Skip to content
Artwork for Besta sætið

Besta sætið

bestasaetid

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

Play
  • 87 episodes
  • daily
  • Avg 23 min
  • English
Counted on this page — what you have heard stays on this device, so it is not something the list can be paged by.
  • #232
    Monday · 22 min

    23. nóv - Verk fyrir höndum hjá Pochettino

    Mauricio Pochettino fékk alvöru martraðarbyrjun sem þjálfari Man. Utd. Sá þarf að lyfta grettistaki til að bjarga þessu liði Man. Utd. Arsenal er skellihlæjandi á toppnum og Liverpool er á uppleið. Þjálfaramálin eru loksins að skýrast í Lengjudeild karla og NFL-hornið er á sínum stað í lokin.

  • #231
    Friday · 23 min

    20. nóv - Breytist eitthvað með Pochettino og Valsari fór á vitlausan flugvöll

    Mauricio Pochettino stýrir Man. Utd í fyrsta sinn um helgina og fær alvöru verkefni er Man. Utd sækir Liverpool heim. Valur tapaði naumlega á Egilsstöðum í Bónus deild karla í gær og hjálpaði ekki til að liðið var án Jelani Simmons sem fór á Keflavíkurflugvöll er hann átti að fljúga austur.

  • #230
    Thursday · 24 min

    19. nóv - Þreyttir körfuboltamenn eftir GTA nótt og ömurleg mynd um Madden

    Tölvuleikurinn GTA kom út í nótt og eflaust margir íþróttamenn sem vöktu lengi að spila. Það mun örugglega hafa einhver áhrif á þeirra leik. Til að mynda í Bónus deild karla í kvöld þar sem stórleikurinn er á milli Álftaness og Grindavíkur. Svo ræðum við aðeins um áhugaverða mynd um John Madden sem kom út í gær.

  • #228
    November 17 · 23 min

    17. nóv - Ósammála um Víkingaklappið, Arnar fær einkunn og starfsöryggi Heimis

    Karlalandsliðið í fótbolta lauk keppni í Þjóðadeild karla þennan veturinn með góðum 3-0 sigri í gær þar sem goðsögn var kvödd. Þeir Henry Birgir, Stefán Árni og Valur Páll gerðu Þjóðadeildina upp sem og leik gærkvöldsins. Aðstaða blaðamanna í frostinu var til umræðu og frammistaða Arnars Gunnlaugssonar í starfi. Starfsöryggi Heimis Hallgrímssonar bar einnig á góma sem og töluvert fleira. Þáttinn má heyra í spilaranum sem og á öllum helstu veitum.

  • #227
    November 16 · 24 min

    16. nóv - Í minningu Guðjóns Þórðarsonar og Aron Einar jafnar metið í kvöld

    Ísland spilar við Lúxemborg í Þjóðadeildinni í kvöld. Guðjóns Þórðarsonar verður minnst fyrir leik og Besta sætið rifjar upp magnaðan feril Guðjóns. Aron Einar Gunnarsson mun svo örugglega koma við sögu í kvöld og jafna landsleikjametið í sínum síðasta landsleik. Svo má ekki gleyma U21 sem ætlar að komast á stórmót í kvöld.

  • #226
    November 9 · 27 min

    9. nóv - Væll í Stjörnumönnum og Man. Utd í fallsæti

    Staðan í ensku úrvalsdeildinni er afar áhugaverð er deildin fer aftur í landsleikjafrí. Man. Utd mun sitja í fallsæti næstu daga á meðan Man. City er í frjálsu falli. Stjörnumenn kvarta yfir að fá ekki að æfa í hádeginu en fá enga vorkunn í Besta sætinu. Handboltalandsliðið fær hrós og NFL-hornið er á sínum stað.

  • #225
    November 6 · 17 min

    Jökull Elísabetarson: Spennandi starf í Kópavogi og Halldór Árna þarf að hafa sig hægan

    Jökull Elísabetarson tók í dag við sem þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta. Jökull þekkir vel til í Kópavogi en hann var leikmaður liðsins sem vann fyrstu titla í sögu þess og varð bikarmeistari 2009 og Íslandsmeistari 2010. Hann þjálfaði þá annan flokk hjá liðinu og hóf sinn þjálfaraferil hjá venslafélaginu Augnabliki. Jökull hefur stýrt Stjörnunni undanfarin ár en var sagt upp á miðju nýliðnu sumri vegna slaks árangurs. Hann tekur því fagnandi að fá nýja áskorun á nýjum stað. Við settumst niður með Jökli og ræddum nýtt starf.

