Skip to content
Artwork for HLAÐLIST.
ArtsDesign

HLAÐLIST.

einarhler

Hlaðvarp um arkitektúr, skipulag og byggingargeirann. Einar og Óskar munu taka viðtöl við fólk sem hefur ólíka aðkomu að byggingargreinunum, s.s. arkitekta, verkfræðinga, verktaka, stjórnmálamenn og fleirri. Einnig munu þeir rýna í bækur og fræðigreinar tengd arkitekúr, auk vettvangsferða og heimsóknir í áhugaverð fyrirtæki og til fólks.

Einar Hlér rekur arkitektastofuna Sei Studio, ásamt konunni sinni Shruthi Basappa. Óskar Örn er með doktorsgráðu í arkitektasögu frá Columbia háskóla í New York og starfar um þessar mundir hjá skipulagi Reykjavíkurborgar.

Play
  • 24 episodes
  • weekly
  • Avg 57 min
  • Icelandic
Counted on this page — what you have heard stays on this device, so it is not something the list can be paged by.
  • S1 · E24
    Yesterday · 47 min

    24. Henny Hafsteins og Sigga Maack - Teiknað af konum

    Gestir þáttarins eru Sigríður Maack arkitekt og Henný Hafsteinsdóttir, minjavörður Reykjavíkur og nágrennis hjá Minjastofnun Íslands. Saman standa þær að Teiknað af konum, gagnasafni um íslenskar konur í arkitektúr. Fyrsti hluti verkefnisins er sýningin Brautryðjendur, sem var á HönnunarMars 2026 og stendur enn í Arctic Space á Óðinsgötu 7. Hún fjallar um þær 28 íslensku konur sem luku námi í arkitektúr fram til ársins 1980. Óskar Örn Arnórsson og Einar Hlér Einarsson ræða við þær um verkefnið, brautryðjendurna og verk þeirra.

  • S1 · E23
    October 12 · 1 hr 1 min

    23. Guðrún Harðardóttir - Íðorð í arkitektúr

    Guðrún Harðardóttir er arkitekt sem vinnur nú m.a. að því að taka saman myndskreytta orðabók um arkitektúr á íslensku. Guðrún starfaði lengi fyrir ARGOS en hefur nýlega gangsett sína eigin arkitektastofu, g.HARKitekt. Orðaforði í arkitektúr er langt frá því að vera fullnægjandi, mikið er um ensku- og dönskusléttur í fagmálinu og við ræðum hvernig Guðrún er að nálgast þetta verkefni frá ólíkum hliðum.

  • S1 · E22
    October 8 · 52 min

    22. Roger Mullin - Prototypes for a Landscape

    Roger Mullin is an architect and educator at the School of Architecture at Dalhousie University in Halifax, Nova Scotia. His work uses drawing and design-build to explore landscape, coastal communities and the materials of industry. Between 2015 and 2018 he brought four groups of architecture students to Iceland for 12-day field trips. In 2024 he was a visiting professor at the Iceland University of the Arts. Óskar Örn Arnórsson and Einar Hlér Einarsson talk with Roger about his exhibition Prototypes for a Landscape at Slökkvistöðin in Gufunes. The conversation covers drawing on site in conté and ink, building at full scale, the Forest Cave at Mógilsá, and learning to read a landscape that is never neutral. This episode is in English.

  • S1 · E21
    October 5 · 1 hr

    21. Sigríður Sigþórsdóttir og Hrólfur Cela, Basalt - Baðmenning og Feneyjar 2027

    Sigríður Sigþórsdóttir og Hrólfur Karl Cela reka arkitektastofuna Basalt ásamt fleirrum. Basalt er ein allra öflugasta arkitektastofa landsins með langa reynslu af ýmsum tegundum verkefna. Stofan er þekktust fyrir sérkunnáttu sína í hönnun baðstaða og Sigga og Hrólfur segja okkur frá sínum verkefnum, þeirra þátttöku í Feneyjarstvíeyringnum á næsta ári og margt fleirra.

