Skip to content
Artwork for Rokkland
Rokkland · April 5 · 1 hr 51 min

TODMOBILE

Hljómsveitin Todmobile hlaut á dögunum heiðursverðlaun ÍTV fyrir framlag sitt til tónlistarlífsins á Íslandi í næstum 40 ár, en rætur hljómsveitarinnar liggja allt aftur til tímans þegar rokk í Reykjavík var að verða til. Þeir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og Eyþór Laxdal Arnalds höfðu þekkst frá 6-7 ára aldri og fyrsta hljómsveitin hans Þorvaldar sem hét Exodus spilaði í Stundinni okkar. Skúli Sverris spilaði á bassa í Exodus og Björk Guðmundsdóttir söng. Eyþór Arnalds stal Björk svo úr Exodus og í Tappa Tíkarrass. Seinna voru þeir Eyþór og Þorvaldur skólabræður í tónfræðideild Tónlistarskólans í Reykjavík og þriðja púslið í Todmobile framlínuna var svo söngkonan Andrea Gylfadóttir sem hafði slegið í gegn með hljómsveitinni Grafík og hafði lokið prófi sem óperusöngkona frá Söngskólanum í Reykjavík með hæstu einkun. Todmobile sló í gegn með fyrstu plötunni sinni- Betra en nokkuð annað sem kom út 1989 og þegar ÍTV voru afhent í fyrsta sinn árið 1994 fékk Todmobile næstum öll verðlaunin. Hljómsveitin hefur verið starfandi með hléum allar götur síðan 1988 og á undanförnum árum hefur Todmobile einbeitt sér að því að halda stóra tónleika í stærstu tónleikahúsum landsins. Þau hafa fengið erlendar stórstjörnur til samstarfs við sig – hetjur og átrúnaðargoð sérstaklega Þorvaldar Bjarna sem hefur mest verið við stýrið í Todmobile- Jon Anderson úr Yes og Steve Hacket úr Genesis - og núna síðast voru það Nik Kershaw – Midge Ure úr Ultravox og Tony Hadley úr Spandau Ballet. Þorvaldur Bjarni segir frá í Rokklandi vikunnar!

0:00-1:51:56

transcript

No transcript — this publisher did not publish one.

show notes

Hljómsveitin Todmobile hlaut á dögunum heiðursverðlaun ÍTV fyrir framlag sitt til tónlistarlífsins á Íslandi í næstum 40 ár, en rætur hljómsveitarinnar liggja allt aftur til tímans þegar rokk í Reykjavík var að verða til.

Þeir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og Eyþór Laxdal Arnalds höfðu þekkst frá 6-7 ára aldri og fyrsta hljómsveitin hans Þorvaldar sem hét Exodus spilaði í Stundinni okkar. Skúli Sverris spilaði á bassa í Exodus og Björk Guðmundsdóttir söng. Eyþór Arnalds stal Björk svo úr Exodus og í Tappa Tíkarrass.

Seinna voru þeir Eyþór og Þorvaldur skólabræður í tónfræðideild Tónlistarskólans í Reykjavík og þriðja púslið í Todmobile framlínuna var svo söngkonan Andrea Gylfadóttir sem hafði slegið í gegn með hljómsveitinni Grafík og hafði lokið prófi sem óperusöngkona frá Söngskólanum í Reykjavík með hæstu einkun.

Todmobile sló í gegn með fyrstu plötunni sinni- Betra en nokkuð annað sem kom út 1989 og þegar ÍTV voru afhent í fyrsta sinn árið 1994 fékk Todmobile næstum öll verðlaunin.

Hljómsveitin hefur verið starfandi með hléum allar götur síðan 1988 og á undanförnum árum hefur Todmobile einbeitt sér að því að halda stóra tónleika í stærstu tónleikahúsum landsins. Þau hafa fengið erlendar stórstjörnur til samstarfs við sig – hetjur og átrúnaðargoð sérstaklega Þorvaldar Bjarna sem hefur mest verið við stýrið í Todmobile- Jon Anderson úr Yes og Steve Hacket úr Genesis - og núna síðast voru það Nik Kershaw – Midge Ure úr Ultravox og Tony Hadley úr Spandau Ballet.

Þorvaldur Bjarni segir frá í Rokklandi vikunnar!

more episodes

All episodes