Skip to content
Artwork for Ljósmæðrarýmið

Ljósmæðrarýmið

Hafdís og Oddný

Tvær ljósmæður skapa öruggt rými fyrir hrátt spjall um allt sem við kemur fæðingum og fá til sín gesti til að deila sínum fjölbreyttu fæðingarsögum.

Rauði þráðurinn er jákvæð upplifun af fæðingu.
Okkur finnst að það megi heyrast meira í þeim!

Við trúm því að þessar umræður geti styrkt konur í undirbúningi fyrir sína eigin fæðingu ❤️

Play
  • 28 episodes
  • weekly
  • Avg 57 min
  • Icelandic
Counted on this page — what you have heard stays on this device, so it is not something the list can be paged by.
  • March 16 · 11 min

    #10 Örþáttur - Samdráttaverkir eftir fæðingu

    Vissir þú að það er algengt að fá samdráttarverki eftir fæðingu?Af hverju eigum við ekki betra orð í íslensku talmáli? Eigum við að nota orðið eftirverkir?Hvers vegna koma þeir, hvenær og hvernig er best að höndla þá þegar þeir koma? Fylgist með okkur á Instagram: ⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠ ⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠ ⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠

  • March 9 · 43 min

    #9 5 hlutir sem koma mörgum á óvart í fæðingu

    Í þessum þætti ræðir Hafdís 5 hluti sem er kannski minna talað um þegar kemur að fæðingum og gæti komið mörgum á óvart. Við förum yfir: - Hvernig líkaminn tekur yfir í fæðingu - Hvernig fæðingarverkir eru oft öðruvísi en fólk ímyndar sér vernig hugurinn hefur áhrif á ferlið - Hversu óútreiknanlegar fæðingar geta verið - Hinn heimurinn sem maður fer í, í fæðingu Allt til þess að gefa þér betri innsýn í fæðingarferlið og hjálpa þér að mæta henni af meiri ró og trausti <3 Fylgist með okkur á Instagram: ⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠ ⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠ ⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠

  • March 2 · 59 min

    #8 Fæðingarsaga Huldu Heiðdal

    Hulda Heiðdal segir okkur frá sinni upplifun af barneignarferlinu, sem var lituð þeirri staðreynd að hún var í mikilli yfirþyngd. Hún var í meðgöngueftirliti á LSH vegna þessa og var ráðlagt að fæða með keisaraskurði, en hana dreymdi um fæðingu um leggöng. Hulda ræðir sína upplifun, fitufordóma og margt fleira. Fylgist með okkur á Instagram: ⁠Ljósmæðrarýmið⁠ ⁠Sofa borða elska⁠ ⁠Oddný ljósmóðir Hulda og heilsa

  • February 23 · 54 min

    #7 Fæðingarsögur Kötlu í Systur og Makar

    Katla sagði okkur á sinn einstaka hátt frá þremur mismunandi fæðingum. Fyrsta gangsetning í covid og blæðing eftir fæðingu, önnur heimafæðing á baðherbergisgólfinu og svo hröð þriðja fæðing á sjúkrahúsi. Þið sem þekkið til Kötlu vitið að hún er ekkert að skafa af hlutunum og það var engin undantekning hér. Njótði vel! Fylgist með okkur á Instagram: ⁠Ljósmæðrarýmið⁠ ⁠Sofa borða elska⁠ ⁠Oddný ljósmóðir Systur og makar

  • February 16 · 49 min

    #6 Fæðingarsögur Helgu Möggu

    Helga Magga er ein hraustasta kona sem þið finnið og var "óþolandi heilbrigð" á sínum meðgöngum. Enda gekk hún alls ekki fyrir í gangsetningar röðinni fyrr en hún var að detta í 42 vikur. Allar þrjár fæðingarnar hennar voru settar af stað um það leiti. Sú bið var ekki skemmtileg, en fæðingarnar gengu vel og hún átti geggjaðar fæðingar. Fylgist með okkur á Instagram: Ljósmæðrarýmið Sofa borða elska Oddný ljósmóðir Helga Magga

  • February 13 · 7 min

    #5 Örþáttur - Slímtappinn

    Hvað er þessi slímtappi? Hvaðan kom hann og hvert er hann að fara? Hlustið til að vita meira. Fylgist með okkur á Instagram: Ljósmæðrarýmið Sofa borða elska Oddný ljósmóðir

  • February 9 · 1 hr 20 min

    #4 Fæðingarsögur Melkorku Rutar

    Fyrsti gestur Ljósmæðrarýmisins er Melkorka Rut Bjarnadóttir. Hjúkrunarfræðingur og þriggja barna móðir en hún átti þriðja barnið sitt 3 dögum eftir að þátturinn var tekin upp! Melkorka leiddi okkur á skemmtilegan hátt í gegnum fyrstu tvær fæðingarnar sínar og ræddi væntingar og tilfinningar gagnvart þeirri þriðju, sem hún vissi ekki þá að var rétt handan við hornið. Hér var ekkert skilið eftir. Hlustið og njótið. Fylgið okkur á Instagram: Ljósmæðrarýmið Sofa borða elska Oddný ljósmóðir

  • February 1 · 53 min

    #3 Fæðingarsögur Hafdísar

    Í þessum þætti deilir Hafdís, annar þáttastjórnenda Ljósmæðrarýmisins, sínum fæðingarsögum. Hún var orðin ljósmóðir þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn og fer yfir upplifun sína af tveimur hröðum fæðingum og að lokum tvíburafæðingu sem var mögnuð á svo marga vegu. Þátturinn er persónulegur, einlægur og sýnir hversu fjölbreyttar fæðingar geta verið, jafnvel hjá sömu konu.

Showing 21–28 of 28 episodes