Fyrst kom eitt lag, svo annað og síðan heilt nýtt sólóverkefni. Hann fann nýja vinnuaðferð, nýtt fólk, nýtt frelsi og uppgötvaði að hann þurfti engan annan til að geta verið tónlistarmaður. Í seinni hluta viðtalsins ræðir Biggi um ævintýrið í London, íbúðina ótrúlegu sem hann fékk hjá gítarleikara The Cure, Id og erfiðu viðbrögðin við henni og Silvíu Nótt og ferðina til Los Angeles. Hann segir frá því hvernig hann fann aftur leiðina inn í tónlistina, endurvakningu sólóferilsins, stöðunni með Maus í dag, TikTok-ævintýrinu, nýju tónleikahugmyndinni Heima session og því að vera loksins orðinn algjörlega sjálfstæður tónlistarmaður. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

  • #24
    August 18 · 1 hr 9 min

    #24 | Birgir Örn Steinarsson og allt um hljómsveitina Maus (fyrri hluti)

    Birgir Örn Steinarsson, BiggiMaus, hefur lengi verið hluti af íslensku tónlistarlífi. Hann stofnaði hljómsveitina Maus sem ungur maður og fór með vinum sínum í gegnum Músíktilraunir, plötuútgáfur, tónleika og tilraunir erlendis. Hann fór líka í gegnum tímabil þar sem allt virtist ganga upp og svo önnur þar sem hljómsveitin og ferillinn voru nálægt því að gliðna í sundur. Í þessum fyrri hluta viðtalsins ræðir Biggi um feril hljómsveitarinnar Maus, pönkið sem hefur fylgt honum alla tíð, upphafið, allar plöturnar, vinsælustu lögin, pressuna sem fylgdi velgengninni, þegar þeir ákváðu að slíta samstarfi um sinn og þegar hann loks sagði upp vinnunni sinni og ákvað að hverfa til London. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

  • #23
    August 11 · 1 hr 35 min

    #23 | Birgir Nielsen og og trommurnar sem tóku hann alla leið á toppinn

    Trommuleikarinn Birgir Nielsen hefur átt langan og viðburðaríkan feril. Hljómsveitirnar hans eru til dæmis fjölmargar og má þar nefna Vini Vors og Blóma, Sælgætisgerðina, Land og syni, Klaufana og nú síðast Gosana frá Vestmannaeyjum. Hér á eftir fer Birgir yfir ferilinn, allt frá því að hann byrjaði að spila á trommur í Breiðholtinu, yfir í velgengnina með Vinum vors og blóma, óvænta innkomu í Land og syni og öll ævintýrin með þeim bæði hérlendis og erlendis og sunnudagskvöldin með Sælgætisgerðinni. Hann segir frá þjóðhátíðarlögunum, kántríævintýrinu með Klaufunum og ferðunum til Nashville, sólóverkefnunum sínum, tónlistarlífinu í Vestmannaeyjum, hvalahljóðum, Hljómey, Gosunum og hvað það er sem fær hann til að halda áfram að spila og skapa tónlist. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

  • #22
    July 28 · 54 min

    #22 | Einar Bárðarson og pælingar með verslunarmannahelgina 2026

    Nú er verslunarmannahelgin 2026 framundan og er vel hægt að færa rök fyrir því að sjaldan eða aldrei hafi verið jafn mikið í boði fyrir fólk sem vill njóta íslenskrar tónlistar þessa helgi. Sem fyrr eru fastir liðir á sínum stað, eins og Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, en nú virðist meira hafa verið lagt í aðrar hátíðir, sérstaklega hvað varðar tónlistardagskrá, og er Ein með öllu á Akureyri besta dæmið um það. Í þennan þátt mætir maður sem þekkir íslenskan tónlistarbransa mjög vel. Hann fer hér aðeins yfir þessa helgi, stöðuna á tónlistarviðburðum á Íslandi miðað við áður og hvernig þessi helgi, sem býður upp á flesta íslenska tónlistarviðburði, hefur þróast undanfarin ár. Maðurinn er Einar Bárðarson og fór spjallið fram í sveitasælu á Suðurlandi rétt fyrir þessa miklu tónlistarhelgi til þess að spá í spilin. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

  • #21
    July 21 · 1 hr 15 min

    #21 | Ágúst Þór Brynjarsson og undirbúningurinn fyrir Brekkusönginn á Þjóðhátíð í Eyjum

