Eftirmál
Tal
Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.
- 30 episodes
- weekly
- Avg 58 min
- Icelandic
- EThursday · 1 hr 26 min
Keikó - háhyrningurinn sem hreyfði við heimsbyggðinni
Háhyrningurinn Keikó sigraði hjörtu heimsbyggðarinnar í kvikmyndinni Free Willy. Talað var um að hann væri frægasti Íslendingurinn á tímabili og var hvalurinn fastagestur í fréttum um árabil. En þegar hann var fluttur til Vestmannaeyja frá Bandaríkjunum, þar sem átti að hleypa honum aftur í sitt náttúrulega umhverfi, spruttu upp ýmsar spurningar um dýravelferð, pólitíska hagsmuni og himinháar peningaupphæðir. Gísli Marteinn Baldursson var ungur fréttamaður þegar heimspressan fjallaði um heimkomu og frelsun Keikós. Hann fer yfir söguna með okkur í Eftirmálum. Komdu í áskrift á eftirmal.is Samsetning: Adelina Antal Samstarfsaðilar Eftirmála: ✨Húðfegrun 🛒Krónan 🩺 Intuens 🌀Sjóvá 💻Giggó 🤸🏼♂️ World Class 🚗Go Bílaleiga 📲 Kosmos 🍬Góa ✈️ Icelandair Vertu með okkur á Instagram
- E
November 5 · 20 minÖnnur mál #4 - Beint úr dómsal í Eltihrellismálinu og dætur Lúðvíks Pétursonar ætla ekki að gefast upp
Þetta er sýnishorn af þættinum ➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️ Við fórum í Héraðsdóm Reykjaness til að fylgjast með aðalmeðferð í máli meinta eltihrellisins Írisar Helgu Jónatansdóttur. Spennan í réttarsalnum var áþreifanleg. Við förum ítarlega yfir stöðuna í réttarhöldunum. Í þættinum ræðum við einnig við dætur Lúðvíks Péturssonar sem féll ofan í sprungu í Grindavík árið 2024. Þær segja að leit sem fór fram að honum í síðustu viku hafi verið leikrit og ætla ekki að gefast upp í baráttu sinni fyrir að hann verði sóttur. Samsetning: Adelina Antal
- EOctober 29 · 1 hr
Morðið á Hrafnhildi Lilju Georgsdóttur
Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir var vinamörg og ævintýagjörn ung kona frá Ólafsfirði sem fór í ferðalag til Dóminíska lýðveldisins í Karíbahafi árið 2008. Hún skilaði sér aldrei heim því eftir stutta dvöl í landinu var hún myrt á hrottafenginn hátt. Eftir stendur fjölskylda Hrafnhildar Lilju í sárum öllum þessum árum síðar og ótal stórum spurningum er enn ósvarað. Þrátt fyrir að fjórir hefðu verið handteknir vegna málsins var það talið óupplýst í 18 ár - en í þættinum koma fram nýjar upplýsingar. Sigurlaug Hrafnsdóttir, móðursystir Hrafnhildar Lilju, fer yfir atburðarásina í Eftirmálum. Komdu í áskrift á eftirmal.is Samsetning: Adelina Antal Samstarfsaðilar Eftirmála: 🌀Sjóvá 🩺 Intuens 💻Alfreð 🤸🏼♂️ World Class 🚗Go Bílaleiga 🛒Krónan ✨Húðfegrun 📲 Kosmos 🍬Góa Vertu með okkur á Instagram
- E
October 22 · 12 minÖnnur mál #3 - Réttarhöld yfir íslenskum eltihrelli nálgast
➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️ Íslensk kona á fertugsaldri var í vor ákærð fyrir kerfisbundið umsáturseinelti gegn nokkrum karlmönnum og fjölskyldum þeirra. Einnig var hún ákærð fyrir skjalafals, rangar sakargiftir, hótanir, ærumeiðingar og barnaverndarbrot. Málið hefur vakið mikla athygli, lýsingar fórnarlamba konunnar eru lyginni líkastar og minna á þættina Baby Reindeer. Málið fer fyrir dómstóla á næstunni en í Öðrum málum fer Valur Grettisson blaðamaður yfir málsatvik með okkur. Hann hefur skrifað um málið frá A-Ö auk þess að lenda sjálfur í áreiti af hálfu konunnar. Samsetning: Adelina Antal
- EOctober 15 · 1 hr 7 min
Nágrannaerjur og níðstöng við Esjurætur
Í maí 2022 vaknaði Kristjana Þórarinsdóttir upp við að búið var að reisa níðstöng með afhöfðuðum hesti við heimili hennar. Nokkrum árum áður hafði fjölskyldan látið drauminn um að flytja í sveit rætast og sest að á Skrauthólum við Esjurætur. En draumurinn breyttist fljótlega í martröð þar sem andleg málefni, frjálsar ástir, nakið fólk og nágrannaerjur enduðu með ósköpum. Kristjana fer yfir þetta undarlega mál í Eftirmálum. Komdu í áskrift á eftirmal.is Samsetning: Adelina Antal Samstarfsaðilar Eftirmála: 🛒Krónan 🌀Sjóvá 🍬Góa📲Alfreð 🤸🏼♂️ World Class 🚗Go Bílaleiga 🩺 Intuens ✨Húðfegrun Vertu með okkur á Instagram
- E
October 8 · 19 minÖnnur mál #2 Börn Johns Snorra tjá sig í fyrsta sinn
➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️ Í þessum þætti fara elstu börn Johns Snorra Sigurjónssonar yfir hinstu för föður síns á K2 í Pakistan. Málið hefur undanfarið verið í umræðunni eftir að heimildarmynd um málið fór í sýningu. Ættingjar Johns Snorra hafa hingað til ekki tjáð sig um ferðina en börn hans opna sig hér í fyrsta sinn um atburðarásina, biðina óbærilegu á meðan leit stóð yfir og hvernig þau hafa unnið úr áfallinu. Samsetning: Adelina Antal
- EOctober 1 · 1 hr 59 min
Edition-málið
Fá mál hafa vakið jafn mikla athygli og óhug og Edition málið svokallaða. Frönsk fjölskylda, hjón og 29 ára dóttir þeirra, komu hingað til lands júní 2025 í þeim tilgangi að fremja sjálfsvíg saman á Edition lúxushótelinu. Þegar lögregla kom á vettvang á voru eiginmaður og dóttir Ming Ting Mancel látin af völdum stungusára, en Ming Ting sjálf lifði af. Hún afplánar nú 12 ára fangelsisdóm í fangelsinu á Hólmsheiði. Við förum yfir þetta mál og dóminn yfir Ming Ting, sem á engan sinn líka í nútíma réttarsögu, með Ómari Erni Bjarnþórssyni verjanda hennar. Samsetning: Adelina Antal Samstarfsaðilar Eftirmála: 🚗Go Bílaleiga 🩺 Intuens ✨Húðfegrun 🛒Krónan 🌀Sjóvá 🍬Góa 📲Alfreð 🤸🏼♂️ World Class Eftirmál.is Vertu með okkur á Instagram
- E
October 1 · 26 minÖnnur mál #1- Birna Brjánsdóttir, harmleikur á Nýbýlavegi og hver var Catherine Mancel?
➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️ Nadine og Þórhildur fara um víðan völl í Öðrum málum. Í þessum þætti ræða þær við Leif Halldórsson rannsóknarlögreglumann sem rifar upp hvarf Birnu Brjánsdóttur, yfirheyrslur yfir Thomasi Möller Olsen og fleiri eftirminnileg mál frá hans ferli. Þá förum við yfir lausa enda í Edition-málinu. Samsetning: Adelina Antal
- ESeptember 30 · 5 min
** SÉRSTÖK TILKYNNING **
Þórhildur og Nadine kynna spennandi breytingar og glænýtt systurhlaðvarp Eftirmála - Önnur mál. ➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is
- EJuly 28 · 1 hr 43 min
Hryðjuverkamálið
Sérsveit ríkislögreglustjóra fór í umfangsmiklar aðgerðir í september 2021 og gerði upptæk þrívíddarprentuð vopn sem talið var að væru ætluð til að fremja hryðjuverk hér á landi. Tveir menn voru handteknir og ákærðir fyrir tilraun til hryðjuverka sem er einsdæmi í íslenskri réttarsögu. Í kjölfarið velktist málið um í réttarkerfinu í fjögur ár og í ljós kom að ekki var allt sem sýndist. Við ræðum við einn sakborninganna og lögmann hans í þættinum. Málið er eitt umfangsmesta, umtalaðsta og umdeildasta sakamál sem komið hefur upp hér á landi. Samsetning: Adelina Antal Styrktaraðilar Eftirmála eru: - Birgisson - Góa - Húðfegrun - Scandi Home
- EJuly 22 · 1 hr 19 min
Leiðangur Johns Snorra á K2
Leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar á K2, hættulegasta fjall jarðar, í febrúar 2021 átti eftir að reynast örlagaríkur. Hann freistaði þess að verða fyrstur manna til að klífa fjallið að vetrarlagi og þjóðin bæði fylgdist með undirbúningnum að ferðinni og hélt niðri í sér andanum þegar hætti að heyrast frá honum. Farið var í umfangsmiklar leitaraðgerðir á þessu miskunarlausa fjalli í Pakistan, þar sem aðstæður geta breyst á augabragði og mistök geta haft afdrifaríkar afleiðingar. Einar Bárðarson, vinur Johns Snorra, fer yfir málið með okkur og útskýrir af hverju hann vill halda minningu vinar síns á lofti og hvers vegna menn leggja í slíka hættuför. Samsetning: Adelina Antal Styrktaraðilar Eftirmála eru: - Birgisson - Góa - Húðfegrun
- EJuly 13 · 57 min
Ashley Madison og Vodafone-lekinn
Stórtækasta innrás í einkalíf Íslendinga sem nokkru sinni hefur átt sér stað var þegar tölvuþrjótar láku tugþúsundum sms skilaboðum Íslendinga á netið í Vodafone-lekanum árið 2013. Hver sem er gat þannig flett upp persónulegum málum fólks um allt á milli himins og jarðar. Tveimur árum síðar voru svo viðkvæmar persónuupplýsingar yfir 100 Íslendinga sem skráðir voru á framhjáhaldssíðuna Ashley Madison gerðar opinberar og Ice Hot 1 kom fram á sjónarsviðið. Atli Fannar Bjakason blaðamaður þekkir málin vel og fer með okkur yfir þau í þættinum. Samsetning: Adelina Antal Styrktaraðilar Eftirmála eru: - Sebastian hárvörur - Birgisson - Scandi Home - Góa - Húðfegrun
- EJuly 7 · 1 hr 12 min
Krýsuvíkurmálið
Haustið 2024 fór hrollur um þjóðina þegar karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana skammt frá Krýsuvíkurvegi. Ýmsar sögusagnir fóru á flug og enn eru spurningar sem lögreglan fékk aldrei svör við. Atburðarásin vakti líka um stórar spurningar um stöðu geðheilbrigðismála hér á landi. Leifur Halldórsson rannsóknarlögreglumaður fór með rannsókn þessa sorglega máls og fer fer yfir það í þættinum. Samsetning: Adelina Antal Styrktaraðilar Eftirmála eru: - Birgisson - Scandi Home - Góa - Sebastian hárvörur - Bliss - Húðfegrun
- EApril 1 · 1 hr 29 min
Morðið á Hannesi Þór Helgasyni
Fá sakamálmál hafa haft jafn mikil áhrif á íslensku þjóðina og morðið á Hannesi Þór Helgasyni árið 2010. Morðið var einstaklega hrottafengið og þaulskipulagt auk þess sem nokkuð langan tíma tók að upplýsa það. Gunnar Rúnar Sigurþórsson játaði verknaðinn en hann var hugfanginn af kærustu Hannesar og hafði fyrir morðið sett ástarjátningu til hennar á YouTube. Patrik Atlason, systursonur Hannesar, var 16 ára þegar frændi hans var myrtur en hann fer yfir málið með okkur og lýsir þeim gríðarlega mótandi áhrifum sem það hafði á líf hans.
