
Við erum öll á leiðinni á bætur
Já kæru Undralendingar nær og fjær. Spotify bannaði okkur að nota Kiss From a Rose, en tæplega 400 ykkar svöruðu könnuninni sem bætir það upp. Umræðuefni dagsins eru borgaralaun (UBI) og eins og venjulega fóru Ólafssynir um víðan völl, allt frá samsæriskenningum um Covid yfir í mennska heila í sullkeri og tvo bræður á Ísafirði sem urðu milljónamæringar á því að lána skúrana sína. Spá þáttarins: borgaralaun fyrir 2035. Farið með það á koddan. Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www.teya.com/is/ Serrano: https://serrano.is/ Happatreyjur: https://happatreyjur.is/ Reykjavík Foto: https://reykjavikfoto.is/ 0:00 Bannaðir á Spotify 3:29 Niðurstöður könnunarinnar 11:49 Serrano-vinningshafinn dreginn 18:50 Hvað eru borgaralaun? 22:57 Covid-samsærið 36:00 Ríkið eða tæknirisarnir? 42:09 Nvidia, álið og Kerecis 59:05 Jóladagatal Happatreyja 1:07:10 Aftur að borgaralaunum 1:13:17 Gefa peningar tilgang? 1:22:58 Neuralink 1:34:26 Spá þáttarins
- Transcript