    Einn maður, einn gítar og þúsundir radda sem sameinast á Brekkunni á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Á yfirborðinu virðist Brekkusöngurinn einfaldur en á bak við þessa einu klukkustund á sviðinu liggja margir mánuðir af undirbúningi, greiningu og vinnu. Fyrir Ágúst Þór Brynjarsson, sem mun stýra sínum fyrsta Brekkusöng á Þjóðhátíð í sumar, er þetta ekki aðeins stærsta svið sem íslenskur tónlistarmaður getur stigið á, heldur afrakstur margra ára markvissrar vinnu. Frá fyrstu trúbadoragiggunum á Norðurlandi, Söngvakeppninni og tímanum með Færibandinu og Stuðlabandinu hefur hvert skref verið undirbúningur fyrir þessa klukkustund í Eyjum. En fæstir átta sig á vinnunni sem liggur að baki, greiningu á eldri Brekkusöngvum, endalausum æfingum, lagavalinu og fleiru. Í þessu viðtali ræðir Ágúst Þór um ferðalagið að Brekkusöngnum, hvernig hann undirbýr sig fyrir stærsta verkefni ferilsins, lærdóminn sem hann dró af Stuðlabandinu, þegar hann grét í langan tíma eftir Söngvakeppnina og hvers virði það er að taka af skarið. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

  • #20
    July 14 · 50 min

    #20 | Stuðlabandið og leiðin sem enginn sá fyrir

    Flestar hljómsveitir verða vinsælar eftir að lag frá þeim slær í gegn í útvarpi eða á streymisveitum. En Stuðlabandið fór aðra leið. Í stað þess að byggja ferilinn á útvarpsspilun og vinsælum lögum hefur hljómsveitin skapað sér sterkt orðspor sem ein allra besta sveitaballahljómsveit landsins. Frá fyrstu æfingum í bílskúr í Ölfusi, þar sem unga stráka dreymdi um það að verða eins og Skítamórall, SSSól og Sálin hans Jóns míns, hefur leiðin legið á stærstu svið landsins. Í dag er Stuðlabandið ein þekktasta hljómsveit þjóðarinnar og fastur liður á hátíðum eins og Þjóðhátíð, Lopapeysunni og Kótelettunni. En á bak við gleðina, sviðsljósið og stóru augnablikin er saga um metnað, þrautseigju og vinnusemi. Í þessu viðtali ræða þeir Marinó G. Lillendahl og Magnús Kjartan Eyjólfsson um ferðalagið frá bílskúrnum að stærstu hátíðum landsins, breytingar á sveitaballamenningunni, kraftinn í lifandi tónlist og hvernig bandið hélt áfram eftir að Magnús greindist með krabbamein árið 2024. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

  • #19
    July 7 · 54 min

    #19 | Bræðslan 2026 og endurkoma goðsagnakenndra hljómsveita

    Tónlistarhátíðin Bræðslan hefur verið haldin á Borgarfirði eystri síðan árið 2005 og fagnaði 20 ára afmæli á síðasta ári. Í dag er þetta orðin ein stærsta tónlistarhátíð landsins og jafnframt sú sem er erfiðast að fá miða á því aðeins eru tæplega eitt þúsund slíkir seldir á hverja hátíð. Á hátíðinni í ár, sem verður haldin laugardaginn 25. júlí, munu koma fram Ásgeir, Raven, Skandall, Greifarnir, Land og synir og Sólstrandargæjarnir. Auk þess verða margs konar viðburðir í bænum í vikunni fyrir Bræðsluna. Í þessum þætti verður rætt við Magna Ásgeirsson, heimamann og einn af stofnendum og skipuleggjendum Bræðslunnar, um hvernig hátíðin varð til, hvernig hún hefur þróast í gegnum árin og hvernig hún hefur haldið í sinn einstaka anda þrátt fyrir sívaxandi vinsældir. Við förum yfir undirbúninginn fyrir hátíðina í ár, hvernig dagskráin verður til og hvað þarf að gerast áður en fyrstu tónarnir hljóma í gömlu bræðslunni. Við rifjum upp eftirminnileg tónlistaratriði, ræðum áhrif Bræðslunnar á samfélagið á Borgarfirði eystri, lítum á dagskrá ársins og veltum fyrir okkur framtíð hátíðarinnar. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

  • #18
    June 30 · 1 hr 1 min

    #18 | Einar Björnsson og 40 ára ferðalag um íslenskan tónlistarbransa, frá sveitaböllum til Kótelettunnar

    Einar Björnsson hefur verið viðloðinn íslenskt tónlistarlíf í næstum 40 ár og óhætt að segja að hann hafi unnið með flestu, ef ekki öllu, vinsælasta tónlistarfólki landsins á þessum tíma. Hann var aðeins 17 ára gamall þegar Björgvin Halldórsson heitinn gaf honum tækifæri sem hljóðmaður og þar með var leið hans í lífinu ákveðin. Síðan þá hefur hann stýrt hljóði fyrir flestar af stærstu hljómsveitum Íslands, séð um tæknimál á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í rúman aldarfjórðung, átt hljóðkerfaleigu, skemmtistað, útvarpsstöð og nú síðast setti hann af stað tónlistar- og matarhátíðina Kótelettuna á Selfossi sem er orðin ein best sótta tónlistarhátíð landsins á hverju ári. Einar ræðir hér áratugalanga reynslu sína úr íslenska tónlistarbransanum, gullöld sveitaballanna, og hvernig bransinn hefur breyst með nýjum tíma, breyttum venjum og stærri viðburðum. Hann fer yfir tíma sinn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og segir frá stofnun Kótilettunnar á Selfossi og hvernig fyrsta hátíðin varð til á aðeins 11 dögum. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

