Skip to content
Artwork for Draugasögur
True CrimeExplicit

Draugasögur

Ghost Network®

Podcast um atburði og staði sem þekktir eru fyrir draugagang.
Oftar en ekki fléttast einnig inn morð og svik 🩸
Svo ef þú elskar að ferðast og ert það sem kallast Dark tourist, kannski jafnvel smá sögunörd og hefur gaman að sakamálum, þá er þetta podcast sem þú ættir að tékka á.

Þáttastjórnendur eru hjónin Stefán John og Katrín en þau eru stofnendur og eigendur framleiðslu fyrirtækisins Ghost Network sem sérhæfir sig í hlaðvörpum. Þau halda einnig út hlaðvörpunum Mystík Podcast og Sannar Íslenskar Draugasögur ásamt því að framleiða önnur hlaðvörp á Íslenskum markaði.

Þau ferðast reglulega til að skoða draugalega staði og hafa nú þegar rannsakað nokkra af reimdustu stöðum í heimi t.d. hið eina og sanna Conjuring Hús, Sallie House, Shrewsburry fangelsið, Höfða, Hvítárnesskála og svo mætti lengi telja.

Þau hafa stundum verið kölluð drauga sérfræðingar Íslands en ásamt því að ferðast þá hafa þau einnig hjálpað mörgum Íslenskum fjölskyldum sem hafa verið að kljást við ásóknir.

Langar þig að vera partur af Draugasögu samfélaginu? Finndu Draugasögur Podcast í Patreon appinu og veldu Join For Free. Kostar ekkert en þar er allskonar draugalegt sem er eingöngu þar inni.

Þú getur einnig skráð þig í áskrift á patreon.com/draugasogur og opnað nýjan heim!

Play
  • 22 episodes
  • weekly
  • Avg 42 min
  • Icelandic
Counted on this page — what you have heard stays on this device, so it is not something the list can be paged by.
  • January 21 · 44 min

    Freetown Skógurinn

    Komið þið sæl kæru hlustendur 🤗 Í dag ætlum við að segja ykkur ROSALEGA draugasögu! Við erum stödd í bænum Freetown sem er staðsettur í Massachusetts fylki. Við ætlum þó ekki að dvelja mikið inni í bænum heldur er fókusinn okkar á skóginum sem umkringir hann og mikið af New England svæðinu. Free Town Forest er nefinlega betur þekktur undir öðrum nöfnum, svo sem The Cursed Forest eða The Dark Forest. KOMDU Í DRAUGASÖGU FJÖLSKYLDUNA 🌙 Ef þú vilt bíó í eyrun 🎧 og tilheyra hópi sem deilir ástríðu fyrir draugasögum → þá er þetta rétti staðurinn fyrir þig! PRÓFAÐU FRÍTT Í VIKU SAMFÉLAGIÐ OKKAR Á PATREON Skráðu þig í áskrift á Spotify Frábæru samstarfsfélagar okkar eru: Happy Hydrate Leanbody Draugasögur á Samfélagsmiðlum: Instagram Facebook Tiktok

  • January 14 · 44 min

    Jersey Djöfullinn 😈

    Okkur hefur langað til þess að taka þennann fyrir í langan tíma 😈 Við erum stödd í New Jersey, heimkynni the Jersey Devil. Söguna um djöfulinn má rekja aftur aldirnar til ársins 1735. Fjölmargir hafa séð hann í Pina Barrens skóginum og heyrt hljóðin í honum. Hljóðin eru ólýsanleg blanda af öskri og gráti og hljóma ekki mannleg. Furðuleg fótspor fóru að birtast í bænum sem leitarhundar neituðu að fylgja og allt þetta olli svo miklum áhyggjum að foreldrar neituðu að senda börn sín í skólann og margir þeirra lokuðu um tíma. Starfsmenn neituðu að mæta til vinnu eða að fara út úr húsum sínum yfir höfuð og þá sérstaklega þeir sem þurftu að ganga í gegnum skóginn til að mæta til vinnu. Í dag ætlum við að segja ykkur allt sem þið þurfið að vita um Jersey djöfulinn og fara yfir nokkra vitnisburði! KOMDU Í DRAUGASÖGU FJÖLSKYLDUNA 🌙 Ef þú vilt bíó í eyrun 🎧 og tilheyra hópi sem deilir ástríðu fyrir draugasögum → þá er þetta rétti staðurinn fyrir þig! PRÓFAÐU FRÍTT Í VIKU SAMFÉLAGIÐ OKKAR Á PATREON Skráðu þig í áskrift á Spotify Frábæru samstarfsfélagar okkar eru: Happy Hydrate Leanbody Draugasögur á Samfélagsmiðlum: Instagram Facebook Tiktok

Showing 21–22 of 22 episodes