B

#2161
October 13 · 1 hr 53 min
Bítið - þriðjudagur 13. október
Bítið á Bylgjunni með Lilju, Birni og Ómari. Rakel Sigurgeirsdóttir og Sigurður Borghildarson, einkakennarar ræddu við okkur um breytingar á endurgreiðslum vegna íslenskunáms. Viðar Jökull Björnsson sagði okkur söguna af gullkistunni sem hann gróf í Heiðmörk fyrir þrjátíu árum. Arnaldur Grétarsson, mannfræðingur og samfélagsmiðla- og markaðssérfræðingur sem hefur starfað fyrir ASÍ og Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU, stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum, bjóða sig fram til forseta ASÍ. Hjónin Konný Arna og Helgi Freyr, stofnendur Vigdísar appsins, settust niður með okkur. Einar Bárðarson, markaðsmaður og viðburðahaldari, ræddi breytingar á djamminu.