  • #17
    June 23 · 57 min

    #17 | Botnleðja og engar málamiðlanir

    Það hafa fáar íslenskar hljómsveitir komið inn á íslenskan tónlistarmarkað með jafn miklum látum og Botnleðja gerði árið 1995. Það ár sigruðu þeir Músíktilraunir og gáfu út plötuna Drullumall og hvort tveggja vakti verðskuldaða athygli. Rúmum 30 árum og fjölmörgum plötum síðar eru strákarnir úr Hafnarfirði enn að, og nú stíga þeir aftur á svið á heimavelli sínum í Bæjarbíói, í Hjarta Hafnarfjarðar. Í þættinum á eftir ræða Halli og Heiðar um upphaf Botnleðju og sigurinn í Músíktilraunum, fyrstu árin og viðhorfið til tónlistarbransans, óvænt kynni og tónleikaferð með Blur, samstarf við Sinfóníuhljómsveit Íslands, tilraunir erlendis og útgáfu á ensku, Eurovision-ævintýrið og hvernig málamiðlanir, eða skortur á þeim, hafa mótað ferilinn, mögulega nýja plötu og tónleikunum í Bæjarbíói. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

  • #16
    June 16 · 40 min

    #16 | Greifarnir og síðasta sveitaballið

    Árið 2026 voru 40 ár síðan hljómsveitin Greifarnir sigraði Músíktilraunir og varð á skömmum tíma ein vinsælasta hljómsveit landsins. Stuttu síðar kom lagið Útihátíð út og varð allra vinsælasta lagið á Íslandi það sumar. Greifarnir ferðast nú um landið á tónleikaferðalagi eða sveitaballaferðalagi sem þeir kalla Síðasta sveitaballið. Í þessum þætti tala þeir um hvernig sveitaballa- og tónlistarbransinn hefur breyst á síðustu 40 árum, sigurinn í Músíktilraunum 1986 og hvernig hann breytti lífi þeirra á skömmum tíma, fyrstu árin, mikla spilamennsku, kostnaðinn við frægðina, áhrif hennar á fjölskyldu- og einkalíf, vinsælustu lög sveitarinnar, endurkomuna árið 1995, um pressuna sem fylgdi vinsældunum og framtíð Greifanna eftir þetta sumar. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

  • #15
    June 9 · 1 hr 6 min

    #15 | Sigurður Guðmundsson og maðurinn með marga hatta

    Tónlistarmaðurinn Sigurður Guðmundsson er svo sannarlega maður margra hatta. Hann er söngvari, píanóleikari, gítarleikari, bassaleikari, upptökumaður, laga- og textahöfundur og eflaust margt fleira. Hér á eftir talar hann um hljómsveitirnar sínar, Hjálma, Góss, Mefismafíuna, Senuþjófana og fleiri. Hann segir frá samstarfinu með Megasi, Sigríði Thorlacious, Braga Valdimar og fleirum. Hann segir líka frá því hvernig hann fór til Ítalíu til að læra ljósmyndun en endaði sem tónlistarmaður á Íslandi, hvernig það er að vera tónlistarmaður á Íslandi og fer yfir ferilinn. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

  • #14
    June 2 · 44 min

    #14 | Haraldur Ari og leiðin frá Retro Stefson í sólóplötu

    Haraldur Ari Stefánsson sló í gegn með hljómsveitinni Retro Stefson. Hann hefur síðan getið sér gott orð sem leikari og mun gefa út sína fyrstu sólóplötu í haust. Í þessum þætti talar hann um tímann sinn með Retro Stefson, tímabilið sem þau bjuggu í Berlín, lokatónleikana, come-back, sviðsframkomu, ferðalögin um Evrópu, leikhúsið, söngleikina, áhrifavaldana, áskoranirnar, sólóplötuna, framtíðina og fleira. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

