Skip to content
Artwork for Rokkland
Rokkland · March 22 · 1 hr 51 min

Atli Örvarsson

Atli Örvarsson sagði skilið við hljómsveitalífið á Íslandi fyrir rúmum 30 árum – hætti í Sálinni hans Jóns Míns sem þá var vinsælasta hljómsveit landsins og fór til Ameríku í nám í hinum virta Berklee tónlistarháskóla með höfuðáherslu á kvikmyndatónlist. Í beinu framhaldi kláraði hann mastersnám í North Carolina School of Arts. Síðan þá hefur hann samið og útsett tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti sem við þekkjum flest – og Atli Örvarsson er í dag eitt eftirsóttasta kvikmyndatónskáld í heims. Hann hefur hlotið allskyns viðurkenningar - verið tilnefndur til Grammy verðlauna og fyrir tveimur árum hlaut hann Bafta verðlaun fyrir tónlistina í sjónvarpsþáttunum Silo sem sýndir eru á Apple TV+. Atli er líka einn af sigurvegurum Músíktilrauna – sigraði 17 ára með Stuðkompaníinu sem hann var ásamt Kalla bróður sínum og fleiri strákum frá Akureyri. Lukkan hefur verið í liði með Atla – honum hefur gengið alveg ótrúlega vel, en hvað er þetta mikið lukka og hvað mikið af allt öðru? Við ætlum að kynnast Atla Örvarssyni í Rokklandi í dag – hann segir sjálfur sögu sína en hann verður á sviðinu í Hofi á Akureyri á skírdag með SinfoniuNord – stjórnar hljómsveitinni og músíkin er öll eftir hann.

0:00-1:51:16

transcript

No transcript — this publisher did not publish one.

show notes

Atli Örvarsson sagði skilið við hljómsveitalífið á Íslandi fyrir rúmum 30 árum – hætti í Sálinni hans Jóns Míns sem þá var vinsælasta hljómsveit landsins og fór til Ameríku í nám í hinum virta Berklee tónlistarháskóla með höfuðáherslu á kvikmyndatónlist. Í beinu framhaldi kláraði hann mastersnám í North Carolina School of Arts.

Síðan þá hefur hann samið og útsett tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti sem við þekkjum flest – og Atli Örvarsson er í dag eitt eftirsóttasta kvikmyndatónskáld í heims. Hann hefur hlotið allskyns viðurkenningar - verið tilnefndur til Grammy verðlauna og fyrir tveimur árum hlaut hann Bafta verðlaun fyrir tónlistina í sjónvarpsþáttunum Silo sem sýndir eru á Apple TV+.

Atli er líka einn af sigurvegurum Músíktilrauna – sigraði 17 ára með Stuðkompaníinu sem hann var ásamt Kalla bróður sínum og fleiri strákum frá Akureyri.
Lukkan hefur verið í liði með Atla – honum hefur gengið alveg ótrúlega vel, en hvað er þetta mikið lukka og hvað mikið af allt öðru?

Við ætlum að kynnast Atla Örvarssyni í Rokklandi í dag – hann segir sjálfur sögu sína en hann verður á sviðinu í Hofi á Akureyri á skírdag með SinfoniuNord – stjórnar hljómsveitinni og músíkin er öll eftir hann.

more episodes

All episodes