Skip to content
Artwork for Rokkland
Rokkland · Sunday · 1 hr 50 min

Karnival ljóssins og útvarpshjartað

U2 og Kevin Cole í Rokklandi vikunnar! Í fyrri hluta þáttarins förum við lag fyrir lag í gegnum nýju plötu U2, Carnaval de Luz – fyrstu stóru plötu sveitarinnar í níu ár. Við hlustum á öll lög plötunnar og skoðum sögurnar á bak við þau, textana. Karnival ljóssins, Rosalía, trúin, frelsið, vonin, vináttan og óttinn við myrkrið. Hvað er U2 að segja okkur eftir 50 ára samveru? Eiga þeir enn erindi við samtímann? Í seinni hlutanum er sérstakur gestur: Kevin Cole frá KEXP í Seattle. Kevin er einn áhrifamesti útvarpsmaður Bandaríkjanna, fyrrverandi plötusnúður á First Avenue í Minneapolis þar sem hann starfaði meðal annars með Prince, og einn þeirra sem hafa mótað KEXP sem er ein áhugaverðusta tónlistarútvarpsstöð í heimi – það er bara svoleiðis. Kevin hefur komið til Íslands á Iceland Airwaves árum saman og átt stóran þátt í að gera íslenskri tónlist hátt undir höfði á alþjóðavettvangi. KEXP hefur tekið upp meira en 300 tónlistaratriði á Íslandi og upptökurnar hafa fengið meira 150 milljón áhorf á netinu samanlagt. Við spjöllum um Prince, Sigur Rós, íslenska tónlist, útvarp, KEXP, Iceland Airwaves og ýmislegt fleira.

0:00-1:50:38

transcript

No transcript — this publisher did not publish one.

show notes

U2 og Kevin Cole í Rokklandi vikunnar!

Í fyrri hluta þáttarins förum við lag fyrir lag í gegnum nýju plötu U2, Carnaval de Luz – fyrstu stóru plötu sveitarinnar í níu ár. Við hlustum á öll lög plötunnar og skoðum sögurnar á bak við þau, textana. Karnival ljóssins, Rosalía, trúin, frelsið, vonin, vináttan og óttinn við myrkrið. Hvað er U2 að segja okkur eftir 50 ára samveru? Eiga þeir enn erindi við samtímann?

Í seinni hlutanum er sérstakur gestur: Kevin Cole frá KEXP í Seattle.
Kevin er einn áhrifamesti útvarpsmaður Bandaríkjanna, fyrrverandi plötusnúður á First Avenue í Minneapolis þar sem hann starfaði meðal annars með Prince, og einn þeirra sem hafa mótað KEXP sem er ein áhugaverðusta tónlistarútvarpsstöð í heimi – það er bara svoleiðis.

Kevin hefur komið til Íslands á Iceland Airwaves árum saman og átt stóran þátt í að gera íslenskri tónlist hátt undir höfði á alþjóðavettvangi. KEXP hefur tekið upp meira en 300 tónlistaratriði á Íslandi og upptökurnar hafa fengið meira 150 milljón áhorf á netinu samanlagt. Við spjöllum um Prince, Sigur Rós, íslenska tónlist, útvarp, KEXP, Iceland Airwaves og ýmislegt fleira.