  • #13
    May 27 · 1 hr 4 min

    #13 | KK og hittararnir sem hann hættir ekki að spila

    Kristján Kristjánsson, KK, hefur verið eitt af stærstu nöfnunum í íslenskri tónlist allt frá því hann sló í gegn með plötunum Lucky One og Bein leið, snemma á tíunda áratug síðustu aldar. Hann varð nýverið 70 ára og hefur verið að fagna þeim áfanga með tónleikum víða um land að undanförnu og mun gera það út árið. Í þessu spjalli segir hann frá því þegar hann þróaðist úr því að vera Kristur á Frakkastígnum yfir í það að vera KK. Frá buskinu í Skandinavíu, frá Vegbúanum, KK-bandinu, vináttunni og samstarfinu við Magga Eiríks, blúsinum, áhrifum í tónlist, ferðalögunum, samstarfinu við unga fólkið og mörgu fleira. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

  • #12
    May 12 · 48 min

    #12 | Hrafn Thoroddsen og mæting er bæting

    Hrafn Thoroddsen hefur farið víða á síðustu rúmlega 30 árum í íslensku tónlistarlífi og verið í hljómsveitum eins og Ensími, Jet Black Joe og Warmland, Hérna segir hann frá því hvernig hann hætti í skóla 19 ára gamall eftir að hafa gengið til liðs við Jet Black Joe, þegar hann fór sveitaballarúntinn með Helga Björns og SSSól, stofnaði Ensími sem hann hefur verið í forsvari fyrir í 30 ár, upptökurnar með Steve Albini, samstarfið við Bubba, spillerí með Egó, túrana erlendis með Barða í Bang Gang, dúettinn Warmland, sólóplöturnar, Heima með Helga og margt fleira. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

  • #11
    May 5 · 59 min

    #11 | Erna Hrönn og að taka stjórn á eigin lífi

    Erna Hrönn hefur verið afar áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu 20 ár. Henni hefur verið lýst sem ríkisbakrödd, hún hefur tekið þátt í 60 lögum í undankeppni Eurovision, tvisvar sinnum tekið þátt í keppninni sjálfri og syngur núna 80´s lög um land allt með hljómsveitinni Hr. Eydís svo fátt eitt sé nefnt. Hér fer hún yfir ferilinn og hvernig henni hefur aldrei liðið betur eftir að hafa tekist á við andlega og líkamlega erfiðleika. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

  • #10
    April 28 · 48 min

    #10 | Skálmöld og Börn Loka

    Skálmöld er ein allra vinsælasta þungarokkshljómsveit Íslandssögunnar. Hér er rætt við þá Snæbjörn Ragnarsson (Bibba), Þráin Árna Baldvinsson, Jón Geir Jóhannsson og Björgvin Sigurðsson (Böbba). Auk þeirra eru í hljómsveitinni Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben. Þeir tala um samstarfið við Sinfó, sögurnar, textana, aðdáendurnar, samstarfið, framtíðina, mögulega plötu og fleira. Viðtölin voru tekin upp á Græna hattinum á Akureyri. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

  • #9
    April 28 · 40 min

    #9 | Skálmöld og ótrúleg byrjun

    Skálmöld er ein allra vinsælasta þungarokkshljómsveit Íslandssögunnar. Hér er rætt við þá Snæbjörn Ragnarsson (Bibba), Þráin Árna Baldvinsson, Jón Geir Jóhannsson og Björgvin Sigurðsson (Böbba). Auk þeirra eru í hljómsveitinni Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben. Þeir tala um e-mailið sem kom þessu af stað, fyrstu tónleikana, tónleikaferðirnar, markaðssetningu og fleira. Viðtölin voru tekin upp á Græna hattinum á Akureyri. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

  • #8
    April 21 · 45 min

    #8 | Jónas Sig og Hafið er svart

    Þriðji og síðasta hluti viðtalsins við Jónas Sig. Hér er rætt um hans langvinsælasta lag, Hafið er svart, hljómsveitina Dranga, Áhöfnina á Húna, tónleikamaraþon, Milda hjartað, textana, sögumanninn og nýju plötuna sem kemur vonandi út á þessu ári. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

  • #7
    April 21 · 55 min

    #7 | Jónas Sig og leiðin aftur á toppinn

    Annar hluti af þremur í viðtalinu við Jónas Sig. Hérna segir hann frá leiðinni aftur á toppinn. Hvernig hann þurfti að takast á við sjálfan sig, fyrstu tónleikaferðinni um Ísland, lögin sem urðu til, Ritvélum framtíðarinnar og mörgu fleiru. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

  • #6
    April 14 · 44 min

    #6 | Jónas Sig og endurkoma Sólstrandargæjanna

    Jónas Sigurðsson hefur verið mjög áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu tvo áratugi. En áður, fyrir rúmum 30 árum, sló hann í gegn með hljómsveitinni Sólstrandargæjunum og þá sérstaklega laginu Rangur maður. Sú hljómsveit spilaði síðast saman árið 2001 en ætlar að koma saman á ný á Bræðslunni í sumar. Þetta er fyrsti hluti af þremur af viðtalinu við Jónas. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

Showing 1–20 of 21 episodes