  • S1 · E20
    September 28 · 1 hr 7 min

    20. Ásta Logadóttir - Birta í byggingum

    Ásta Logadóttir starfar sem lýsingarhönnuður hjá verkfræðistofunni Lotu og hefur tekið virkan þátt í stefnumótun og starfi tengt lýsingu á opinberum vettvangi. Ásta fer með okkur í gegnum yfir alla þætti er varða lýsingu og reglugerðir, samanburð við hin Norðurlöndin og margt fleirra.

  • S1 · E19
    September 21 · 1 hr 7 min

    19. Gunnar Kristjánsson - Þegar hús brenna

    Grunnar Kristjánsson rekur Brunahönnun slf. og hefur verið stórtækur á sviði brunahönnunar í 30 ár. Við ræddum helstu bruna síðustu ára á Íslandi og afleiðingar þeirra, en komum einnig aðeins inn á Grenfell brunann í London, þróun innan fagsins og margt fleirra.

  • S1 · E18
    September 14 · 48 min

    18. Páll Ársæll og Áróra Árnadóttir, HMS - Lífsferilsgreiningar

    Í þættinum komu Páll og Áróra til okkar til þess að tala um innleiðingu lífsferilsgreininga og aðra þætti tengda umhverfismálum í byggingariðnaðinum. Páll og Áróra eru hluti af sjálfbærniteymi HMS og höfðu bæði mikla reynslu í þeim geira áður en þau gengu til liðs við HMS.

  • S1 · E17
    September 7 · 59 min

    17. Snædís Traustadóttir - Fornverk

    Snædís Traustadóttir er lærður smiður með sérþekkingu á fornu handverki. Hún hefur fengist við ýmis verkefni, m.a. endurnýjun á þaki Landakotskirkju en hún kennir einnig námskeið í fornverki um allt land. Snædís er um þessar mundir einnig í meistaranámi í Noregi, hún kom og sagði okkur frá því og fræddi okkur um ýmislegt er varðar gömlu aðferðirnar.

  • S1 · E16
    August 31 · 53 min

    16. Ásta Birna og Stefanía, ARKIBYGG - Frá Seyðisfirði til Bíldudals

    Ástíður Birna Árnadóttir og Stefanía Helga Pálmarsdóttir reka saman arkitektastofuna ARKIBYGG, sem stofnuð var árið 2020. Stofan hefur unnið til fjölda verðlauna, þrátt fyrir ungan aldur, en þær hafa einnig verið að vinna mikið í verkefnum á Seyðisfirði og Bíldudal og annars staðar á landinu.

  • S1 · E15
    August 24 · 52 min

    15. Páll Hjaltason - Skipulag Reykjavíkur 2040

    Páll Hjaltason er einn eiganda +Arkitekta og hefur komið víða við á löngum ferli. Árið 2010 var hann í 7. sæti á lista Besta flokksins og varð í kjölfarið borgarfulltrúi og formaður Skipulagsráð. Páll segir okkur frá tímanum í Reykjavík og m.a. frá gerð aðalskipulags Reykjavíkur 2040, sem nú er í gildi.

  • S1 · E14
    June 8 · 49 min

    14. Auður Hreiðarsdóttir, ESJA - Hófleg þétting og ferðamannastaðir

    Auður Hreiðarsdóttir rekur arkitektastofuna ESJA. Stofan er tiltölulega ný og var stofnuð í Danmörku í byrjun áratugarins. ESJA hefur fengist við rannsóknarverkefni, haft sigur í samkeppnum og fengist við ferðamannaverkefni. Við töluðum um allt þetta og margt fleirra með Auði.

  • S1 · E13
    June 1 · 1 hr 4 min

    13. Anna María Bogadóttir - Niðurrif

    Anna María Bogadóttir er prófessor í arkitektúr við Listaháskóla Íslands. Hún rekur einnig stofuna Úrbanistan og hefur komið að útgáfu margra bóka um arkitektúr á íslensku. Við töluðum við Önnu Maríu um niðurrif bygginga og tengist það helst bók hennar, Jarðsetning, sem kom einnig út sem kvikmynd árið 2021.

