Skip to content
Artwork for Rokkland
Rokkland · March 29 · 1 hr 51 min

Víkingur Heiðar

Gestur Rokklands þessa vikuna er enginn annar en píanósnillingurinn OKKAR – Víkingur Heiðar Ólafsson En Víkingur Heiðar er með 2 og hálfa milljón hlustenda á mánuði á Spotify - hann ferðast um heiminn þveran og endilangan og spilar í glæsilegustu tónleikahúsum heims – Carnegie Hall – Royal Albert Hall- og svo framvegis. Hann býr á Seltjarnarnesinu - spilar yfir 100 tónleika á ári í útlöndum - er dáður og virktur – gefur út hjá elsta plötufyrirtæki heims – hinu virta Deutche Grammophone. Hann hefur komið fram hjá Jools Holland á BBC – var í löngu viðtali hjá upptökustjóranum Rick Rubin fyrir skemmstu og þannig mætti lenggi halda áfram. Víkingur Heiðar er stórstjarna – og ekki bara í útlöndum vegna þess að við landar hans erum líka afskaplega hrifin af honum. Hann er að spila í Eldborg í Hörpu í næstu viku – þrisvar sinnum – miðvikudag – skírdag og laugardaginn fyrir páska. Hann gaf sér tíma til að koma í upptöku fyrir Rokkland í stúdíó 12 í stuttu stoppi hérna heima - hann stoppaði í tæpa tvo sólarhringa – var að koma frá París þar sem hann var að spila – og var á leiðinni til Bandaríkjanna til að spila nokkra tónleika – áður en hann kom svo aftur heim – og hann var veikur. Undir lok þáttarins förum við svo í Hljóðrita í Hafnarfiði og hlustum á Vintage Caravan ásamt Tómasi Jónssyni og Eyþóri Inga spila og syngja Deep Purple – en þeir eru með tónleika í Eldborg og Hofi núna í apríl þar sem þeir ætla að spila Deep Purple – og ég get sagt ykkur að það er ekki hægt að gera það betur en þeir gera það. Frábærir!

0:00-1:51:41

transcript

No transcript — this publisher did not publish one.

show notes

Gestur Rokklands þessa vikuna er enginn annar en píanósnillingurinn OKKAR – Víkingur Heiðar Ólafsson

En Víkingur Heiðar er með 2 og hálfa milljón hlustenda á mánuði á Spotify - hann ferðast um heiminn þveran og endilangan og spilar í glæsilegustu tónleikahúsum heims – Carnegie Hall – Royal Albert Hall- og svo framvegis.

Hann býr á Seltjarnarnesinu - spilar yfir 100 tónleika á ári í útlöndum - er dáður og virktur – gefur út hjá elsta plötufyrirtæki heims – hinu virta Deutche Grammophone.

Hann hefur komið fram hjá Jools Holland á BBC – var í löngu viðtali hjá upptökustjóranum Rick Rubin fyrir skemmstu og þannig mætti lenggi halda áfram. Víkingur Heiðar er stórstjarna – og ekki bara í útlöndum vegna þess að við landar hans erum líka afskaplega hrifin af honum. Hann er að spila í Eldborg í Hörpu í næstu viku – þrisvar sinnum – miðvikudag – skírdag og laugardaginn fyrir páska.

Hann gaf sér tíma til að koma í upptöku fyrir Rokkland í stúdíó 12 í stuttu stoppi hérna heima - hann stoppaði í tæpa tvo sólarhringa – var að koma frá París þar sem hann var að spila – og var á leiðinni til Bandaríkjanna til að spila nokkra tónleika – áður en hann kom svo aftur heim – og hann var veikur.

Undir lok þáttarins förum við svo í Hljóðrita í Hafnarfiði og hlustum á Vintage Caravan ásamt Tómasi Jónssyni og Eyþóri Inga spila og syngja Deep Purple – en þeir eru með tónleika í Eldborg og Hofi núna í apríl þar sem þeir ætla að spila Deep Purple – og ég get sagt ykkur að það er ekki hægt að gera það betur en þeir gera það. Frábærir!

more episodes

All episodes