O

Sunday · 1 hr 9 min
Skilnaðarbörn x Samvinna eftir skilnað
Í þessum þætti fengum við til okkar þær Gyðu og Stefaníu sem standa á bak við verkefnið SES Family. Þær starfa báðar sem ráðgjafar hjá Barna- og fjölskyldustofu, þar sem verkefnið er starfrækt. Við settumst niður með þeim og ræddum skilnað, áhrif hans á börn og hvernig foreldrar geta best stutt við börnin sín þegar fjölskyldan tekur breytingum. Við förum yfir spurningar sem margir foreldrar velta fyrir sér, hvað er mikilvægt að hafa í huga og hvernig við getum hjálpað börnum að komast í gegnum þessar breytingar með sem mest öryggi og stuðning. Þátturinn er í boði playroom.is, Babybrezza og akkurat.store 5:30 Hvað er efst í huga? 9:50 Gyða og Stefanía Njótið þáttarins!