- EFebruary 16 · 1 hr 5 min
Rock star Supernova ævintýrið
Átta þúsund manns tóku á móti Magna Ásgeirssyni í Smáralind þegar hann snéri heim eftir þátttöku í raunveruleikaþættinum Rock Star Supernova. Þjóðin stóð á öndinni í þrjá mánuði, vaknaði á nóttunni til að kjósa og samkeppnisaðilar á markaði fóru í samstillt átak til að koma sem flestum atkvæðum í gegnum símakosningu. Magni lenti í fjórða sæti í keppninni en við heimkomu færði ráðherra honum gjöf frá ríkisstjórninni og þakkir fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Við förum yfir Rock Star brjálæðið í Eftirmálum og ræðum bæði við Magna sjálfan og Magnús Ragnarsson, manninn á bak við þetta ævintýri. Styrktaraðilar Eftirmála eru: -Nettó -Eldum Rétt -World Class -Collab - Alfreð - Intuens
- EFebruary 2 · 1 hr 14 min
Wok On málið / Quang Le
Quang Le, veitingamaðurinn umsvifamikli sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson, er grunaður um peningaþvætti, mansal, skipulagða glæpastarfsemi og fleira. Hann var handtekinn árið 2024 en bíður enn dóms í málinu sem kennt er við veitingastaðinn Wok On þar sem hann var einn eigenda. Málið er talið vera umfangsmesta mansalsmál Íslandssögunnar, teygir anga sína í ótal áttir og tekur óvænta stefnu oftar en einu sinni. Sveinn Andri Sveinsson lögfræðingur Quang Le fer yfir málið með okkur. Styrktaraðilar Eftirmála eru: Nettó Eldum Rétt Collab Alfreð Intuens World Class
- EJanuary 19 · 54 min
PIP brjóstapúðamálið
Yfir 400 íslenskar konur fengu grædda í sig ólöglega silikonpúða á árunum 2000-2010 frá fyrirtækinu PIP. Í brjóstapúðunum var iðnaðarsilikon í stað læknisfræðilegs silikons og voru þeir í mörgum tilvikum byrjaðir að leka. Í Eftirmálum förum við yfir þetta risastóra svikamál og ræðum við eina þeirra sem fékk púðana grædda í sig með skelfilegum afleiðingum. Málið er enn í gangi fyrir dómstólum meira en áratug eftir að það kom upp. Styrktaraðilar Eftirmála eru: Nettó Eldum Rétt Collab Alfreð Intuens World Class
- EJanuary 6 · 1 hr 8 min
Skáksambandsmálið
Sérsveitin réðist inn í húsnæði Skáksambands Íslands með látum í janúar 2018 eftir að dularfullur pakki barst þangað. Um svipað leyti féll íslensk kona fram af svölum á heimili sínu á Spáni og lamaðist. Þessi atvik og fleiri urðu hluti af Skáksambandsmálinu svokallaða, marglaga sakamáli sem líkist einna helst kvikmyndahandriti. Í þættinum förum við yfir atburðarásina með fréttamanninum Sunnu Sæmundsdóttur en stórum spurningum í málinu er enn ósvarað. Styrktaraðilar Eftirmála eru: -Nettó -NOLA snyrtivöruverslun / kóðinn EFTIRMÁL veitir 15% afslátt -Eldum Rétt -Collab -Alfreð -Intuens -World Class
- EDec 22, 2025 · 1 hr 1 min
Raðmorðinginn og íslenska eiginkonan
Rex Heuermann, sem grunaður er um að vera einn mesti raðmorðingi í sögu Bandaríkjanna, er giftur íslenskri konu að nafni Ása Ellerup og hefur nokkrum sinnum komið hingað til lands. Hann er talinn hafa myrt fjölda kvenna á Gilgo ströndinni í New Jersey og bíður nú réttahalda vestanhafs. Talið er að hann hafi framið einhver ódæðisverkanna á meðan Ása var í fríi með börn þeirra á Íslandi. Við förum yfir þetta umfangsmikla mál í þættinum og ræðum við skyldmenni Ásu. Styrktaraðilar Eftirmála eru: -Nettó -NOLA snyrtivöruverslun Ármúla 38 -Eldum Rétt -World Class -Collab Samsetning þáttar: Adelina Antal Klippur í þættinum: Is Rex Heuermann the serial killer behind the Gilgo Beach murders in Long Island? YouTube Gilgo Beach suspect Rex Heuermann’s estranged wife screams at reporters YouTube YouTube The Gilgo Beach Killer: House of Secrets Official Trailer Peacock Original YouTube