  • #223
    November 5 · 24 min

    5. nóv - Ronaldo kveður og getur KR unnið Álftanes?

    Cristiano Ronaldo tilkynnti í dag að hann hefði leikið sinn síðasta landsleik. Ótrúlegur 23 ára landsliðsferill hjá honum. KR sækir Álftanes heim í kvöld en bæði lið eru með fullt hús. Eitthvað þarf undan að láta.

  • #219
    October 31 · 42 min

    Hólmar Örn Eyjólfsson: Vandræði Vals, bankahrun í West Ham og pabbi sem þjálfari

    Hólmar Örn Eyjólfsson, fráfarandi fyrirliði Vals í fótbolta, hefur lagt knattspyrnuskóna á hilluna eftir langan feril. Hólmar hóf ferilinn hjá HK hér á landi en fór ungur til West Ham á Englandi. Hann átti sín bestu ár í Rosenborg fyrir smá brölt í Ísrael og Búlgaríu áður en hann sneri aftur til Rosenborgar fyrir heimför. Hann var um tíma leikjahæsti U21 árs landsliðsmaður Íslands og var fyrirliði liðs sem fór á EM í aldurflokknum í fyrsta sinn og var stýrt af föður hans, fyrrverandi landsliðs- og atvinnumanninum Eyjólfi Sverrissyni. Það lið taldi til að mynda Gylfa Sigurðsson, Aron Einar Gunnarsson og fleiri sem voru í gullaldarliði Íslands sem fór síðar á EM 2016 og HM 2018. Hólmari tókst ekki að vinna Íslandsmeistaratitil á sex árum með liði Vals sem átti erfitt sumar. Hólmar gerir upp ferilinn, sigrana og vonbrigðin og ræðir stöðuna á Val er hann gerir upp ferilinn.

  • #218
    October 30 · 25 min

    30. okt - Emil vill vera hjá Rúnari og hvað segir mamma hans Magga?

    Emil Atlason er að fara til Fram þar sem hann hittir fyrir sinn gamla þjálfara, Rúnar Kristinsson. Magnús Már má ekki fara til Breiðabliks og spurning hvað mamma hans, Hanna Símonardóttir, segir við því. Man. Utd þarf að sanna sig og stórleikur milli Liverpool og Arsenal.

  • #217
    October 29 · 22 min

    29. okt - Einkennileg yfirlýsing Fylkis og Blikar eru enn að leita

    Yfirlýsing Fylkis frá í gær er félagið tilkynnti að Heimir Guðjónsson væri á förum frá félaginu var einkennileg svo ekki sé meira sagt. Besta sætið fer yfir hana en Heimir er svo að skrifa undir hjá ÍA. Stuðullinn á Magnús Má Einarsson sem næsti þjálfari Blika lækkaði hratt eftir viðtal Vísis í gær. Liverpool slapp svo með skrekkinn í deildabikarnum.

  • #216
    October 28 · 22 min

    28. okt - Leitin að þjálfara Blika og umhverfissóðar eltir uppi

    Leit Blika að nýjum þjálfara er í hámarki og margir um hituna. Besta sætið fer yfir stöðuna í þjálfaramálunum. Ræðir einnig óvænt tap Arsenal í gær og svo er Orri Steinn orðaður við Everton. Passið ykkur svo ef þið kastið rusli út um gluggann. Besta sætið mun elta ykkur uppi.

  • #215
    October 27 · 21 min

    27. okt - Þjálfaramál Blika og Stjörnunnar og hvað með Carrick?

    Stjarnan er búin að tilkynna nýjan þjálfara formlega sem og nýjan yfirmann knattspyrnumála. Blikar eru í þjálfaraleit og standa á tímamótum. Michael Carrick lifði gærdaginn af sem þjálfari Man Utd og mun stýra liðinu um næstu helgi.

  • #214
    October 27 · 9 min

    Veigar Páll fer yfir lyfjaprófsmálið

    Körfuboltamaðurinn Veigar Páll Alexandersson hefur verið dæmdur í tólf mánaða keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi síðastliðið vor. Hann spilar því líklega ekkert með Njarðvík á þessari leiktíð í Bónusdeildinni. Veigar tók ADHD-lyf í tengslum við próflestur síðasta vor og það mældist í lyfjaprófi eftir leik með Njarðvík gegn Grindavík í úrslitakeppninni síðastliðið vor. Við hittum Veigar á heimili hans í Njarðvík.

Showing 1–20 of 87 episodes