

S304: Kolbrún Bergþórsdóttir í viðtali við meintan fjölmiðil
Í inngangi þáttar ræddu Þórhallur Valur, Arnar Þór og Ásta Guðrún um skráningarskyldu fjölmiðla en Kratinn hefur óskað eftir áliti fjölmiðlanefndar um skráningarskyldu sína til að friða sinn virkasta hlustendahóp, þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Síðar mætti Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður til áratuga, með hnífabrýnið á lofti í viðtal til strákanna. Kolbrún lýsti því yfir að hún upplifði ekki meintar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar í heimilisbókhaldinu. Valur krafðist afsökunarbeiðnar vegna skrifa Kolbrúnar um fótbolta í gegnum tíðina, erfðafjárskattur bar á góma, hvernig woke-ið fældi Kolbrúnu frá Samfylkingunni og að allir stjórnmálamenn ættu að hafa upplifað að eiga ekki fyrir leigu um mánaðarmót. Kolbrún fór yfir feril sinn á fjölmiðlum, en hún hefur starfað á flestum fjölmiðlum sem reknir hafa verið á Íslandi síðustu áratugi, nú síðast á Morgunblaðinu og DV. Að endingu fengu strákarnir ábendingar um bækur sem allir jafnaðarmenn þurfi að lesa.