  • S1 · E12
    May 25 · 1 hr 6 min

    12. Hildigunnur Sverrisdóttir - Samfella og rákun

    Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt og fyrrum deildarforseti arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands, hefur sinnt kennslu, rannsóknum og ráðgjöf í tengslum við félagspólitískt samhengi manngerðs umhverfis, m.a. sem gestaprófessor við Yale. Í þættinum notar Hildigunnur hugmyndir Deleuze og Guattari sem linsu á íslenskt landslag, borgarskipulag og samspil markaðs- og lýðræðis. Einnig ræðir hún kennslu, rannsóknaverkefnið Turfiction og fleiri atriði.

  • S1 · E11
    May 18 · 1 hr 2 min

    11. Þorsteinn Gunnarsson - Kirkjur Íslands

    Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt og leikari, hefur um áratuga skeið verið í fararbroddi í rannsóknum og varðveislu íslenskra menningarminja. Hann var fyrstur Íslendinga til að sérhæfa sig í endurgerð eldri bygginga og hefur m.a. komið að endurreisn Viðeyjarstofu, Nesstofu, Bessastaðastofu, Alþingishússins og Hóladómkirkju. Þorsteinn hefur verið ritstjóri ritraðarinnar Kirkjur Íslands frá upphafi, en um er að ræða 31 bindi um friðaðar kirkjur landsins. Í þættinum fer Þorsteinn yfir íslenska kirkjubyggingarsögu, allt frá torf- og timburkirkjum til steinhlaðinna og steinsteyptra kirkna.

  • S1 · E10
    May 14 · 39 min

    10. Lilja Pálmadóttir - Andinn og efnið

    Lilja Pálmadóttir er athafnakona og hrossabóndi á Hofi. Sem myndlistakona hefur hún einnig næmt auga fyrir byggingarlist og hefur átt frumkvæðið af því að láta reisa eða gera upp margar ólíkar byggingar, allar í hæsta gæðaflokki. Hún kom og sagði okkur frá þessum byggingum, samstarfi sínu við arkitekta ásamt mörgu fleirru.

  • S1 · E9
    May 9 · 48 min

    9. Gylfi Ólafsson - Ísafjörður og Vestfirðir

    Gylfi Ólafsson var áður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og er nú varaþingmaður Viðreisnar og oddviti Í-listans á Ísafirði, en listinn hefur verið í meirihluta þar síðan 2022. Gylfi fræðir okkur um ástandið á innviðum í sveitarfélaginu og þróun síðustu ára, ásamt því að fara yfir sögu nokkurra af helstu byggingum bæjarins. Nokkrir tenglar á umfjöllun um Ísafjarðarkirkju: https://timarit.is/page/7360713#page/n5/mode/2up https://timarit.is/page/6548129#page/n17/mode/2up https://timarit.is/page/7346132

  • S1 · E8
    May 6 · 46 min

    8. Vigfús Þór Hróbjartsson - Selfoss og skipulag

    Vigfús Þór er skipulagsfulltrúi Árborgar, en hefur einnig sinnt starfi skipulagsfulltrúa á mörgum öðrum stöðum á Suðurlandi. Við förum í hlutverk skipulagsfulltrúa, miðbæ Selfossar og fleirri atriði í þættinum.

  • S1 · E7
    April 10 · 50 min

    7. Magnús Skúlason - Þétting byggðar og fagurfræðin

    Magnús Skúlason, arkitekt, á að baki langan og glæstan feril, bæði í einkageiranum og á opinbera sviðinu. Hann hefur starfað sem formaður byggingarnefndar Reykjavíkur, en er einnig einn af leiðtogunum í verndun eldri byggðar. Hann er vinsæll hjá fjölmiðlum þegar talað er um fréttir er tengjast byggingarmálum og Magnús fór yfir víðan völl í þættinum með okkur Óskari og Einari.

  • S1 · E5
    March 18 · 1 hr

    5. Andri Snær Magnason - Jötunsteinn og ljótleiki

    Andri Snær er þjóðþekktur rithöfundur sem gaf út bókina Jötunsteinn fyrir síðustu jól. Andri kom í spjall til okkar Óskars og sagði okkur frá þátttöku sinni í arkitektúr í gegnum tíðina, við ræddum bókina hans og aðra hluti sem tengjast kannski helst ljótleika í arkitektúr.

Showing 1–20 of 24 episodes